Bændablaðið - 20.06.2013, Page 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júní 2013
Fróðleiksbásinn
Vilmundur Hansen garðyrkjufræðingur
Tjörn í garðinum er óneitanlega
skemmtileg viðbót og eykur
möguleika til ræktunar. Fyrsta
skrefið er að velja tjörninni stað
og ákveða stærð hennar. Hægt er að
fá tilbúnar tjarnir í mismunandi
stærðum eða móta þær að vild
með gúmmídúk.
Mikilvægt er að ganga vel frá
undirlagi tjarnarinnar með jarðvegs-
skiptum til að minnka líkur á frost-
lyftingu. Tilbúnar tjarnir þurfa að
vera vel skorðaðar en gúmmídúkur
þolir betur hreyfingu á jarðvegi.
Sé ætlunin að hafa gróður eða
fiska í tjörninni er nauðsynlegt
að hún sé að minnsta kosti 80
sentímetra djúp og halda verður
vatninu á hreyfingu til að tryggja
eðlilegt flæði súrefnis. Best er að
gera það með dælu sem síar vatnið
og hreinsar. Nauðsynlegt er að
þrífa tjörnina reglulega, háfa burt
óhreinindi, halda sýrustigi vatnsins
stöðugu og þörungagróðri niðri.
Hvort sem keypt er tilbúin tjörn
eða hún búin til úr tjarnardúk er
undirlagið það sama. Tilbúnar tjarn-
ir eru formótaðar og því einungis
grafið fyrir þeim. Ef búin er til tjörn
með tjarnardúk er hægt að leika sér
meira með formið og móta tjörnina
eftir eigin höfði.
Undirbúningur og frágangur
Eftir að búið er að ákveða tjörninni
pláss og útlínur hennar hafa
verið mótaðar er hafist handa
við að grafa. Grafa skal 15 til 20
sentímetrum dýpra en áætluð dýpt
tjarnarinnar er. Í umframgröftinn
er síðan settur sandur sem tjörnin
eða dúkurinn hvílir á.
Vanalega eru tjarnir hafðar
grynnstar við bakkann og aflíðandi
út að miðju þar sem dýpið er mest.
Þegar grafið er fyrir heimamótaðri
tjörn getur verið gott að reka niður
hæl til að merkja hvar hún á að vera
dýpst og grafa í áttina að honum.
Sé hugmyndin að hafa stóran
stein eða steina í tjörninni skal móta
fyrir sæti sem þeir eru síðan látnir
standa í. Nauðsynlegt er að setja
millilag á milli steina og dúks, fínan
sand, filt eða steinull, til að verja
tjarnardúkinn skemmdum.
Að loknum greftri og mótun er
komið að því að leggja dúkinn í
tjörnina og ganga frá honum. Gott
er að láta svolítið af vatni renna í
tjarnarbotninn þannig að dúkurinn
setjist við botninn og lagi sig að
lögun tjarnarinnar. Að lokum er svo
gengið frá efri brún dúksins og hún
fergð og falin. Séu brúnir tjarnar-
innar aflíðandi er hægt að hylja þær
með möl en betra er að hafa fáa en
stærri steina úti í tjörninni til að
minnka líkurnar á þörungamyndun.
Tjarnardúkur er fáanlegur í
ýmsum þykktum og skal hafa
hann þykkari eftir því sem tjörnin
er stærri.
Vatnaliljur og annar gróður
Hægt er að rækta vatnaliljur í tjörn-
um, enda þola þær nokkurt frost ef
ekki botnfrýs í tjörninni. Mikilvægt
er að næst rótum vatnalilja sé þéttur
leir eða klesstur jarðvegur sem held-
ur vel að rótinni. Hætt er við því að
plönturnar drepist ef jarðvegurinn
skolast frá rótunum. Gróðursetja
skal vatnaliljur eins djúpt og kostur
er til að minnka líkurnar á að rótin
frjósi. Nykurrós (Nymphaea ‘Mrs
Richmond’) er sú vatnalilja sem
reynst hefur best hér á landi.
Auk vatnalilju er hægt að gróður-
setja margs konar innlendar plöntur
í tjarnir en hafa verður í huga að
flestar vatnaplöntur vaxa í grunnu
vatni. Dæmi um innlendar plöntur
sem rækta má í tjörnum eru hor-
blaðka, lónasóley og vatnsnál. Í
grunnu vatni við bakkann má rækta
hófsóley, laugadeplu og lækjadeplu
og að auki mýrarfjól, lyfjagras og
ýmsar starir og sef.
Fiskar í tjarnir
Undanfarin ár hefur færst í vöxt að
fólk sleppi fiskum í tjörnina í garðin-
um. Mörgum þykir það eflaust mikil
bjartsýni en reynslan sýnir að það er
hægt að hafa fiska í tjörnum allt árið.
Forsenda þess að garðafiskeldi takist
er að tjörnin sé þokkalega djúp og
að ekki botnfrjósi í henni. Ef hætta
er á frosti er gott að setja plastbolta
í tjörnina og fjarlægja hann þegar
hana hefur lagt. Þannig myndast
loftgat í gegnum ísinn ofan í vatnið.
Einnig getur verið nauðsynlegt að
strengja net yfir tjörnina til að varna
því að fuglar éti fiskana.
Algengustu skrautfiskar fyrir
tjarnir kallast koi. Þeir eru upprunnir
í Japan og Kína og þar er aldagömul
hefð fyrir ræktun þeirra. Koi eru til
í mörgum stærðum og fjölda lita og
litasamsetninga. Þeir eru þekktir fyrir
háan aldur og geta orðið 200 ára við
góð skilyrði.
Þeir sem aftur á móti vilja vera á
þjóðlegum nótum geta veitt hornsíli
eða murtu og sleppt í tjörnina.
Garðyrkja & ræktun
Tjörn með gróðri
og fiskum
Rétt lengd og breidd tjarnardúks
Til þess að fá rétta lengd dúks er hægt að notast við
eftirfarandi reikniformúlu:
Lengd margfölduð með 2x mestu dýpt tjarnar-
innar plús 60 sentímetrar.
Breidd margfölduð með 2x mestu dýpt tjarnar-
innar plús 60 sentímetrar.
Sé áætluð stærð á tjörn 3 metrar á lengd, 2 metrar
á breidd og mesta dýpi 60 sentímetrar, lítur dæmið
svona út: 3 metrar + 2 sinnum 0,8 metrar + 0,6
metrar, sem eru fyrir brúnina á tjörninni, og 2 metrar
+ 2 sinnum 0,6 metrar + 0,6 metrar fyrir brúnina.
Niðurstaðan er tjarnardúkur sem er 5,2 metrar að
lengd og 4,2 metrar að breidd.