Bændablaðið - 20.06.2013, Page 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júní 201310
Fréttir
Lífland tekur yfir rekstur
Bændaþjónustunnar
– verður rekin í óbreyttri mynd
Hið gamalgróna og fræga
dráttarvéla nafn Farmall er nú
komið aftur á markað eftir langa
fjarveru. Án efa munu fjölmargir
gamlir Farmall-áhugamenn því
geta tekið gleði sína á ný.
Fyrirtækið Kraftvélar í Kópavogi
er nú komið með í sölu glænýjar
Case-dráttarvélar frá International
Harvester (IH) sem heita einmitt
Case IH – Farmall 115A. Þarna er
um að ræða öflugar 115 hestafla
dráttarvélar sem eru sagðar einfaldar
í notkun og nettari í aukabúnaði en
margar sérpantaðar dráttarvélar sem
íslenskir kaupendur velja gjarnan.
Þær eru samt hinar vönduðustu. Þá
munu þær líka fást á afar hagstæðu
verði miðað við sambærilegar vélar
annarra framleiðenda. Þessi vél kostar
hjá Kraftvélum rúmar 5,7 milljónir
króna fyrir utan virðisaukaskatt, en
sambærilegar vélar í stærð og afli
munu flestar kosta um 7 til 8 milljónir
króna fyrir utan vsk.
Til eru fjórar útgáfur úr þessari
100A seríu Case IH Farmall, með
mótora frá 90-115 hestöflum.
Hægt er að fá þær bæði með
afturdrifi eingöngu og einnig með
framhjóladrifi. Líka er hægt að hlaða
á þær ýmsum aukabúnaði ef menn
vilja.
Eins og flest önnur dráttarvélar-
merki á heimsmarkaðnum er Case
IH - Farmall nú í eigu Ítala og er í
eigu CNH Global, sem heyrir undir
Fiat Industrial.
International Harvester á rætur að
rekja til ársins 1830, þegar Cyrus Hall
McCormick kom fram með hönnun
sína á hestaplóg. Með bróður sínum
Lender stofnaði hann svo McCormick
Harvesting Company árið 1847.
Cyrus Hall McCormick lést
árið 1885 og þá varð margvísleg
uppstokkun á félaginu. Einn angi
þeirra uppstokkunar var stofnun
International Harvester árið 1919.
IH hóf framleiðslu á Farmall-
dráttarvélum árið 1926. Farmall
Cub nafnið varð frægt á Íslandi við
upphaf vélvæðingar í landbúnaði
enda mikill fjöldi slíkra véla í sveitum
landsins. „Köbbinn“ var reyndar líka
sagður vinsælasta smádráttarvélin í
heimssögunni, en framleiðslunni á
vélum með Farmall-nafninu var hætt
eftir miklar hremmingar IH árið 1981.
Félagið neyddist svo til að selja
landbúnaðardeild sína í nóvember
1984 og tók árið 1986 upp nafnið
Navistar International Corporation.
Landbúnaðardeild IH rann hins
vegar inn í Case árið 1985 og fylgdi
Farmall-nafnið að sjálfsögðu með í
kaupunum. /HKr.
Farmallinn snýr aftur
Lífland hefur tekið yfir rekstur
Bændaþjónustunnar í Skagafirði af
Eymundi Þórarinssyni, sem rekið
hefur fyrirtækið um árabil. Auk
starfsemi Bændaþjónustunnar í
Varmahlíð og þjónustu við bændur
í Skagafirði hefur verið starfrækt
verslun á Blönduósi undir styrkri
stjórn Hávarðar Sigurjónssonar.
Verslanir Líflands eru í dag
á tveimur stöðum, á Lynghálsi
3 í Reykjavík og á Lónsbakka
Akureyri. Fyrirtækið mun halda
versluninni að Efstubraut 1 á
Blönduósi óbreyttri og reka áfram
undir merkjum Bændaþjónustunnar.
