Læknablaðið - 01.10.1956, Blaðsíða 15
læknablaðið
89
Þar vei'ða 49% í I og II
flokki, 27% með vafasama og
24% með óeðlilega aukningu.
Fjórir menn komu til rannsókn-
ar vegna hitahækkunar eftir
zinksuðu, þrír vegna slens, einn
hafði fengið krampa og einn
meltingartruflanir. Blóðmynd
var athuguð hjá sex og reyndist
eðlileg, en tveir höfðu hækkað
sökk.
Þrír þeirra, sem vafasama
hækkun höfðu á fjölda b. p. r.
blk., komu 1 sinni hver til rann-
sóknar, einn járnsmiður með
0,4%o, einn logsuðumaður með
0»5%o og blikksmiður með
0,8 %0.
Fjórir járnsmiðir höfðu yfir
l%o» þar af tveir við endurtekna
i'annsókn. Einn þessara manna
hafði fengið iðrakveisu og hafði
auk þess blýrönd. Einii hafði
annið mikið við blý og hvít-
málm.
Hæsta gildið, 3%C> fannst hjá
logsuðumanni, sem lá á Land-
spítalanum, D III, með ura-
emia. önnur rannsókn, sem
&erð var 3 vikum síðar, sýndi
0,6%0.Einnblikksmiðurhafðivið
fyrstu rannsókn 2,3%c, ári síðar
°>^%o og eftir KJ gjöf í eina
viku 0,2%c.
Það er athyglisvert hve til-
tölulega margir menn úr þess-
um hópi koma til rannsóknar
vegna hitahækkunar eftir zink-
suðu, en hún stafar af áhrifum
zinkoxyds, sem myndast við
suðuna. Bendir það til þess, að
varúðar sé lítt gætt við þetta
starf.
Áberandi er það hve hlut-
fallslega margir menn í þess-
um starfsgreinum hafa aukn-
ingu á b. p. r. blk. í blóði og
bendir það til þess, að talsverð
blýeitrunarhætta sé hjá þeim.
Einkum er vert að benda á að
þar sem málmsuða fer fram
myndast gufur m. a. af blýi og
blýsamböndum. Við logsuðu
kemst hitinn upp í 1800° C. en
efnin, sem verið er að sjóða
eru oft blönduð menju og blý-
hvítu með suðumark við 700°C.
I Noregi fann Engelsen blý-
eitrun hjá allmörgum skipa-
smiðum og Hegna fann blý-
eitrun á lágu stigi hjá 5 mönn-
um, sem unnu við að rífa stóra
járnbm Nævstad rannsakaði
20 verkamenn í skipasmíða-
stöð, sem aðallega unnu við að
sjóða nagla í skipsbyrðinga.
Þeir unnu allir úti og viðhöfðu
engar sérstakar varúðarráð-
stafanir.
12 þeirra höfðu 0 b. p. r. blk.
1 — — 0,1%C —
7 — — 0,2%o —
þ. e. a. s. enginn sjúklega aukn-
ingu.
Vinnuskilyrði þessara manna
eru ærið misjöfn. Oft eru þeir
að vinna við suðu í þröngum
loftlitlum kytrum. Má þá búast
við allmikilli blýeitrunarhættu,
ef ekki ernotuð gríma til varnar.