Bændablaðið - 20.06.2013, Blaðsíða 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júní 2013 7
Snæbjörn Sigurðsson og Björg
Ingvars dóttir, ferðaþjónustu-
bændur í Efsta-Dal II í Bláskóga-
byggð, opnuðu föstu daginn 7. júní
nýtt og glæsilegt ferðamanna-
fjós, sem ætlað er inn lendum og
erlendum ferða mönnum.
Framkvæmdin tók aðeins sjö
mánuði, en aðalverktaki var Pálmatré,
fyrirtæki Pálma Pálssonar frá
Hjálmsstöðum í Laugardal. Matsalurinn
tekur um 200 manns í sæti, en úr honum
er m.a. hægt að fylgjast með kúnum í
fjósinu á meðan gestir neyta afurða frá
búinu eins og skyrs, smjörs, fetaosts,
jógúrtar og nautakjöts. Í Efsta-Dal er
einnig hótel og öflugt hrossaræktarbú.
Heimasíðan er http://efstidalur.is/.
Magnús Hlynur Hreiðarsson var við
opnunina og tók meðfylgjandi myndir.
Mér er líkt og
finni fyrir bjartsýni
meðal bænda í
þessari sólríku
sumarbyrjun. Bjartsýni gætir
sem betur fer víðar í samfélaginu.
Ríkar væntingar eru til nýkjörinnar
ríkisstjórnar, allavega hjá sumum.
Eiríkur Jónsson, fyrrum formaður
Kennarasambands Íslands, orti á
dögunum nýkjörnum valdhöfum
eins konar „ ferðabæn“:
Nú glampar sól á silfurlitar skeiðar,
því senn mun hverfa skulda vorra fár.
Þar með verða götur allar greiðar
og glatt á hjalla næstu fjögur ár.
Indriði Aðalsteinsson á Skjald-
fönn gefur sig ekki fullkomlega
gleðinni á vald, en er svo sem
ekki beint með úrtölur þegar hann
„limrar“ á stjórnarliðið:
Nú er Ísland í auðvaldsins höndum,
og alveg ljóst hvar við stöndum.
Gullskeiða lið
er gengið á svið
og labbar sko ekki með löndum.
Og meira af pólítískum toga.
Stefán Jónsson fréttamaður orti
tvær næstu vísur í orðastað Jóns
Pálmasonar alþingismanns:
Elsku hjartans Ísland mitt,
ó, hve þú ert hrikafagurt.
Sæll ég bý við brjóstið þitt
þó bæði sé það kalt og magurt.
Fríður himinn, fagurblár,
festing yfir mínum ranni.
Grána á mér gisin hár,
gömlum og þreyttum alþingismanni.
Þegar Jónas frá Hriflu varð
fimmtugur sendi Þórarinn
Sveinsson í Kílakoti honum
árnaðaróskir:
Hefur þú í hálfa öld
haldið sama strikið:
Lokaráðin lagt oss köld,
logið, rægt og svikið.
Í einni þingveislunni ortust þeir á
Gísli Sveinsson, alþingismaður
V-Skaftfellinga, og Jón Pálmason,
þingmaður Húnvetninga. Gísli
kvað:
Sunnlendinga sigur vís
sig mun ávallt herða.
Þeir sem búa yst við ís
undirlægjur verða.
Jón svarar:
Brekkur sækja aldrei á,
þótt yfirlæti kunni.
Sunnlendingar sveima á
sálarflatneskjunni.
Og frekar frá þingveislum.
Bjarni Ásgeirsson, þingmaður
Mýramanna, og Skúli
Guðmundsson, þingmaður V-
Húnvetninga, atyrtu hvor annan
í veislunni. Bjarni orti til Skúla:
Skúli yrði alþjóð hjá
í æði háu mati,
ef hann skipti í skyndi á
skeggi og höfuðfati.
Skúli svarar:
Bjarni af ýmsum öðrum ber,
en illa líkar vonum,
þessi galli, að það er
ekkert skegg á honum.
Þegar ljóðabók Jóns á Akri kom
út kvað Benedikt frá Hofteigi:
Hættu, Jón, að hrella mann,
hvað sem öðru líður.
Gerðu það fyrir Guð – og þann
gamla ekki síður.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
Líf og starf
MÆLT AF
MUNNI FRAM
M
Nýtt ferðamannafjós í Efsta-Dal II í Bláskógabyggð
Snæbjörn og Björg eru himinlifandi
með nýja ferðamannafjósið sitt, sem
þau reka og eiga í samstarfi við börnin
og tengdabörnin á bænum. Viðtökurnar
hafa verið frábærar frá því að opnað var.
