Læknablaðið - 01.10.1956, Qupperneq 13
læknablaðið
87
Telur hann að þegar um svona
mikla fjölgun sé að ræða verði
skekkjan ekki meira en t. d. við
leucocytatalningu, en öðru máli
gegnir ef b.p.r.blk. eru fá. Hjá
manni með lítið af b.p.r.blk.
voru þau 5,8 að meðaltali eftir
10 talningar. Meðalskekkjan
var 1,37 og í % af meðaltali
23,6%. Hér verða sveiflurnar
á milli 0,9 og 0,2%.
Þá kem ég að einstökum
starfshópum:
Hverjum hópi er skipt í 4
flokka eftir fjölda b.p.r.blk.
I. þar fundust engin.
II. fl. með 0,1—0,3%o.
III. fl. — 0,4—0,9%o.
IV. fl. — meir en 1%0.
Samkvæmt rannsóknum
Nævstads, Schmiths og Traut-
manns er fjöldi b.p.r.blk. í II.
flokkj talinn vera eðlilegur og
kemur það heim við meðal-
fjölda þeirra hjá heilbrigðum,
samkvæmt rannsóknum Saund-
ei's. I III. fl. er talið vera um
nokkra aukningu að ræða, en þó
svo litla að ekki verði örugg-
lega ráðið af því að blýei'trun
væri yfirvofandi. Þó er talið
Hklegt, að blýabsorptio sé auk-
in í þeim tilfellum. Meir en 1%0
er talið ótvírætt bera vott um
meira eða minna aukna blý-
absorptio eða jafnvel blýeitrun.
Til þess að fá gleggri saman-
burð á hópunum innbyrðis hef
ég reiknað út %-tölu hvers
flokks innan hópsins. Hóparnir
verða þó ekki sambærilegir við
þétta nema að nokkru leyti
vegna þess hve þeir eru mis-
munandi fjölmennir. i
í fyrsta starfshópnum eru 7
bílstjórar og 2 benzínaf-
greiöslumenn.
I II III IV
78% 11% 11% 0
7 1 1(2 ranns.)
Þar koma 89% í I. og II.
flokk og hjá einum manni, sem
kom tvisvar til rannsóknar
fundust 0,4 og 0,6%o eða vafa-
söm aukning, sem ekkert er
hægt að leggja upp úr. Fjórir
höfðu kvartanir, almenns eðlis:
höfuðverk, slen, svefnhöfga og
gleymskuköst,. Að vísu finnast
þessi einkenni við blýeitrun en
hafa ekkert sérstakt að segja.
Enginn þeirra hafði neitt af
aðaleinkennum sjúkdómsins.
Þrír höfðu eðlilega blóðmynd.*)
Flestir af þessum mönnum
munu hafa komið til rannsókn-
ar af ótta við blýeitrun af völd-
um benzíns, einn afgreiddi ben-
zín til bifreiða, annar til flug-
véla og einn hélt sig hafa lakk-
eitrun. Trúlegt þykir mér, að
einkenni þessara manna kunni
að hafa orsakast af benzínguf-
um fremur en af blýverkun,
þegar þess er gætt, hve lítið blý
er í benzíni því, sem hér er selt.
Samkvæmt upplýsingum frá
*) Athugun blóðmyndar táknar
hér venjulega blóðrannsókn („blóð-
status"), en ekki eingöngu hlut-
fallstalningu hvítra blóðkorna,