Bændablaðið - 20.06.2013, Blaðsíða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júní 2013
„Aðalvandamálið er að fá vottaðan
hænsnaskít. Við fáum okkar skít úr
Rangárvallarsýslu og í raun er um
mjög lífrænt ferli að ræða í okkar
framleiðslu þó að hún sé ekki vottuð.
Svo notum við rotmassann sem
gengur af í sveppaframleiðslunni
sem áburðargjafa í kálræktina í
Hvítárholti,“ segir Georg Ottósson,
framkvæmdastjóri Flúðasveppa,
um það hvort hann hyggist ekki
sækjast eftir lífrænni vottun nú
þegar framleiðsluaðferð hans sé
þegar svo að segja lífræn. Hann
rekur einnig Garðyrkjustöðina
Jörfa á Flúðum. „Við stefnum að
því eftir sem áður,“ bætir Georg
við.
Á lóð Flúðasveppa eru framkvæmdir
nú í fullum gangi, en verið er að reisa
nýtt hús við hlið aðalbyggingarinnar
sem mun að hluta til hýsa moltugerðina
(rotmassaframleiðsluna) sem svepprnir
eru svo ræktaðir í. Um talsverða
fjárfestingu er að ræða og áætlar
Georg að kostnaður muni nema um
100 milljónum króna.
„Hálmur er lykilhráefni í moltu-
gerðinni okkar og við fáum hann bæði
úr eigin ræktun, hjá öðrum kornrækt-
endum og svo höfum við sóst eftir því
hjá hestamönnum í Rangárvallasýslu
að fá hjá þeim hálmblandaðan hrossa-
skít – sem er í raun eitt það besta hrá-
efni sem við eigum kosta á. Eina hrá-
efnið sem þarf svo til viðbótar er vatn
og svo er þetta látið gerjast þangað til
moltan er tilbúin til að gott sé að rækta
sveppi í henni. Moltuframleiðslan er
þannig fóðurframleiðsla fyrir svepp-
ina. Stefnt er að því að nýja húsnæðið
verði tilbúið í haust en með því mun
aðstaðan stækka um þrjátíu prósent,
auk þess sem betri tækni verður notuð
við moltugerðina. Þá verður húsnæðið
útbúið þannig að hægt verður að nota
allt afgangsvatn. Því er safnað saman í
sérstaka þró og vatnið síðan endurnýtt,
en það var ekki hægt áður. “
D-vítamínríkir sveppir
„Fyrstu niðurstöður lofa mjög góðu
og eru í raun framar mínum vonum,“
segir Georg um mælingar á D-vítamín
innihaldi sveppa í tilraunaverkefni
hans á ræktun slíkra sveppa. „Þegar
sumri fer að halla er ég ákveðinn í
að skoða það að setja þá á markað.
D-vítamín framleiðsla sveppana fæst
hreinlega með því að lýsa þá. Við
það dökknar húðin á sveppunum
og því hef ég ákveðið að nota
kastaníusveppina í þetta því þeir eru
þegar brúnleitir. Það merkilega hefur
komið í ljós að sveppahúðin vinnur
eins og og húðin á mannfólkinu –
húðfrumurnar bregðast við ljósi
þannig að D-vítamín framleiðsla
hefst. Niðurstöðurnar sem við fengum
nýlega í hendur sýna að framleiðslan
sjöfaldaðist. Það þýðir að ef þú borðar
í kringum 250 grömm af þessum
sveppum daglega – sem er ein askja
– færðu dagsþörfina af D-vítamíni eins
og hún er skilgreind í dag,“ útskýrir
Georg og áréttar að enn sé þessi ræktun
á tilraunarstigi.
Við höfum verið í samvinnu við
Matís með þessar tilraunir og segja
má að þar hafi niðurstöðurnar komið
skemmtilega á óvart. Þeir hafa verið
milliliður milli mín og rannsóknar-
aðilans í Svíþjóð. Þetta er spennandi
verkefni og ég var alveg ákveðinn í því
að ef það kæmu jákvæðar niðurstöður
út úr þessu núna þá myndi ég halda
áfram með það. Þarna er ekki verið að
tala um viðbætt D-vítamín heldur er
það fengið í raun á náttúrulegan hátt.
