Bændablaðið - 20.06.2013, Qupperneq 25
25Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júní 2013
Nocria Arctic 14
Öfl ug varmadæla - japönsk gæði!
Loft í loft - Loft í vatn!
Heldur jöfnum hita við allar íslenskar aðstæður s
Sjálfvirk rakavörn, endurræsing og loftsíuhreinsun
Framleiðandi: Fujitsu General Kawasaki, Japan
Fujitsu er mun ódýrari
í rekstri en flestar aðrar tegundir varmadæla
Söluaðili á Íslandi
með sjö ára reynslu:
Stekkjarlundur ehf. - Sjá heimasíðu!
S í m a r : 6 9 5 2 0 9 1 / 8 9 4 4 3 0 2
V a r m a d æ l u r f r á F u j i t s u , P a n a s o n i c , M i t s u b i s h i o g T o s h i b a
B j ó ð u m u p p á V I S A o g M a s t e r c a r d r a ð g r e i ð s l u r
A
u
g
l.
S
ta
p
a
p
re
n
t
8 ára
ábyrgð!
í heimsókn og haldið námskeið
sem miðar að því að tengja börnin
náttúrunni í gegnum ræktun og
aðrar upplifanir.
Á þessu vori hóf ég samstarf
við áhugasamar ungar konur í
samtökum sem sem þær nefna
„Rækta“. Innan þeirra samtaka er
í þróun verkefni fyrir 6-13 ára börn
sem gengur út á að fræða þau um
ræktun matjurta og heilsusamlegt
mataræði. Það felur einnig í sér
að auka meðvitund barnanna um
umhverfismá og sjálfbæra þróun.
Síðustu sjö til átta árin hef
ég verið með matjurtanámskeið
fyrir fullorðna, þar sem ég legg
áherslu á lífræna ræktun með
verklegri kennslu. Ég hef líka
farið út á land með bæði fyrirlestra
og námskeið – og hafa þessir
viðburðir verið vinsælir og vel
sóttir. Á undanförnum árum hef
ég svo útvíkkað námskeiðahaldið
og verið með viðarnytjanámskeið,
þar sem fólki er kennt að nýta við
sem til fellur úr garðinum til að
flétta körfur, búa til skjólveggi
og klifurgrindur fyrir skriðplöntur
ýmiss konar. “
Ræktunin heima á Dalsá
Jóhanna er sjálf afkastamikill
ræktandi og sinnir flestum
verkum ein. Hún segir að sífellt
fleiri kjósi að rækta grænmeti sitt
í heimilisgarðinum, í reitum sem
leigðir eru af sveitarfélögum eða
á sumarhúsalandinu. „Það eru um
fjögur ár síðan ég hætti að vinna
í Hæfingarstöðinni Bjarkarási
[vinnustaður fyrir þroskahamlað
fólk í Stjörnugróf í Reykjavík]
sem kennari og ákvað að hefja
sjálfstæða ræktun hér heima á
Dalsá. Í Bjarkarási er lífrænt vottuð
matjurtaræktun og þar kynntist ég
því til fulls hvað felst í slíkri ræktun.
Ég ákvað sem sagt þá að nú væri
nóg komið af vinnu fyrir aðra og
síðustu vinnuárunum mínum ætlaði
ég að verja fyrir mig sjálfa – og
lét þannig drauminn minn rætast.“
Ræktar fyrir grasalækna
og matreiðslumeistara
Jóhanna er með fjölmargar
tegundir í ræktun. Hún selur
bæði forræktaðar plöntur snemma
sumars og svo eigin uppskeru; bæði
á sveitamörkuðum í nágrenninu og
við brúsapallinn sinn við heimreiðina
að Dalsá. Undanfarin sumur hefur
hún líka ræktað nokkrar tegundir
lækningajurta fyrir grasalækna og nú
í sumar hafa matreiðslumenn einnig
ásælst afurðirnar frá Dalsá til nota á
veitingastöðum sínum. /smh
Nokkrar „óvenjulegar“ tegundir eru í
ræktun á Dalsá. Hér er Jóhanna með
káltegundina Pak Choi.
lífrænt. Ræktun í gróðurhúsi hefur
þar verið allar götur frá 1954.
