Bændablaðið - 20.06.2013, Síða 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júní 20132
Fréttir
Rætur jarðhitans
rannsakaðar
Vísindasamfélagið, orkufyrirtæki
og Orkustofnun hafa gert með sér
samkomulag um að verja um 100
milljónum króna til rannsókna á
samspili vatns og kviku í rótum
eldfjalla. Hvernig þetta samspil
er og hvernig varminn berst úr
kvikunni í jarðhitakerfin er lykill
að dýpri skilningi á skynsamlegri
nýtingu jarðhitans.
Skrifað hefur verið undir samn-
inga um samstarfsverkefnið „Deep
Roots of Geothermal systems“
(DRG), sem unnið er að á vegum
GEORG rannsóknarklasa í jarðhita
og stutt með fjárframlögum frá
GEORG, Orkustofnun, Orkuveitu
Reykjavíkur, HS Orku, Landsvirkjun
og Iceland Deep Drilling Project
(IDDP).
Markmið verkefnisins er að skilja
tengsl vatns og kviku í rótum eld-
fjalla og hvernig varmi berst þaðan
upp til jarðhitakerfanna og viðheldur
orku þeirra. Jafnframt verður hugað
að hönnun á borholum fyrir hærra
hitastig en hingað til og aðferðum til
að nýta yfirhitaða gufu af miklu dýpi.
Það verður veittur 25% afsláttur
af skráningu vorbóka sem komnar
eru inn til RML fyrir 30. júní nk.
Jafnframt verður tryggt að búið
verður að skrá þær bækur inn
þegar kynbótamat fyrir frjósemi
verður uppfært miðað við gögn
frá vorinu 2013 í ágúst. Það er því
tryggt að þeir sem skila bókum
snemma fá haustbækur með upp-
færðu kynbótamati sem byggir á
nýjustu vorgögnum.
Næsta keyrsla kynbótamats í frjó-
semi verður síðan ekki fyrr en í lok
nóvember um leið og kynbótamat
fyrir aðra eiginleika verður keyrt.
Í meðfylgjandi töflu má sjá helstu
dagsetningar varðandi skil fjárbóka.
Vert er að árétta að þessar dagsetn-
ingar eru eingöngu viðmið vegna
úrvinnslu kynbótamats og prentunar
haustbóka en hafa ekkert með þátt-
töku í gæðastýringu að gera.
Áminning frá RML:
Skráning vorbóka
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
(RML) hyggst á næstunni hrinda
af stað átaksverkefni í ráðgjöf
varðandi nautakjötsframleiðslu.
Markmið verkefnisins er að efla
nautakjötsframleiðsluna og auka
fagmennsku, kjötgæði og framboð.
Kanna á rekstrarforsendur og
benda á leiðir til úrbóta ásamt því
að byggja upp þekkingu og bæta
ráðgjöf. Verkefnið er til þriggja ára.
Auglýst hefur verið eftir
þátttakendum í verkefnið og er
umsóknarfrestur til 1. ágúst nk.
Stefnt er að því að verkefninu verði
ýtt úr vör í haust. Miðað er við
að þátttakendur hyggist framleiða
nautakjöt í nokkru mæli, ýmist sem
aðalbúgrein eða samhliða öðrum
búgreinum. Áhugasömum er bent á
að hafa samband við RML.
Átak í nautakjöts-
framleiðslu
Bessi Freyr Vésteinsson, verktaki
í Hofstaðaseli í Skagafirði, hefur
haft í nægu að snúast upp á
síðkastið ásamt starfsmönnum
sínum. Sökum kals í túnum hafa
bændur neyðst til að endurrækta
mun stærri hluta af túnum sínum
en vanalegt er og hefur Bessi sinnt
bændum bæði í Skagafirði og
Eyjafirði í þeim efnum. Að hans
sögn eru hann og menn hans búnir
að bylta og sá í ríflega 300 hektara
á svæðinu. Jarðvinnu er nú að
mestu lokið, einungis eftirhreytur
standa eftir og Bessi býr sig nú
undir heyskapartíð.
Mjög mikilvægt að ná góðri
uppskeru
Þegar blaðamaður sló á þráðinn til
Bessa var hann staddur á Akureyri að
taka olíu á dráttarvélina en svo var
stefnan tekin upp í Öxnadal.
