Læknablaðið - 01.10.1956, Page 10
84
LÆKNABLAÐIÐ
magn er að ræða. Eðlilegt magn
í þvagi er talið 0,01—0,08 mg.
í líter af þvagi en 0,01—0,06
mg. í 100 ml. af blóði. Hjá
verkamönnum, sem vinna við
blý er ekki taliri hætta á ferð-
um fyrr en blýmagn þvagsins
fer fram úr 0,15 mg. í líter og
blóðsins 0,07 mg. í 100 ml.
Stjórnskipuð læknanefnd, er
fjallaði um blýeitrun í Banda-
ríkjunum taldi ófært að greina
einstök blýeitrunartilfelli með
mælingu á blýmagni í blóði eða
þvagi.
Sjúkdómsgreining á blýeitr-
un eða óeðlilegri blýabsorptio
verður að byggjast á eftirtöld-
um aðalatriðum:
1. Athugun á vinnustað og
reyna að meta vinriuskilyrði á
staðnum og hvaða varúðarráð-
stöfunum er beitt af hálfu
vinnuveitanclans og hins ein-
staka verkamanns. Athuga
hvaða efni er unnið með og
hvort þannig er með þau farið,
eða hvort þau finnast í því
formi, að um raunverulega
hættu gæti verið að ræða.
2. Skoðun á verkamönnum.
Tekin sé skýrsla um lengd
sítarfstíma, starf innan fyrir-
tækisins og um allmennar og
sérstakar kvartanir.
3. Skipulagsburidin leit að
objectivum einkennum, sem
koma fram við óeðlilega mikla
blýabsorptio. Einfaldasta að-
ferðin til þess að sanna blýab-
sorptio hjá einstökum sjúkling-
um er sú að sýna fram á biý-
rönd í gómunum, enda þótt
þetta einkenni vanti oft, þrá'tt
fyrir óeðlilega absorptio. Hjá
30 sjúklingum með blýeitrun
fann Kehoe þetta einkenni hjá
20.
Með nákvæmri skoðun undir
stækkunargleri, í góðri birtu,
má sjá blásvarta blýsulfiðrönd
efst í tannholdinu eins og röð af
deplum eða lóðréttum strikum.
Bezt sést húri í gómum með
pyorrhoea acu'ta, næst skemmdri
tönn, bak við framtennur eða
næst jöxlum. Svipuð rönd kem-
ur fram af vismuti. Blýrönd
finnst sízt hjá þeim, sem hirða
vel munn og tennur.
Þar sem ekki finris't nein blý-
rönd byggist sjúkdómsgrein-
ingin aðallega á rannsókn á
blóðútstroki. Gerð er leit að
basophilt punkteruðum rauð-
um blóðkornum. Nokkuð er
gildi þessarar rannsóknar, með
tilliti til sat.urnismus, dregið í
efa, vegna þess að hún sé ósér-
hæfð og einnig vegna þess,
að basophilt punkt. r. blk. finn-
ist í blóði við fjölda annarra
sjúkdóma. Wintrope segir að
sjaldan finnist nokkur b. p. r.
blk. í blóði heilbrigðra. Mohle
telur að finnast kunni 0,3—
0,7%o og Sariders fann að með-
altali 0,34%0 af þeim hjá heil-
brigðum. Flestir eru sammála
um að telja allt að 0,3—0,5%0