Bændablaðið - 20.06.2013, Qupperneq 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júní 2013
Heildarlausn!
www.bjb.is |
[ www.bjb.is ]
Önnur
a
Púst
Fáðu upplýsingar um stærðir og verðtilboð. Hafðu samband við
Piero Segatta, sérfræðing á sviði hjólbarða, sendu póst: piero@bjb.is
Federal Federal Federal
Vredestein
Vredestein
Sérstök fólkspíla, pallbíla- og jeppadekk, sérstök kerrudekk og einstök
fjórhjóladekk. Allt á einum stað. Vertu í hópi þeirra öruggu á gæðadekkjum frá BJB.
þróuðu síðan áfram búnað til að dreifa
lífrænum áburði, meðal annars við
að koma mykju niður í jarðveginn.
Einnig sjálfvirkan búnað til að fæða
gasvinnslustöðvar af hráefni. Þá er
tölvutæknin að ryðja sér til rúms
í framleiðslunni og hefur Fliegl
einkaleyfi á vigtunarbúnaði sem hægt
er að setja í alla mögulega vagna,
og tæki til að fylgjast nákvæmlega
með hve þungt kornið af akrinum
er, hversu þungt það er eftir að það
hefur farið í gegnum þurrkunarbúnað
Fliegl og svo framvegis. Þar er byggt
á vigtunartækni sem er íslenskum
fyrirtækjum ekki með öllu ókunn
og er beitt sömu grunnhugsun og
notuð var við þróun skipavoga Póls
á Ísafirði og Marels, sem þurfa að
sýna réttar tölur í miklum veltingi.
Í grunninn er ýtuvagnatækni
Fliegl sú sama og áður, en farið er
að nota slíka vagna í fleiri greinum
landbúnaðar og verktakastarfsemi.
Eru þeir m.a. sagðir hafa valdið
byltingu í jarðgangagerð og
malbikunar framkvæmdum.
Árið 2012 voru stofnaðar
söluskrifstofur í Norður-Ameríku,
Brasilíu, Tékklandi, Norður-Afríku
og í Úkraínu. Á Íslandi er fyrirtækið
RAG import export ehf. komið með
umboð fyrir Fliegl, en það er í eigu
Rafns Arnars Guðjónssonar. Eins
og fyrr sagði var svo opnun nýrrar
verksmiðju í Müldorf nýjasta afrek
þessa þýska fjölskyldufyrirtækis.
/HKr.
Gríðarstór dekkjalager fyrirtækisins sprengdi utan af sér húsnæðið á fyrstu
dögum starfseminnar.
Allur búnaður tilbúinna vagna er þrautprófaður áður en þeir fara úr húsi.