Læknablaðið - 01.10.1956, Blaðsíða 33
I..E KN A BLAÐIÐ
107
hér um bil því plasmamagni í
háræðablóðinu, sem bætt er út
í hvern reit við aðferð 1.
Komizt verður af án plasma
ef efnin eru leyst upp í blöndu
af blóðkornum og saltvatni án
nokkurrar plasma-viðbótar. Á
því byggist aðferð 2.
Heparinið:
Því er bætt út í efnin með til-
liti til þess að aðferð 1 sé notuð.
Það hindrar fibrin útfellingu
og storknun háræðablóðsins.
Varast skal að hafa of mikið af
nautaheparini í efnablöndunni
vegna þess að í því kunni að
vera A efni.
Sellulosuhimnan: Skýrleiki
neikvæðra svarana fer ekki að-
eins eftir efnunum, sem notuð
eru við flokkunina, heldur einn-
ig eftir gerð' yfirborðsins, sem
flokkað er á. Svaranir virðast
vera meira eða minna jákvæðar
þar sem búast mætti við þeim
neikvæðum þegar flokkað er á:
pappír, pappa, pergamenti,
ýmsum plastefnum, gleri og
gulli. Sumar tegundir sellulosu-
gerfiefna má nota, en sellofan
'tekur fram öllum öðrum efnum,
sem hingað til hafa verið reynd.
Með áðurnefndum flokkunar-
efnum og réttum aðferðum
Wunu hinar rieikvæðu svaranir
verða mjög jafnar að áferð á
sellofani. Hin alkunnu sellofan-
límbönd eru notuð á spjöldin.
Resinið ,sem er í líminu mynd-
ar auk þess vatnsþétt lag ofan
á papparium. Það getur verið
að þessir eiginleikar sellulosu-
himnunnar s'tafi af því að hún
fær neikvæða rafhleðslu við
raka eins og blóðkornin og geri
upplausnina með því haldbetri
fyrir blóðkornin þegar þau setj-
ast í efnablöndunrii.
Samanburðarreiturinn:
ij honum eru engin mótefni
og þar á því að vera neikvæð
svörun. 1 sumum sjúkdómum t.
d. anæmia hæmolytica aquisita
kann blóðið að inriihalda auto-
agglutinin og mun þá verða
agglutinatio á blóðinu í öllum
reitunum. Þegar svona stendur
á gefur agglutinatio í saman-
burðárreitnum til kynna að
agglutiriatio í hinum reitunum
geti einnig verið óeiginleg.
Þannig má koma í veg fyrir það
að sjúklingar með þessa sjúk-
dóma séu ranglega taldir vera í
AB blóðflokki og Rh-jákvæðir.
Með því að hræra í saman-
burðarreitnum í hvert sinn sem
hrært hefur verið í einhverjum
hinna reitanna mun það koma
í ljós, hvort nokkuð af flokkun-
arserum hefur borizt þangað á
stautnum, vegna ófullnægjandi
hreinsunar á honum.
Ýmislegt, sem getur haft
áhrif á niðurstöður:
Þurrt flokkunarserum þolir
margra ára geymslu. Þurr
spjöld hafa sýnt sömu svaranir
eftir tveggja ára geymslu á