Myndir / MHH
Sautján starfsmenn vinna í Efsta-Dal II. Hér er starfsfólkið sem var á vakt 7. júní, frá vinstri: Árni Benónýsson, Guðrún Karitas Snæbjörnsdóttir, Kristbjörg
Guðmundsdóttir, Ásta Berglind Proppé Steinarsdóttir, Sveinn R. Jónsson, Hildur Ingvarsdóttir, Karen Nótt Halldórsdóttir, Elínborg Anna Jóhannsdóttir,
Teitur Sævarsson, Kristín Ingunn Haraldsdóttir og Sölvi Arnarsson. Myndir / MHH
Það kom í hlut Sigríðar Höllu
Einarsdóttur, móður Bjargar, að
klippa á borðann við vígslu nýja
ferðamannafjóssins.
Kokkarnir í Efsta-Dal II klikka ekki á
matnum. Hér eru þau Sveinn R. Jónsson
og Hildur Ingvarsdóttir.
50 ára afmæli Skálholtskirkju fagnað 21. júlí
Skálholtshátíð verður að þessu sinni
með veglegra móti, enda fimmtíu
ár frá vígslu Skálholtskirkju og
frá því að ríkisstjórnin afhenti
þjóðkirkjunni Skálholtsstað.
Aðalhátíðin verður sunnudaginn
21. júlí, en Skálholtshátíð ber upp
á sama dag og var fyrir fimmtíu
árum. Auk sunnudagsins verður
einnig dagskrá bæði föstudag og
laugardag, 19. og 20. júlí.
Raunar byrjar hátíðin strax á
fimmtudagskvöldi 18. júlí kl. 20 með
tónleikum á vegum sumartónleikanna,
þar sem Skálholtskvartettinn leikur.
Föstudaginn 19. eftir hádegi verður
samkoma í skólanum þar sem rætt
verður um framtíðarmál staðarins.
Laugardagurinn 20. júlí verður
með líku sniðið og vel gafst á
síðasta sumri, þar sem dagskráin
miðast við fjölskyldufólk. Eftir
klukknahringingu kl. tólf á hádegi
verður gengið að Þorlákssæti og
sungin messa undir berum himni.
Að messu lokinni hefst fjölbreytt
útidagskrá með barnaleikjum,
gönguferðum, útimarkaði,
fornleifakynningu og fleiru, en
inni í skólanum verður formlega
opnuð sýning í Skálholtsskóla
þar sem sjá má teikningar og
tillögur að Skálholtskirkju og
listskreytingum hennar, bréf og
skjöl sem tengjast afhendingu
Skálholts og byggingu kirkjunnar og
skólans og ljósmyndir frá hátíðinni
1963. Leiknar verða upptökur frá
messunni og samkomunni. Kl. 15
eru tónleikar í kirkjunni í samvinnu
við Sumartónleikana. Afmæliskór
Breiðholtskirkju undir stjórn Arnar
Magnússonar flytur nýtt verk eftir
Hróðmar Inga Sigurbjörnsson,
sem hann samdi í tilefni af 25 ára
vígsluafmæli Breiðholtskirkju,
og Mótettuna Jesu meine Freude
eftir Johann Sebastian Bach.
Eftir kvöldbænir kl. 18.00 er
hátíðarkvöldverður með boðsgestum
úr nálægð og fjarlægð, en dagskrá
laugardagsins lýkur með tónleikum
Skálholtskvartettsins í kirkjunni.
Sunnudagur Skálholtshátíðar
hefst með morgunbænum kl. 9.
Kl. 10.30 verður stutt athöfn í
kirkjunni þar sem stofnað verður
Skálholtsfélag hið nýja, en unnið
hefur verið að undirbúningi þess
um nokkra hríð. Kl. 11 eru orgel-
tónleikar í kirkjunni sem standa eina
klukkustund, og hefur organistinn
Jón Bjarnason veg og vanda af þeim.
Messa hefst kl. 14. með lúðrablæstri
og skrúðgöngu. Sungin verður hefð-
bundin hátíðarmessa þar sem sr. Karl
Sigurbjörnsson biskup predikar, en
sóknarpresturinn, vígslubiskupinn
og biskup Íslands þjóna fyrir altari.
Skálholtskórinn syngur undir stjórn
Jóns Bjarnasonar. Svo ánægjulega
vill til að einn kórfélaganna sem
nú syngur, Bragi Þorsteinsson á
Vatnsleysu, hefur sungið í kórnum
samfellt öll fimmtíu árin! Í hátíðar-
kórnum nú eru einnig fjölmargir aðrir
sem lagt hafa söngnum lið á undan-
förnum áratugum.
Eins og venja er orðin munu
pílagrímar setja svip sinn á hátíðar-
messuna. Það er göngufólk sem
að stærstum hluta gengur frá
Þingvallakirkju að Skálholtskirkju,
en þau sem lengsta leið leggja að baki
hefja gönguna við kirkjuna í Bæ í
Borgarfirði þann 16. júlí. /MHH