Bændablaðið - 20.06.2013, Page 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júní 2013
Ný verksmiðja Fliegl Agrartechnik í Müldorf í Bæjaralandi er staðsett um 150 km norðaustur af borginni München. Mynd / Fliegl
Þýska fyrirtækið Fliegl framleiðir meðal annars tækjabúnað fyrir landbúnaðinn og er í örum vexti:
Verkefni eins manns sem varð
að stórfyrirtæki á heimsvísu
Saga fyrirtækisins Fliegl í Þýska-
landi hófst með frumkvöðlastarfi
stofnandans Josef Fliegl eldri við
að hanna og þróa ýmsan búnað
sem gagnast gæti bændum.
Árið 1970 keypti hann ásamt
fjölskyldu sinni sveitabæ í Kastl í
Bæjaralandi í Suður-Þýskalandi.
Þar hugsaði hann sér bæði að
geta unnið að smíði tækja til
landbúnaðar og einnig að skapa
sér aðstöðu til hönnunar- og
frumkvöðulstarfa. Nú er Fliegl
orðið að fyrirtækjasamsteypu
með starfsemi í fjölmörgum
löndum og selur vörur sínar til
allra heimsálfa. Hérlendis eru það
trúlegast Fliegl-malarvagnarnir
sem eru best þekktir.
Bændablaðinu var ásamt
bændablöðum um alla Evrópu
boðið að senda fulltrúa sinn á opnun
glænýrrar og mjög fullkominnar
verksmiðju Fliegl Agrartechnik í
Müldorf í Bæjaralandi í fyrri viku.
Hún er á um 30 hektara lóð, þar sem
hjarta fyrirtækisins slær í dag.
Framkvæmdir við verksmiðjuna
hófust í nóvember 2009, en þar
er hægt að framleiða 300 til 500
vagna og tæki af ýmsum stærðum
á mánuði. Þessi verksmiðja er
aðalframleiðslufyrirtækið sem
framleiðir ýmsan búnað fyrir öll
fyrirtækin í Fliegl-fjölskyldu-
samsteypunni. Yfir 800 manns vinna
nú hjá framleiðslufyrirtækjum Fliegl
í Þýskalandi, Ungverjalandi og Spáni
auk söluskrifstofa víða um heim.
Um 85.000 fermetra verksmiðja
Í höfuðstöðvum fyrirtækisins í
Müldorf starfa um 280 manns.
Nýja verksmiðjan, sem er um
85.000 fermetrar og 900.000
rúmmetrar, er byggð úti í sveit með
landbúnaðarstafsemi allt um kring.
Það eru því hæg heimatökin að gera
prófanir á þeim búnaði sem þarna
er framleiddur. Gríðarlegt magn
af stáli er notað við framleiðsluna
í Müldorf, en þar er hægt að hafa
6.000 tonn af stáli á lager hverju
sinni. Íhlutalager er með 27 metra
lofthæð og þar eru um 18.000 tonn af
ýmsum hlutum í rekkum sem hægt er
að sækja með sjálfvirkum lyfturum.
Þar að auki er dekkjageymsla undir
þaki fyrir um 12.000 dekk, en hún
var þegar sprungin þegar blaðamenn
bar að garði þó að verksmiðjan sé
rétt komin í gang. Því eru gríðarlegar
dekkjastæður hafðar á plani fyrir utan
verksmiðjuna. Gólfhitun er á 20.000
fermetra plássi í verksmiðjunni en alls
þarf að kynda upp 42.000 fermetra
svæði. Stórt óupphitað húsnæði er
einnig fyrir tilbúin tæki á lager.
Stofnað 1975
Fyrsta fyrirtækið stofnaði Josef
Fliegl í Kastl árið 1975. Með
örfáum starfsmönnum var þar unnið
að endursmíði á sturtuvögnum og
framleiðslu á mykjutönkum og síðar
stórum mykjudreifurum. Á níunda
áratugnum komst virkilegur skriður
á tækjahönnunina með þróun á
steypuhrærivélum og framleiðslu á
eigin sturtuvögnum. Þetta var líka
fyrsta skrefið inn í flutningageirann.
Við fall Berlínarmúrsins sáu menn
mikil tækifæri í opnun landamæra
Þýskalands til austurs. Árið 1991
stofnaði Josef fyrritækið Fliegl
Fahrzeugbau (vélaframleiðslu) í
Triptis í Þýringalandi (Thüringen).
Þar eru nú framleiddir vagnar fyrir
flutningaverktaka á 12 hektara lóð.
„Push-off“ tæknin markaði
tímamót í starfseminni
Uppfinning á „push-off“ (ýtt af)
tækninni á tíunda áratugnum markaði
tímamót í starfsemi fyrirtækisins. Í
stað hefðbundinna sturtuvagna sem
losuðu farminn af með því að lyfta
pallinum var fundin upp búnaður
sem ýtti hlassinu af láréttum palli,
sem lágmarkaði hættu á að menn
veltu vögnunum á ósléttu landi
þegar affermt var. Þetta skiptir miklu
máli þegar farmurinn er þungur.