„Við höfum verið með úthald að
störfum í Hjaltadal í Skagafirði að
undanförnu. Ég er sjálfur norður í
Eyjafirði og hef verið við sáningu
í Öxnadal.“
Bessi segir að kal sé á flestum
bæjum í Öxnadal og þar sé hann
búinn að vera í endurræktun mjög
víða. Svipaða sögu sé að segja um
Hörgárdalinn. Í Skagafirði er mikið
kalið í Óslandshlíð en minna er þó
kalið nyrst í firðinum en óttast var.
Mest kal er í Hjaltadal á tveimur
bæjum þar sem allt upp undir 90
prósent túna eru kalin. Þá er einnig
tjón í Viðvíkursveit. Bændur eru yfir-
leitt að sá grasfræi með höfrum eða
rýgresi í bland til að auka við upp-
skeru. Menn eru að verða heylitlir á
svæðinu öllu og mikið liggur við að
ná góðri uppskeru í sumar. „Ég finn að
menn eru áhyggjufullir yfir þessu því
það er ekki orðið á neinar fyrningar
að ganga. Það er því mjög mikilvægt
að menn fái góða uppskeru í sumar.“
Hafa unnið 300 hektara
kalinna túna
Bessi og starfsmenn hans hafa verið
við jarðvinnslu um það bil síðustu
þrjár vikur, bæði í Skagafirði og
Eyjafirði. Reyndar hófu þeir störf
um hvítasunnuna í Húnavatssýslu
þar sem bætt var í nýræktir og unnið
í kornsáningu, en minna var um
endurræktun vegna kals. Í Skagafirði
og Eyjafirði hafa þeir unnið um 300
hektara vegna kalskemmda og þá er
ótalin jarðvinna vegna kornræktar
og annars.
„Helstu kalsvæðin á Mið-
Norðurlandi sýnast mér vera
Viðvíkursveit, Hjaltadalur og
Óslandshlíð í Skagafirði og Öxnadalur
og Hörgárdalur í Eyjafirði. Á þessum
svæðum höfum við farið mjög víða
um. Þessari jarðvinnu er nú nánast
lokið en ég á von á að við verðum
í eftirhreytum fram að heyskap.
Það hillir undir slátt á næstu dögum
og einhverjir skagfirskir bændur
eru byrjaðir. Það hefur verið mikil
gróðrartíð að undanförnu og spírað
mjög vel í flögum. Við erum farnir
að sjá grasfræ taka vel við sér en ef
fram fer sem horfir fer að vanta vætu.“
Stórvirki unnið í endurræktun
Algengt er að verið sé að endurrækta
á bilinu 20 til 30 hektara túna á bæ,
að sögn Bessa. Bændur forgangsraða
endurræktuninni, rækta upp það sem
er auðveldara að eiga við en skilja
eftir tún sem eru grýtt og erfið í
vinnslu enda fylgir því meiri vinna
og kostnaður.
„Almennt séð hefur þetta gengið
mjög vel en við höfum líka, ég og
mínir menn, lagt mjög hart að okkur
við þessa vinnu. Það hefur verið unnið
nærri dag og nótt upp á síðkastið.
Veðurfar hefur verið hagstætt síðustu
daga, hlýtt og þurrt, sem hefur orðið
til þess að hægt hefur verið að fara um
þessi tún vandræðalítið. Það er búið
að vinna stórvirki í þessum efnum.
Menn hafa staðið sig vel, bæði í
samvinnu við okkur og einnig með
eigin tækjum. Bændur hafa mikið nýtt
sér okkur verktakana. Ég er mjög vel
settur með mannskap núna og það
er í raun fyrir tilstilli þeirra, þessara
öflugu stráka, hvað þetta hefur gengið
hratt og vel fram. Þeir hafa fast að því
gengið fram af sér í vinnu og eiga
heiður skilinn. Við skynjum það
vel að það er lífsafkoma fólks sem
er hér í húfi. Vonandi tekst þetta vel
til, reynslan hefur sýnt að eftir svona
áföll standa menn oft sterkari eftir
varðandi fóðuröflun til lengri tíma.