Verslunin mun starfa þar áfram undir
stjórn Hávarðar Sigurjónssonar og
þjóna íbúum svæðisins og öðrum
sem þangað leita. Eymundur mun
áfram sinna sinni góðu þjónustu í
Skagafirði og njóta stuðnings öflugs
ráðgjafateymis á landbúnaðarsviði
Líflands.
Bændaþjónustan hefur skapað sér
nafn fyrir skjóta og góða þjónustu
og umsvif fyrirtækisins hafa aukist
talsvert á síðustu árum. Með tilkomu
Líflands gefst Bændaþjónustunni nú
tækifæri til að efla enn sína starfsemi
á svæðinu og tryggja bændum fjöl-
breytt vöruúrval og framúrskarandi
þjónustu. Þjónusta fyrirtækisins
mun sem fyrr segir að mestu haldast
óbreytt á svæðinu, en ganga má að
því vísu að vöruúrvalið í versluninni
taki einhverjum breytingum.
Allar nánari upplýsingar veita
eftirtaldir:
Eymundur Þórarinsson,
Bændaþjónustan Saurbæ
Sími 892-8012.
Hávarður Sigurjónsson,
Bændaþjónustan Blönduósi
Sími 895-4307.
Sigurður Sæberg Þorsteinsson,
sölu- og markaðsstjóri Líflands
Sími 540-1109 | sigurdurs@
lifland.is
Mynd / HKr.
Handpoint-snjallgreiðslur
á íslenskan markað
Snjallgreiðslur Handpoint er ný
greiðslulausn sem veitir einyrkjum og
litlum og meðalstórum fyrirtækjum
möguleika á að taka á móti
kortagreiðslum án þess að greiða
mánaðargjöld líkt og nú tíðkast
með hefðbundnum posum. Lausnin
samanstendur af ókeypis Handpoint-
appi, snjallsíma eða spjaldtölvu og
Handpoint-snjallposanum, sem er
greiðslukortalesari.
Íslensk hugmynd
Handpoin t e r í s l ensk t
nýsköpunarfyrirtæki sem sérhæfir sig
í greiðslulausnum fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Fyrirtækið hefur verið
starfrækt frá árinu 1999 og starfa um
30 starfsmenn hjá fyrirtækinu, bæði
á Íslandi og í Bretlandi. Fyrirtækið,
sem var stofnað af skólabræðrum
úr verkfræðideild Háskóla
Íslands, hefur verið leiðandi í gerð
kortagreiðslulausna fyrir snjallsíma,
spjaldtölvur og handtölvur og gert
mörgum helstu flugfélögum Evrópu
kleift að taka við greiðslum um borð í
vélum sínum.
Fyrirtækið útbjó fyrstu færanlegu
kort- og pinnlausnina (e. mobile
chip&PIN) í heiminum, sem sett
var upp á Old Trafford hjá enska
knattspyrnufélaginu Manchester
United árið 2006. Handpoint hefur fyrst
og fremst þjónustað erlendan markað
en með tilkomu kort- og pinn á Íslandi
hefur fyrirtækið nú boðið lausnir sínar
hér heima, bæði fyrir smáa og stóra
söluaðila.
Alþjóðleg vottun
Handpoint hlaut nýverið alþjóðlega
vottun fyrst allra kortafyrirtækja í
heiminum.
Snjallgreiðslur Handpoint fengu
á dögunum alþjóðlega öryggisvottun
(PCI-P2PE) frá Alþjóðlegu korta-
öryggisstofunni, PCI, og er Handpoint
fyrst fyrirtækja í heiminum til að fá
slíka „mobile POS“ lausn vottaða.
„Snjallgreiðslur virka þannig
að þegar vara eða þjónusta er seld
slær söluaðili inn upphæðina á eigin
snjallsíma og réttir viðskiptavininum
snjallposann sem stingur korti í og
slær inn pinnið. Posinn les kortið og
flytur greiðsluna með öruggum hætti
í greiðslumiðlunarkerfi Handpoint.
Kvittun er síðan send í tölvupósti eða
með smáskilaboðum til viðskiptavinar
og einföldu greiðsluferli er lokið,“ segir
Davíð Guðjónsson, framkvæmdastjóri
Handpoint.
