Læknablaðið - 01.10.1956, Page 44
118
LÆKNABLAÐIÐ
anti-A
anti-B
anti-D
Control
NagalWa raaclion wllh anti-D domontlralat ihat Iha parton laitad il
Rh-nagatlva ai raciplant (but nol nacanarlly ai donor)
David 3ro\vn
Data ol birth 6-8-11
Addran
Jfitjýsmeade /toed
Wo/steed
Blood group ? 0 Rh ? c
Dat* ol lait Teited by
14-7-54 J.J.
Signpiur*
3. mynd.
yfir reit þeim, sem hefur þá
tegund að geyma. Samanburð-
arreifcurinn veitir öryggi gegn
panagglutinatio, en með hinum
venjulegu flokkunaraðferðum
er ekki hægt að komast fyrir
þá villuuppsprettu. (3. mynd.)
Eldonaðferðin er bæði auð-
veld og auðlærð. Eftir s'butta
tilsögn er sérhver læknir eða
aðstoðarmaður fær um að nota
hana. Spjaldaaðferðin gerir at-
hugun á efnabreytingunni
mögulega, þar eð hana má end-
urskoða á spjaldinu hvenær
sem er. Sá, sem gerir rannsókn-
ina undirritar spjaldið og má
því ætíð sjá hver það er. Þannig
er hægt að rekja hverja villu.
Til dæmis um það að Eldon-
spjaldaaðferðinni má örugglega
trúa hverjum lækni fyrir eftir
stutta tilsögn, skal þess getið
að á tímabilinu frá því í apríl
1953 og þangað til í apríl 1954
voru 537 aðkallandi flokkanir
gerðar í blóðbankanum. 296
þeirra gerðu ýmsir skurðlækn-
ar handlækningadeildanna á
þeim tíma, sem starfsfólk blóð-
bankans átti frí. Blóðflokkun
með Eldonspjöldum er fljótleg.
Þegar á liggur má fá örugga
niðurstöðu ABO og Rh flokkun-
ar eftir hérumbil 3 mínútur.
Flokkun má gera hvar sem er
með einföldum tækjum. Þýð-
ingu þess þarf varla að orð-
lengja. Alkunna er hve mikil-
vægt það er að sjúklingar fái
rétt flokkað blóð og hver hætta
fylgir ef þeir fá óhæft blóð.
Ástæða er einnig til þess að
benda á það að vegna þess hve
fljótt og auðveldlega er hægt
að gera Rh flokkun hefur mátt
takmarka útvegun Rh neikvæðs
blóðs að mestu í samræmi við
hlutfallsfjölda Rh neikvæðra
manna í Danmörku.