Læknablaðið - 01.10.1956, Side 25
LÆKNABLAÐIÐ
99
Blóðflokkun
iiieð Eldon-spjöldum
Fyrir skömmu kynntist ég
nýrri blóðflokkuriaraðferð, sem
mjög hefur rutt sér til rúms í
Danmörku síðustu tvö árin. Þar
sem hér virðist vera mjög at-
hyglisverð nýjung á ferðinni,
þótti mér sjálfsagt að kynna
hana íslenzkum læknum.
Aðferðinni er lýst í 2 grein-
um, sem hér fara á eftir. Þær
eru báðar þýddar úr sérprent-
uðum bæklirigum úr Danish
Medical Bulletin, vol. 2, no. 2,
1955, að fengnu leyfi höfund-
anna. Hin fyrri birtist hér öll,
en hin síðari lítið eitt stytt.
Fyrri greinin er rituð af höf-
undi aðferðarinnar, dr. Knud
Eldon, og nefnist: Simultaneo-
us ABO and Rh Groupings on
Cards in the Laboratory and at
the Bedside. Hina síðari hefur
dr. Kell Jordal ritað. Titill
hennar er: Blood Grouping in
a Blood Bank by the Eldon Met-
hod.
Aðferðinni er svo vel og skil-
merkilega lýst í þessum grein-
um, að mér þótti réttara að
birta þær hér þýddar fremur
en að semja upp úr þeim ágrip.
Bjarni Konráðsson.
AltO «•» Rh-flokkun, gerö samtímis á
spjahli, annaðhvort í rannsáknarstofu
eða við sjiikraheð
£fu, J<nJ £Uc
Gildi ákveðinnar blóðflokk-
unaraðferðar byggist á því hve
áreiðanleg hún er, hve miklar
kröfur hún gerir til kúnnáttu
þeirra, sem nota hana og hve
tímafrek hún er.
Líkur fyrir skekkjum vegna
þess að ný aðferð er notuð verð-
Ur að miða við þær skekkjur er
fylgja öðrum aðferðum.
Taka verður einnig tillit til
þess hvort aðferðin er eingöngu
við hæfi sérmenntaðs starfsliðs
í blóðflokkunarrannsóknarstofu
eða hægt að nota haria í venju-
legri rannsóknarstofu og jafn-
vel við sjúkrabeð.
Þegar ABO og Rh flokkun er
gerð í sérstökum rannsókn-
arstofum:
Komast má hjá allflestum
villum ef rannsóknin er tví-
tekin og gerð í sérhæfum rann-
sóknarstofum. Þó kunna að
slæðast með villur þegar verið