Bændablaðið - 20.06.2013, Síða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júní 2013
Heiti hátíðar Hvenær
Reykjanes
Grindavík
Jónsmessuganga
Grindavíkurbæjar og Bláa
lónsins. Gangan hefst kl.
20.30 og lagt verður af stað
frá Sundlaug Grindavíkur.
Gengið verður upp á fjallið
Þorbjörn, þar sem varðeldur
verður tendraður. Gangan
endar svo í Bláa lóninu, sem
er með opið til kl. 24.00.
22. júni
Vesturland
Snæfellsbær
Sólstöðuganga á Hreggnasa.
Hreggnasi, sem er 469 m á
hæð, er auðfarinn þótt nokkkuð
sé á fótinn á leið upp. Nánar á
www.ust.is/snaefellsjokull.
21. júní
Borgarnes Brákarhátíð. 29. júní
Akranes Írskir dagar. 4.-7. júlí
Vestfirðir
Ísafjörður
Við Djúpið tónlistarhátíð.
Á 10 árum hefur tónlistar-
hátíðin Við Djúpið skipað sér í
fremstu röð tónlistarviðburða
landsins.
18.-23. júní
Reykhólahreppur
Gengið um sveit. Útivistar-
helgi í Reykhólahrepp. Frekari
upplýsingar er að finna á
www.visitreykholahreppur.
is og á Facebook-síðu
helgarinnar, Gengið um sveit
– Reykhólahrepp.
21.-23. júní
Bolungarvík
Markaðshelgin í Bolungarvík.
Þúsundir mæta á markaðs-
torgið til að upplifa skemmti-
lega stemningu og mannlíf.
5.-6. júlí
Norðurland vestra
Húnaþing vestra
Sumarhátíðin Bjartar nætur-
fjöruhlaðborð. Frá byrjun
hefur þessi hátíð verið vegleg
matar- og menningarveisla.
22. júní
Skagafjörður
Jónsmessuhátíð á Hofsósi.
Nánar á www.visit-
skagafjordur.is.
22.-23. júní
Skagafjörður
Lummudagar. Héraðshátíð
sem íbúar vítt og breitt í
Skagafirði taka þátt í. Allar
upplýsingar um hátíðina
á www.facebook.com/
lummudagar.
27.-30. júní
Skagafjörður
Barokkhátíð á Hólum í
Hjaltadal. Hátíðin verður
nú haldin í fimmta sinn en
dagskrá hátíðarinnar er
jafnan lífleg og samanstendur
m.a. af tónlist, dansi og
fræðslu. Nánar á www.visit-
skagafjordur.is.
27.-30. júní
Norðurland eystra
Akureyri Flugdagur 22. júní
Akureyri Arctic Open golfmót. 27.-29. júní
Ólafsfjörður
Blue North Music Festival.
Hátíðin er elsta blúshátíð
landsins, en hún er haldin í
14. skipti í ár.
27.-29. júní
Akureyri Gönguvika á Akureyri. 1.-7. júlí
Akureyri N1-mót KA. 3.-7. júlí
Siglufjörður Þjóðlagahátíð á Siglufirði. 3.-8. júlí
Siglufjörður Þjóðlagahátíð á Siglufirði. 3.-8. júlí
Akureyri Pollamót Þórs. 5.-6. júlí
Siglufjörður
Reitir á Siglufirði. Verkefnið
er á vegum Alþýðuhússins á
Siglufirði.
5. - 14. júlí
Akureyri Glerárdalshringurinn. 6. júlí
Akureyri
Sumartónleikar í
Akureyrarkirkju nokkra daga í
júlímánuði.
6.-27. júlí
Austurland
Fljótsdalshérað
Skógardagurinn mikli.
Fjölskylduhátíð í
Hallormsstaðarskógi.
Upplýsingar á www.skogar-
bondi.is.
22. júní
Fljótsdalshérað
Samhliða þrautakeppni.
Mótið fer fram á svæði
Skotfélags Austurlands í
Eyvindarárdal á
Fljótsdals héraði. Upplýsingar
á www.skaust.net.
22. júní
Fljótsdalshérað/Egilsstaðir
Jasshátíð Egilsstaða á
Austurlandi í 25 ár. Elsta
djasshátíð landsins. Nánari
upplýsingar á www.jea.is.
26.-29. júní
Seyðisfjörður
100 ár afmælishátíð íþrótta-
félagsins Hugins.
28.-30. júní
Fjarðabyggð Hernámsdagurinn Reyðarfirði. 30. júní - 1. júlí
Fljótsdalshérað
500 metra mót. Mótið fer
fram á svæði Skotfélags
Austurlands í Eyvindarárdal á
Fljótsdalshéraði. Upplýsingar
á www.skaust.net.