Engin lántaka fyrir byggingunni
Valdimar Ingi Guðmundsson,
forstöðumaður Sunnu segir að
byrjað hafi verið reisa húsið
síðastliðið sumar en aðdragandinn
hafi verið nokkuð langur. „Ég
byrjaði í raun að hugsa um þetta
strax þegar ég kom hingað til starfa
árið 2005 og þá byrjuðum við að
safna peningum, en engin lán voru
tekin til að fjármagna bygginguna.“
Ræktun í húsinu er komin í
fullan gang og að sögn Valdimars
er aðeins verið að þreifa fyrir sér
með möguleikana eftir stækkun.
„Við verðum að sjálfsögðu mest
með tómata og agúrkur, enda hafa
þær tegundir alla tíð verið ræktaðar
í húsum hér – og svo telst paprikan
líka til uppistöðutegunda hjá okkur.
Við höfum ekki lýst mikið, þannig
að aðal uppskerutímabilið okkar
hefur verið frá apríl og fram í lok
október. Við erum líka með mikið af
grænkáli og blaðlauk, auk þess sem
við erum að prófa okkur áfram með
kúrbít og eggaldin. Þá erum við líka
með talsvert af kryddjurtum; t.d.
basiliku og steinselju.“
Um síðastliðin áramót sam-
einaðist Ölur skógræktarstöð,
sem einnig er á Sólheimum,
Garðyrkjustöðinni Sunnu undir
nafninu Jurtastofa Sólheima –
og veitir Valdimar því fyrirtæki
einnig forstöðu. Ætlunin með
nýju fyrirtæki er að auka ræktun
berja og ávaxta, auk krydds og
lækningajurta. Á Sólheimum er
einnig nokkur útiræktun og eru
afurðirnar úr henni, aðallega
kartöflur og rófur, notaðar mest til
heimabrúks á svæðinu. Jurtastofa
Sólheima er sjálfstæð rekstrareining
en þó í eigu Sólheima. Valdimar
segir rekstur garðyrkjustöðvanna
hafa verið það góðan í gegnum
tíðina að þær hafi skilað einhverjum
tekjum til Sólhema og ekki hafi
þurft að borga með þeim.
Hann segir að þó að starfsemin
í nýja húsinu sé komin á fullt eigi
eftir að ganga frá nokkrum hlutum
til að fullkomna verkið. „Með
nýbyggingunni erum við komin
með gólfflöt upp á 1.790 fermetra
auk þess sem við erum með um 700
fermetra plasthús. Við erum að setja
upp millivegg í nýja húsið til að
betur verði hægt að stýra loftslagi í
hvoru hólfi fyrir sig. Svo erum við
enn að handstýra húsinu. Við erum
þó búin að kaupa tölvukerfi fyrir
húsið og lýsingu sem stefnt er á að
setja upp í haust og þá verður það
endanlega tilbúið. Þá verða einnig
settar upp gardínur til að minnka
ljósmengun frá húsinu auk þess sem
lýsingin mun nýtast betur.“
/smh
Dekkjainnflutningur
Viltu spara
Eigum á lager flestar stærðir traktors, vagna og
vinnuvéladekkja á góðu verði.
Einnig mikið úrval fólksbíla og jeppadekkja
á lager, 10% aukaafsláttur.
Vorum að fá sendingu af vörubíladekkjum, 22.5"
Verðdæmi:
Skotbómulyftaradekk 405/70-24 kr. 116.000 m/vsk
Traktorsdekk 380/70 R24 kr. 109.000 m/vsk
Traktorsdekk crossply 16,9-34 kr. 122.000 m/vsk
Verð gildir á afhendingastöðvar Landflutninga um allt
land.
Jason ehf
Hafnarstræti 88
Akureyri
Vinsamlegast hafið samband við
Ármann Sverrisson 896-8462 - e-mail manni@gott.is
Tryggva Aðalbjörnsson 896-4124
KYMCO
2013!
Enn betra og skemtilegra
hjól hlaðið aukabúnaði
Borgartún 36 • 105 Reykjavík
588 9747 • www.vdo.is