Búnaðurinn sem ýtir hlassinu af
vögnunum er afar öflugur, enda þarf
hann að ráða við allt að 90 rúmmetra
hlass á stærstu vögnunum.
Þar sem stálið í vögnunum vegur
einnig sitt (70 rúmmetra stálvagn
vegur 10,7 tonn) fóru Fliegl-menn
fljótlega að hanna og selja slíka vagna
sem að hluta eru byggðir úr áli og
sérstyrktu stáli til að mæta kröfum um
orkusparnað. Hægt er því að fá slíka
vagna í ýmsum útgáfum, eins, tveggja
eða þriggja öxla og með burðargetu
upp á allt að 26 tonn.
Fyrstu stóru „Fliegl push off“
vagnarnir komu svo á markað árið
1999. Fyrir utan augljóst notagildi
fyrir verktaka sáu menn þar gríparleg
tækifæri í notkun slíkra vagna í
landbúnaði. Það gat átt við um
jarðvegsflutninga, heyflutninga,
kornflutninga, viðarkurlsflutninga og
ýmislegt annað. Ekki þurfti lengur
mikla lofthæð í kornskemmum til að
hægt væri að sturta hlassinu af, aðeins
að bakka vagninum inn og hlassinu
var ýtt af láréttum vagninum.
Vegna mikils vaxtar á fyrir-
tækinu er starfsemin flutt til Töging,
en í Kastl var opnuð miðstöð
landbúnaðargeira fyrirtækisins, Fliegl
Agro-Center, þar sem sala á ýmsum
landbúnaðartækjum og vélahlutum
fer fram auk þess sem varahlutalager
er í 25.000 fermetra húsnæði.
Sótt út fyrir landsteinana
Eftir árið 2000 hefur starfsemin
vaxið hratt og sérstaklega
framleiðslan í Töging. Opnuð var
útflutningsmiðstöð á Spáni undir
nafninu Fliegl Ibérica fyrir Suður-
Evrópu og Suður-Ameríku. Árið 2005
var tekin stækkun verksmiðjunnar í
Triptis Fliegl-Werk II. Á sama tíma
urðu breytingar á stjórn fyrirtækisins.
Börnin fimm eru hvert með sitt
fyrirtæki
Josef Fliegl eldri dró sig út úr
framleiðsluþættinum og fór að
einbeita sér að stefnumótun,
rannsóknum og þróunarstörfum.
Í stað þess að eiga á hættu að
fyrirtækið yrði að bitbeini fimm
barna sinna tók hann þá stefnu að
hvert barnanna sæi um sinn hluta af
starfseminni í sjálfstæðum félögum
en undir Fliegl-nafninu. Þannig tók
Josef Fliegl yngri við Agrartechnik-
fyrirtækinu í Müldorf, sem sér um
framleiðslu og hönnun á ýmsum
landbúnaðartækjum. Helmut Fliegl
er nú yfirmaður Fliegl Trailer í
Triptis, sem framleiðir ýmiss konar
flutningavagna. Johann Fliegl er
yfirmaður útflutningsfyrirtækisins
Fliegl Ibérica á Spáni og dóttirin,
Angelika Fliegl, er yfirmaður
Fliegl Agro-Center í Kastl. Þá er
Martin Fliegl yfirmaður Bau &
Kommunaltechnik í Müldorf, sem
er fyrirtæki í byggingariðnaði og
framleiðslu tækja fyrir sveitarfélög,
eins og götusópa og annað. Einnig
er hann yfirmaður fyrirtækis í
framleiðslu búnaðar fyrir skógar-
og timburiðnaðinn sem heitir Fliegl
Forsttechnik. Þannig eru öll börn Josef
gamla Fliegl orðin ábyrg fyrir rekstri
á sínum eigin sjálfstæðu fyrirtækjum
innan Fliegl-samsteypunnar.
Í miklum vexti
Fliegl hefur síðan verið að feta sig inn
á nýjar brautir, m.a. með aukabúnaði
sem tengir fyrirtækið inní framleiðslu
á lífgasi. Þar telja menn möguleika
á miklum vexti í framtíðinni. Í því
skyni var Fliegl Agro-Center Ost m.a.
stofnað í Triptis en í höfuðstöðvunum
í Kastl var stofnuð ný sölu-, markaðs-
og dreifingarmiðstöð. Hönnuðir Fliegl
Stofnandinn Josef Fliegl. Á þessum bóndabæ í Kastl hófst starfsemi Fliegl-fyrirtækisins árið 1975.
Tankar á stóra mykjudreifara eru soðnir saman með sjálfvirkum rafsuðuvélum. Myndir / HKr.