Fyrst þegar ég heyrði af sambærilegum
tilraunum hélt ég að það væri einhvers
konar vísindaskáldskapur, því mín
reynsla sagði mér að sveppir þrifust
best í hálfgerðu myrkri. Ég er enn að
þreifa fyrir mér með fyrirkomulag
lýsingarinnar, ljósmagn og þess háttar.
En mér sýnist að það gæti orðið úr að ég
lýsti bara þegar búið væri að tína þá – á
einhvers konar mjög hægu færibandi.
Það kom enda í ljós að það er ekki þörf
að lýsa þá á meðan þeir eru að vaxa.“
/smh
Hönnunarsjóður Auroru:
Úthlutaði 9,6 milljónum til
hönnunar níu verkefna
Hönnunarsjóður Auroru úthlutaði
hinn 30. maí 9,6 milljónum til
níu hönnunarverkefna. Þetta er
tíunda úthlutun úr Hönnunarsjóði
Auroru, sem hóf starfsemi í byrjun
árs 2009. Að þessu sinni bárust
sjóðnum rúmlega 60 umsóknir
af öllum sviðum hönnunar.
Umsóknirnar báru þess merki að
mikil gróska og framþróun er í
verkefnum hönnuða á Íslandi.
Hjá sjóðnum er lögð áhersla á að
styðja verkefni þar sem umsækjendur
hafa skýra sýn og markmið. Í auknum
mæli er farið að meta umsóknir út
frá sjálfbærni og samfélagslegum
gildum, að því er fram kemur í
tilkynningu frá sjóðnum
Í þessari úthlutun eru verkefnin
af margvíslegum og ólíkum toga.
Má þar nefna þróun þarabaða þar
sem umsækjendur stefna að því að
setja upp tilraunaverkefni í Gróttu á
Seltjarnarnesi í sumar, handritsgerð
og hönnun bókverks fyrir
spjaldtölvur sem byggir á ævintýrinu
um Búkollu, vöruþróun á matarstelli
á leirkeraverkstæði í Reykjavík og
myndbandsgerð um „möguleika
í þróun prjónsins“ en myndband
þetta verður notað við kennslu í
vinnusmiðju. Þá eru verkefni eins
og bókverk um verk og hugmyndir
Kristínar Guðmundsdóttur,
fyrsta híbýlafræðings landsins,
og uppbygging gagnagrunns um
markverða umhverfishönnun
landslags arkitekta á höfuðborgar-
svæðinu. Auk þess má nefna
markaðssetningu á barnafatnaði sem
hannaður er í anda „slow fashion“,
verkefni sem sjóðurinn veitti styrk til
vöruþóunar á síðasta ári. Stuðningur
við nýútskrifaðan fatahönnuð til
starfsnáms í Hollandi, auk þess sem
sjóðurinn heldur áfram stuðningi við
Hönnunarmiðstöð Íslands vegna
uppbyggingar HönnunarMars
hátíðarinnar og skrásetningar við-
burðarins.
Þeir hönnuðir og hönnunar-
verkefni sem að þessu sinni hlutu
styrk eru:
SLÍJM SF. fékk 1,5 milljónir
Á bak við fyrirtækið SLÍJM SF
standa þær Kristín Gunnarsdóttir
hönnuður, sem einnig hefur lagt stund
á nám í heimspeki, og Edda Kristín
Sigurjónsdóttir, sem er hönnuður og
lagði í námi sínu áherslu á samspil
mannlegrar hegðunar og umhverfis.
Þær fá styrk til að undirbúa og
framkvæma mannfélagslegt
rannsóknar verkefni sem byggir á
tilraunum með samtalsvettvang og
ólíkum leiðum í menningarlegri
þróun samfélags.
Þær munu í þeim tilgangi setja
á fót Slíjm-þaraböð sem opin verða
almenningi í Gróttu í sumar og
standa fyrir Slíjm-salonkvöldum
innblásnum af Salonmenningu fyrri
tíma.
Siggi Eggerts fékk 1,5 milljónir
Siggi Eggerts, hönnuður og
listamaður, fær styrk til vinnu við
gerð gagnvirks bókverks sem byggt
er á ævintýrinu um Búkollu.
Postulína fékk 1 milljón
Guðbjörg Káradóttir keramik-
hönnuður og Ólöf Jakobína Ernudóttir
innanhússarkitekt fá styrk til hönnunar,
þróunar og undirbúnings framleiðslu á
matarstelli sem til stendur að framleiða
á leirkeraverkstæði þeirra í Reykjavík.