Það er hins vegar áhyggjuefni hvernig
menn komast í gegnum næsta vetur
varðandi fóður.“
Líklegt að dregið verði úr
ásetningi
Bessi hefur verið umsvifamikill í
heysölu undanfarin ár en heybirgðir
hans eru þrotnar. Spurður hvort hann
hafi tök á að bæta við í heyöflun í
sumar til að vera í stakk búinn ef
bændur þurfa á því að halda á
komandi vetri segir Bessi að þau
tún sem hann hafi haft til afnota hafi
hann fullnýtt.
„Síðasta sumar varð hins vegar
töluvert minni uppskera vegna þurrka.
Hluti túnanna er laskaður en sökum
ágætrar sprettutíðar undanfarið lítur
þetta mjög vel út núna. Við munum
reyna að aðstoða menn eftir fremsta
megni en það má segja að það
gæti orðið dropi í hafið miðað við
þarfir manna á heyi sem maður sér
fram á komandi vetur. Á þetta mun
væntanlega ekki reyna fyrr en síðla
næsta vetur þó. Ég reikna einnig með
að menn komi til með að haga ásetningi
í samræmi við heybirgðir. Ég sé ekki
til dæmis að sauðfjárbændur muni
kaupa hey í stórum stíl. Miðað við
afkomu greinarinnar held ég að það
sé nú komið að ákveðnum tímamótum
sums staðar, vegna þessa.“
Hektarinn kostar 150.000 krónur
að lágmarki
Mikill kostnaður liggur í þessari
auknu endurræktun hjá bændum,
sem fer langt fram úr því sem er
eðlilegt í meðalári. Erfitt er að leggja
mat á meðaltalskostnað á hektara
í endurræktun en Bessi segir ekki
fráleitt að áætla að þar sem aðstæður
séu nokkuð góðar sé kostnaður vegna
jarðvinnslu á hektara um 50.000
krónur fyrir utan virðisaukaskatt. Þá
sé kostnaður vegna kaupa á fræi og
áburði auk dreifingar hugsanlega um
100.000 krónur. Ef til komi aukavinna,
til dæmis vegna grjóttínslu, sé
kostnaðurinn mjög fljótur að fara upp.
„Mér sýnist menn ætla að taka
hraustlega á þessum málum en svo
eru bændur kannski ekki búnir að sjá
hvernig þeir ætla að mæta þessum
kostnaði. Þeir vona auðvitað að þeir fái
einhverja aðstoð við það enda standa
menn missterkir gagnvart áföllum. Það
má ekki gleyma því að margir bændur
hafa verið að kaupa hey í vetur, þeir
kostuðu til í áburðarkaupum síðasta
vor sem skiluðu sér svo ekki að fullu
í heybirgðum síðasta sumar vegna
þurrka.“
Leggja sig með haustinu
Spurður hvort hann og starfsmenn
hans fái hvíld á næstunni til að kasta
mæðinni fyrir heyskapartörnina sem
fram undan er hálf hlær Bessi við.
„Ég hef nú sagt bæði í gríni og alvöru
þessa dagana að við reynum bara
að vaka meðan bjart er. Við förum
líklega ekki að leggja okkur fyrr en
með haustinu.“ /fr
„Vökum og vinnum meðan bjart er“
– stórvirki verið unnið í endurræktun túna vegna kals á Norðurlandi
miklu máli varðandi vinnuna nú í vor. „Það var mikið lán að geta tekið þetta tæki til starfa nú í vor því annars hefði þessi vinna ekki gengið eins hratt og
vel og raunin varð.“ Myndir / MÞÞ
Í kjölfar vinnustofudvalar
Ragnars Kjartanssonar mynd-
listarmanns á Galtarvita verður
haldinn Jónsmessufagnaður á
miðnætti aðfaranótt 24. júní.
Bátsferðir verða í boði frá
Suðureyri 23. júní kl. 11 og 17 og
hægt verður að tjalda á staðnum
eða gista í svefnpokaplássi. Þetta er
annað árið í röð sem Galtarviti hefur
verið í samstarfi við Slíjm sf. um
vinnustofudvölina. Hápunkturinn
verður á fullu tungli á Jónsmessu
þegar gestum verður boðið til
Jónsmessugleði.
Jónsmessufagnaður
á Galtarvita