Lítil, létt og ódýr lausn fyrir
söluaðila á ferðinni
„Snjallgreiðslur eru hannaðar fyrir lítið
og létt tæki sem auðvelt er að hafa með
sér á ferðinni og hentar því ákveðnum
hópum vel eins og iðnaðarmönnum,
ferðaþjónustu aðilum, farand-
sölumönnum og öðrum seljendum,“
segir Davíð. „Með þessari lausn erum
við að veita smærri söluaðilum aðgengi
að greiðslulausn sem sniðin er að þeirra
þörfum en einungis eru greidd gjöld
þegar söluaðilinn hefur sjálfur tekjur af
sölu síns varnings eða þjónustu. Ekki
er um fastar mánaðargreiðslur að ræða
sem þarf að greiða þótt engin viðskipti
hafi átt sér stað, líkt og tíðkast með
hefðbundna posa. Lausnin hentar því
þeim vel sem eru í árstíðabundnum
og strjálum viðskiptum,“ segir Davíð.
Sprotafyrirtækið Kanína ehf. leitar
nú að hentugu húsnæði til að byggja
upp kanínueldi. Þarna er um að
ræða sprotafyrirtæki í Húnaþingi
vestra sem ræktar kanínur til
manneldis. Markmið er að vera
með 250 ræktunardýr og rúmlega
6.000 slátrunardýr árlega frá og
með árinu 2015.
Birgit Kostizke stofnaði fyrirtækið
haustið 2011 og þá var staðan þannig
að kanínurnar voru einungis fjórar.
Ræktun undanfarinna ára byggir á að
því er hún segir „litlum en hressum“
ræktunarhópi. Markvisst hefur verið
unnið bæði á sviði markaðsaðgerða
sem og hvað slátrun varðar. Meðal
annars hefur verið prófað að búa til
leður og er árangurinn að hennar sögn
góður.
Staða mála er nú þannig að í
ræktunarhópnum eru um 50 dýr og
rúmlega 220 ungar á ýmsum aldri,
allt frá nýfæddum og upp í að verða
aðeins stálpaðir. „Og kanínurnar verða
að halda áfram að fjölga sér, sem þær
auðvitað gera,“ segir Birgit.
Hugmyndin um að rækta kanínur
til manneldis er ný hér á landi en Birgit
bætir um betur því hún ræktar kanínur
í hópum og leyfir þeim að lifa eins
konar „fjölskyldulífi“ í rúmgóðum
stíum þar sem þær geta hreyft sig, lifa
á náttúrulegu fóðri og fá að jafnaði
lengri líftíma en kanínur sem ræktaðar
eru til manneldis í Evrópu.
Vantar stórt útihús
Birgit hefur fullan hug á að halda
ræktunarstarfi sínu áfram og byggja
ræktunarhópinn enn frekar upp og
segir því brýnt að finna áhugasama
samstarfsaðila til að taka þátt í
kanínuævintýrinu með sér. „Við
þurfum að finna stórt útihús með
vatns- og rafmagnstengingu sem
hentað gæti fyrir kanínuræktunina. Ef
slíkt hús finnst mun fyrirtækið sjá um
allar breytingar, þ.e. að laga húsnæðið
að þörfum kanínuræktunarinnar,“
segir Birgit.
Hún leitar einnig að áhugasömu
fólki sem er tilbúið að kynna sér
þessa nýju búgrein og setja sig inn
í þau störf sem henni fylgja. Eins
leitar hún áhugasamra fjárfesta sem
eru tilbúnir að taka þátt í að hrinda
þessari nýsköpunarhugmynd hennar
í framkvæmd af fullum krafti. Hún
bendir þeim sem áhuga hafa á að hafa
við sig samband, en m.a. er hægt að
senda henni tölvupóst á netfangið
info@kanina.is.
Sprotafyrirtækið Kanína ehf. í Húnaþingi vestra:
Leitar að hentugu húsnæði og
fjárfestum til að byggja upp