Steinunn Sigurd ehf.
fékk 1,5 milljónir
Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður
fær styrk til áframhaldandi þróunar á
prjónavinnustofu og gerð myndbands
um möguleika í þróun prjóns.
Vinnustofan eykur skilning fólks á
menningarlegu og listrænu gildi prjóns.
Halldóra Arnardóttir
fékk 1,2 milljónir
Halldóra Arnardóttir er doktor í
listfræði með sérþekkingu á hönnun
og byggingarlist og meðeigandi
teiknistofunnar SARQ arkitektar á
Spáni. Hún fær styrk til rannsóknar- og
hönnunarverkefnis vegna undirbúnings
og gerð bókar um verk og hugmyndir
Kristínar Guðmundsdóttur, fyrsta
híbýlafræðings landsins.
Barnafatalínan AS WE GROW fékk
1 milljón
Margrét Hlöðversdóttir lögfræðingur
og fata- og textílhönnuðirnir Guðrún
Ragna Sigurjónsdóttir og María Th.
Ólafsdóttir fá styrk til markaðs setningar
erlendis á barnafatalínunni As We
Grow.
FÍLA fékk 400 þúsund
Félag íslenskra landslagsarkitekta fær
styrk til uppbyggingar og þróunar
gagnagrunns, en félagið hefur
hleypt af stokkunum heimasíðunni
xland.is með samantekt um
markverða umhverfishönnun sem
landslagsarkitektar hafa unnið á
höfuðborgarsvæðinu.
Sunna Örlygsdóttir fékk
500 þúsund
Sunna Örlygsdóttir fatahönnuður fær
styrk til starfsnáms hjá fyrirtækinu
MariaLux í Amsterdam þar sem hún
verður undir handleiðslu hönnuðarins
Lilian Driessen.
Hönnunarmiðstöð
fékk 1 milljón
Hönnunarmiðstöð Íslands fær styrk til
skrásetningar og gerð kynningarefnis
um HönnunarMars hátíðina, meðal
annars til heimildavinnu, myndatöku
og skrásetningar fyrir gerð
kynningarmyndar um hátíðina.
Næsta úthlutun í október
Næst verður úthlutað úr sjóðnum
í október og er umsóknarfrestur til
15. september. Áfram er unnið að
undirbúningi nýs verkefnis á sviði
byggða og íbúðaþróunar sem var kynnt
í Hannesarholti á HönnunarMars 2013
undir heitinu HÆG BREYTILEG ÁTT.
Sigríður Bjarnadóttir, búfjár-
fræðingur og ráðunautur
hjá Ráðgjafarmiðstöð land-
búnaðarins, hefur verið ráðin
mjólkur eftirlitsmaður SAM á
Norður- og Austurlandi frá 1.
september nk. Sigríður tekur við
af Kristjáni Gunnarssyni, sem þá
lætur af störfum eftir 32 ára starf.
Sigríður lauk meistaraprófi
í búfjárfræði frá Landbúnaðar-
háskólanum í Ási í Noregi árið
1993, öðlaðist kennsluréttindi
frá Háskólanum á Akureyri árið
2002 og lauk námi í hestafræði frá
Landbúnaðarháskóla Íslands og
Hólaskóla árið 2010. Hún hefur
starfað sem ráðunautur hjá Búgarði
á Akureyri frá 2005. Sigríður býr í
Hólsgerði í Eyjafjarðarsveit ásamt
fjölskyldu sinni.
Landssamband kúabænda býður
Sigríði velkomna til starfa á nýjum
vettvangi og óskar henni velfarnaðar.
Jafnframt eru Kristjáni Gunnarssyni
þökkuð framúrskarandi vel unnin
störf í þágu íslenskra kúabænda
undanfarinn aldarþriðjung.
Sigríður Bjarnadóttir ráðin mjólkur-
eftirlitsmaður á Norður- og Austurlandi
D-vítamínríkir sveppir á markað í haust
Hálminum keyrt í tætarann.
Georg gerir ráð fyrir að byggingin verði tilbúin um mánaðamótin júlí-ágúst.
Georg sýnir blaðamanni inn í rými hins nýja húsnæðis, þar sem moltufram-
leiðslan mun að hluta til fara fram. Lokastig rotmassaframleiðslunnar er að
fjarlægja ammóníak úr honum, að svo búnu er hægt að sá sveppagrónum
Myndir / smh