4. júlí
Fljótsdalshérað
Safnadagur Minjasafns
Austurlands.
7. júlí
Fljótsdalshérað
Eistnaflug. Rokkmetalhátíð
í Neskaupstað. Nánari
upplýsingar á www.
eistnaflug.is
10.-13. júlí
Suðurland
Eyrarbakki
Jónsmessuhátíðin er
haldin á Eyrarbakka í kringum
Jónsmessuna ár hvert.
22. júní
Hveragerði
Garðyrkju- og blómasýningin,
Blóm í bæ.
22.-23. júní
Vestmannaeyjar Peyja Shellmót í fótbolta. 26.-29. júní
Selfoss
27. Landsmót UMFÍ verður
haldið á Selfossi þessa helgi.
4.-6. júlí
Selfoss
Ljósmynda- og plöntusýning
Sumarhússins og garðsins.
4.-6. júlí
Vestmannaeyjar Goslokahátíð. 40 ár frá gosi. 4.-7. júlí
Heimild: ja.is
Rétt er að taka fram að
listinn er ekki tæmandi.
Hann er m.a. unninn upp
úr gögnum frá ja.is.!
Þríþrautarkeppnin Öxi verður
haldin öðru sinni laugardaginn 29.
júní, en hú er kennd við hinn fræga
fjallaveg yfir Öxi á Austfjörðum
sem tengir saman Djúpavogshrepp
og Fljótsdalshérað. Keppnin
skiptist upp í sund, hlaup og
hjólreiðar. Dagskrá verður alla
helgina í Djúpavogshreppi í tilefni
keppninnar.
Keppnin hefst á 750 metra sjósundi
frá Staðareyri og suður yfir Berufjörð.
Þar er búningaaðstaða sem keppendur
geta notað og stíga þeir svo á reiðhjól
og hjóla inn Berufjarðardal og upp á
Öxi, 13 km leið.
Næst tekur við 19 km leið
hlaupandi yfir í Fossárdal og að
Eyjólfsstöðum, þar sem aftur er farið
á hjólin og hjóluð 18 km leið út á
Djúpavog.
Í boði er einstaklingskeppni auk
þriggja manna liðakeppni þar sem
menn skipta með sér greinum. Þar
að auki gefst fólki kostur á því keppa
í einstökum hlutum keppninnar.
Fjallvegurinn yfir Öxi tengir saman
Djúpavogshrepp og Fljótsdalshérað.
Vegurinn fer hæst í um 530 metra hæð
yfir sjávarmáli.
Auk þríþrautarkeppninnar, sem fyrst
var haldin í fyrra, er fjölbreytt dagskrá
í boði í Djúpavogshreppi um helgina.
Þar má nefna göngu á Búlandstind,
gúmmískóagöngu, sandkastalakeppni,
tásutölt og strandgolf.
Keppnisgjald er 3.500 krónur eða
1.500 krónur vilji menn aðeins spreyta
sig á einum legg. Nánari upplýsingar
eru á www.djupivogur.is eða facebook.
com/OxiKeppni. Skráning er til
föstudagsins 28. júní á oxi2013@
djupivogur.is.
Nánari upplýsingar um keppnina er
hægt að fá á oxi2013@djupivogur.is,
uia@uia.is, http://www.djupivogur.is/
oxi2013 og á Facebook https://www.
facebook.com/OxiKeppni.
Öxi þríþrautarkeppni:
Þátttakendur við endamark á Djúpavogi.
Jólasveinarnir í Dimmuborgum
bjóða gestum og gangandi í
heimsókn í helli í Dimmuborgum á
Jónsmessunótt. Heimboðið verður
23. júní frá kl. 22-01.00. Þá verður
mikil gleði þar sem jólasveinarnir
taka á móti gestum, spjalla, syngja
og segja sögur.
Það er óhætt að segja að mikil
spenna ríki í helli jólasveinanna
vegna þessa heimboðs, en þeir eru
á fullu að vinna í undirbúningi.
Til að hjálpa gestum að finna
hellinn verða sett upp skilti í
Dimmuborgum sem vísa veginn og
settur verður upp baukur þar sem
gestir eldri en 18 ára greiða kr. 1.000
fyrir heimsóknina.
Jólasveinarnir hvetja alla til að
taka nóttina frá og koma í heimsókn
í Dimmuborgir.
Nánari upplýsingar verða birtar á
vef Mývatnsstofu, www.visitmyvatn.
is
Dimmuborgir – Mývatnssveit:
Jólasveinarnir með heimboð á Jónsmessunótt