Læknablaðið - 01.07.1929, Blaðsíða 12
98
LÆICNABLAÐIÐ
„Fundurinn felur stjórn Lf. ísl. aÖ svara erindi hjúkrunarkvenna, eftir
aö hafa ráÖfært sig viÖ spítalalækna landsins, sem til næst.“ Feld með
10:7 atkv.
Tillaga frá Guðm. Thoroddscn og Gunnl. Clacsscn:
„Læknafundurinn skorar á lækna ríkisspítalanna á Laugarnesi, Kleppi
og VifilsstöÖum, að taka til athugunar málaleitun hjúkrunarkvennanna og
styðja eftir megni að því að þær fái sanngjörn launakjör."
Tillaga þessi var samj)ykt með 13:2 atkv.
XII. Embœltavcitingamálið tekið fyrir aftur.
Gunni. Clacsscn har fram þessa tillögu:
„Læknaþingið felur stjórn félagsins að mótmæla því við ríkisstjórnina,
að tillögur landlæknis um embættaveitingar hafa verið virtar að vettugi.
Fáist ekki vilyrði um að ríkisstjórnin niuni framvegis taka til greina til-
lögur landlæknis — samkvæmt fornri venju — felur læknaþingið félags-
stjórninni að leggja fyrir næsta læknafund tillögur um samtök lækna, til
þess að tryggja sanngirni við veitingu læknaembætta.“
Kvað hann varasamt að gera svo mikla byltingu, sem tillögurnar færu
fram á. Nefndin tæplega svo „kompetent“ sem landlæknir. Ef stjórnin væri
ófáanleg til þess að virða tillögur landlæknis batnaði málstaður félagsins.
Nícls Dungal sagði engin líkindi til j)ess að stjórnin breytti stefnu, og
annarsvegar yrði samkvæmt tillögunum talað við alla lækna landsins.
Guðm. Hanncsson gerði nokkrar athugasemdir og taldi tillögur nefndar-
innar varlegar þegar þess væri gætt, að þær kænni ekki til framkvæmda
fyr en talað væri við alla lækna.
Ivgólfur Gíslason minti á að læknar hefðu unað við embættaveitingar
meðan landlæknir réði, en nú illa síðan j)að hreyttist. Þó væru nú orðnir
þeir tímar, að sumum læknum myndi l)ykja engu minni trygging í 5 manna
nefnd. Með siðustu embættaveitingum væru ekki eingöngu læknar móðgað-
ir heldur og landlæknir. Væri æskilegt að heyra afstöðu hans.
Gnðm. Tlioroddscn. Er með slíkri nefnd, sem tillögurnar fara fram á
en hinsvegar einnig fylgjandi tillögu G. Cl. Fengi þá félagið fulla vissu
um afstöðu landsstjórnarinnar , og vildi hún ekki taka vel í kröfumar sam-
kvæmt tillögu G. Cl., J)á væri ennj)á meiri ástæða til j)ess að framkvæma
tillögur nefndarinnar.
Bjarni Snccbjörnsson. í gær voru menn samþykkir tillögunni, en nú vilja
ýmsir fresta málinu til næsta fundar, j)á verður deila á ný um málið og
liklegt að það veslist upp. Miklu hrcinlegra að slá í horðið og taka málið
í sinar hendur. Full reynsla komin á J)að, hvert stjórnin stefnir, jafnvel
ekki víst nema landlæknir verði settur af og einhver stjórnargæðingur sett-
ur í staðinn, sem fylgir stjórninni í öllu. Með nefndartillögunum er ekki
óvarlega farið.
Sigurður Magnússon. Óliklegt að lækna vilji binda sig við tillögurn-
ar, og þó að það fengist, getur ónýtt alt. Freistingin mikil, að taka á
móti embætti ef stjórnin býður.
Landlœknir. Tvisvar hefir ekki verið farið eftir tillögum hans. G. Cl. gat
J)ess, að læknar vildu skoða landlækni sem málsvara lækna. Komið fyrir, að
hann hafi J)ótt draga um of taum lækna, hækka um of laun J)eirra, gjaldskrá
o. fl. Taxtinn gamli var mikil framför, og i 15 ár var hann skammaður á
J)ingi fyrir taxtann. Á síðari árum hefir hann J)ó öllu frekar hugsað um hags-