Bændablaðið - 20.06.2013, Page 13
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júní 2013 13
Pólmælar
stafrænir og
með ljósum
LEIÐANDI Í
RAFGIRÐINGUM
Lífland verslun Reykjavík | Lynghálsi 3
110 Reykjavík | sími 540 1125
Lífland verslun Akureyri | Lónsbakka
601 Akureyri | sími 540 1150
Sölumenn og ráðgjafar Líflands
eru til taks í síma 540 1100.
lifland@lifland.is
www.lifland.is
Randbeitarstaurar
létta þér verkið
Fire Sprite rafstöð
með innbyggðum spegli
Hotline Soper Eagle
spennir fyrir 220V
Jarðleiðslur
25, 50 og 100 m
Hliðhandföng,
teygjuhlið og gormahlið
Einangrarar
í úrvali
Randbeitarþræðir
í ýmsum lengdum og gerðum
Hotline Raptor
fyrir 6V, 12V
og 220V
Úrval MTD sláttuvéla
Verð frá
... færðu hjá okkur
Græjurnar í garðinn
345.000Verð frá
49.000
Verð frá
4.100
Verð frá
11.000
ÞÓR HF | Reykjavík: Krókhálsi 16 | Sími: 568-1501 | Akureyri: Lónsbakka | Sími: 568-1555 | www.thor.is
Í haust kemur út hjá bóka-
forlaginu Veröld sagnabálkur þar
sem Guðni Ágústsson, fyrrverandi
landbúnaðarráðherra og
formaður Framsóknarflokksins,
er í aðalhlutverki. Bókin er unnin
í nánu samráði við Guðna, en
hann er löngu orðinn goðsögn í
lifanda lífi.
Guðni er annálaður sagnamaður,
enda njóta fáir viðlíka vinsælda
sem tækifærisræðumenn, auk þess
sem miklar sögur ganga um hann
sjálfan. Þá hafa menn löngum
hermt eftir Guðna í flutningi á
sögum af honum og hefur það þótt
nokkur prófraun á hæfni þeirra að ná
Brúnastaðaröddinni með þreföldu
erri.
Í bókinni mun Guðni segja sögur
af sjálfum sér og öðrum, sögur af
forvitnilegu fólki sem hann hefur
mætt á lífsleiðinni, óþekktum
bændum í Flóanum jafnt sem þjóð-
kunnum stjórnmálamönnum; þarna
verða sögur af kynlegum kvistum
og vammlausum embættismönnum,
skrautlegar sögur af forystufé á
Suðurlandi og dularfullum draum-
förum, safaríkar sögur af samherjum
og andstæðingum í pólitík og þar
fram eftir götum. Bókin verður því
sannkölluð sagnaveisla.
Líklega eru fáir betur til þess
fallnir að segja sögur af Guðna
en hann sjálfur. Þó er eins og fyrr
segir vitað að meðal þjóðarinnar
ganga af honum sögur sem hann
annaðhvort man ekki eða hefur
kosið að gleyma – nema þær hafi
kannski aldrei gerst! Því biðlar
Veröld nú til Íslendinga um að
senda sögur af Guðna Ágústssyni
á netfangið gudnasogur@verold.is.
Fullum trúnaði er heitið. Hjá Veröld
verður síðan farið yfir sögurnar og
þær búnar til prentunar í stíl sögu-
hetjunnar.
Lumar þú á Guðnasögum?
Fyrsta tölublað Skógræktarritsins
árið 2013 er komið út. Að venju er
þar að finna fjölbreyttar greinar
um allt sem við kemur skóg- og
trjárækt, hagnýtar leiðbeiningar
í bland við sögulegan fróðleik og
niðurstöður rannsókna á þessu
sviði.
Megingrein Skógræktarritsins
að þessu sinni nefnist ,,Ástand
skóga heimsins“ og er eftir Mette
Löyche Wilkie, deildarstjóra á
skógræktarsviði Matvæla- og
landbúnaðar stofnunar Sameinuðu
þjóðanna (FAO). Í samantektinni
greinir hún frá helstu niðurstöðum
úr mati á hnattrænum auðlindum
skóga árið 2010, en FAO vinnur slíka
samantekt á fimm ára fresti.
Sigurður G. Tómasson ritar
fróðlega grein um Rauðavatnsstöðina,
en hún markaði upphaf skipulagðrar
skógræktar í
Reykjavík og
er með fyrstu
skógræktar-
tilraunum á
landinu. Með
greininni eru
birtar myndir
af leifum
stöðvarinnar,
sem enn eru
greinilegar.
Af öðru
efni í þessu
tö lub lað i
má nefna
h a g n ý t a
grein um
skipulag
trjáræktar
á sumar-
bústaða lóðum, grein um tilrauna-
verkefnið Yndisgarða og tvær
fróðleg greinar um
handverk og smíðar
úr innlendum
grisjunarvið. Þá
birtist áhugaverð
flokkun Björns
Trausta sonar land-
fræðings á flatarmáli
skóglendis eftir
sveitarfélögum og
skógræktarfélögum
(sjá nánar í viðhengi).
Frækornið, fræðslu-
rit Skógræktarfélags
Íslands, fylgir með
S k ó g r æ k t a r r i t i n u .
Þetta er 31. Frækornið
sem kemur út og fjallar
um ræktun hlíðaramals
(hunangsviðar) og nytjar
sem hafa má af plöntunni.
,,Ástand skóga heimsins“
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2013
1. tbl.
SKÓGRÆKTARFÉLAG ÍSLANDS
BJÖRGVIN SIGURÐSSON | GRAPHIC DESIGNER FÍT
ÁSVEGI 17 | 104 REYKJAVÍK | ICELAND
T: +354 588 3436 | M: +354 663 0677 | E