Bændablaðið - 20.06.2013, Page 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júní 2013
Í byrjun júní var ársfundur
samtakanna NMSM (samstarfs-
vettvangur afurðastöðva í
mjólkuriðnaði á Norðurlöndunum
um mjólkurgæði) haldinn í
Tromsø í Noregi. Tilgangur þessa
samstarfs afurðastöðvanna er að
bera saman bækur sínar varðandi
frumframleiðslu mjólkur og miðla
af reynslu á milli landanna. Eitt
helsta verkefni samtakanna er að
halda saman tölfræði varðandi
helstu grunnþætti mjólkur-
framleiðslunnar.
50,3 kýr að jafnaði
Kúabúunum á Norðurlöndunum hefur
fækkað mikið á liðnum áratugum og
er áþekk þróun innan allra landanna.
Kúnum hefur hins vegar ekki fækkað
í sama hlutfalli og raunar stórlega
dregið úr fækkun kúa undanfarin ár.
Alls voru starfrækt 29.110 kúabú á
Norðurlöndunum um síðustu áramót
en fyrir 20 árum var fjöldi þeirra
97.552 og nemur fækkunin 70,2%.
Hlutfallslega hefur búum fækkað
mest í Danmörku frá árinu 1993, um
77,0%, en fækkun búanna hér á landi
er minnst, 53,4%. Athygli vekur að
68% kúabúa á Norðurlöndum eru í
Noregi og Finnlandi.
Heildarfjöldi norrænna kúa
var hins vegar 1,5 milljónir um
síðustu áramót og fækkaði kúnum
einungis um rúmlega sex þúsund
frá árinu 2011. Flestar eru kýrnar í
Danmörku eða 579 þúsund og þar er
meðalbústærðin einnig mest eða 153
kýr að jafnaði. Dönsku kúabúin eru
þau lang stærstu en þar á eftir koma
sænsk kúabú með 71 kú að jafnaði.
Minnstu búin á Norðurlöndum er hins
vegar að finna í Noregi þar sem að
jafnaði eru 23,4 árskýr.
11,6 milljarðar lítra
Heildarmjólkurframleiðsla þessara
kúabúa árið 2012 nam alls 11,6
milljörðum lítra sem er aukning frá
fyrra ári um 223 milljónir lítra. Þegar
horft er til framleiðslunnar trónir
dönsk mjólkurframleiðsla á toppnum
með 4,9 milljarða lítra en þar á eftir
koma sænskir kúabændur með 2,9
milljarða lítra innvegna í afurðastöð.
Meðalbúið á Norðurlöndum lagði
inn 400 þúsund lítra á síðasta ári og
jókst meðalframleiðslan um 8,1% á
milli ára. Meðalafurðir norrænna kúa,
reiknað út frá því að 92% framleiddrar
mjólkur endi í afurðastöð, jukust
einnig verulega á milli ára eða úr
8.436 lítrum í 8.635 lítra eða um 2,4%.
Mestar skýrsluhaldsafurðir í
Svíþjóð
Þegar skoðaðar eru meðalafurðir
kúa í skýrsluhaldi landanna fimm
kemur í ljós að meðalafurðirnar hér
á landi, 5.696 kg af orkuleiðréttri
mjólk, eru áberandi lægstar. Bilið í
næst afurðaminnstu kýrnar er 1.744
kg en næstafurðalægstu kýrnar á
Norðurlöndum er að finna í Noregi.
Afurðamestu kýrnar eru hinsvegar
í Svíþjóð og er meðalnyt þeirra
(orkuleiðrétt) 9.868 kg og vantar því
4.172 kg upp á afurðirnar hér á landi
til þess að ná að jafna þær sænsku.
Vegin meðalnyt allra skýrslufærðra
kúa á Norðurlöndunum árið 2012 var
9.029 kg af orkuleiðréttri mjólk, sem
er aukning um 189 kg frá árinu 2011.
Lægsta frumutalan enn í Noregi
Þegar mjólkurgæðin eru skoðuð
kemur fram að frumutalan er hæst
í Danmörku, en þar var meðaltalið
221 þúsund frumur/ml árið 2012.
Næsthæsta landið er Ísland með 209
þúsund frumur/ml en lægsta landið er
sem fyrr Noregur, þar sem frumu talan
var að jafnaði 128 þúsund frumur/ml
á síðasta ári.
Mest efnainnihald í Svíþjóð
Sænskar kýr náðu þeim árangri árið
2011 að komast fram úr þeim dönsku
við framleiðslu verðefna mjólkurinnar,
þ.e. í fitu- og próteinframleiðslu
miðað við efnamælingar á innveginni
mjólk til afurðastöðvanna. Þessu sæti
héldu þær einnig árið 2012 og bættu
raunar verulega í. Þannig framleiddi
meðal kýrin í Svíþjóð 756 kg af
verðefnum árið 2012 sem skýrist af
meðalmjólk með 3,45% próteini og
4,21% fitu. Hinar dönsku kýr eru þó
ekki langt undan með 726 kg verðefna
með meðalmjólk sem inniheldur
3,47% prótein og 4,28% fitu. Þriðja
sætið verma hinar finnsku kýr með
framleiðslu á 684 kg verðefna úr
meðalmjólk sem innihélt 3,39%
prótein og 4,15% fitu.
Kvígurnar bera elstar hér á landi
Margar fróðlegar upplýsingar komu
fram á fundinum þegar rýnt var í
skýrsluhaldsupplýsingar. Þannig
mátti t.d. sjá að íslenskar kvígur bera
elstar eða 29,2 mánaða gamlar en
þær dönsku bera yngstar eða 25,7
mánaða gamlar. Þá kom einnig fram í
samanburðinum að íslenskar kýr eru
frjósamar og halda vel. T.d. líða ekki
nema 90 dagar að jafnaði þar til kýr
festa fang hér á landi en í Finnlandi
tekur þetta mun lengri tíma eða 140
daga að jafnaði. Þetta skilar sér svo
aftur í því að meðaltals bil á milli
burða er lægst hér á landi eða 373
dagar að jafnaði.
Endurnýjunarhlutfallið
hæst í Noregi
Ýmsar fleiri áhugaverðar
niðurstöður komu fram, s.s. að
endurnýjunarhlutfall kúnna á Íslandi,
í Svíþjóð og í Finnlandi er lægst,
eða 37%. Í Danmörku er það aftur
heldur hærra, eða 39%, en í Noregi er
það langhæst, eða 43%. Þá kom fram
að sem fyrr eru flestir dauðfæddir
kálfar hér á landi, eða 12,1%, sem er
um helmingi hærra en í Danmörku,
sem er með næstflesta dauðfædda
kálfa. Flestir lifandi fæddir kálfar
koma svo í Noregi, en þar er hlutfall
dauðfæddra ekki nema 3,4%.
Gögn um heilbrigði sárvantar
Margar heilsufarsupplýsingar eru
skráðar á Norðurlöndunum þegar kýr
eða nautgripir eru meðhöndlaðir s.s.
júgurbólga, fóðrunarsjúkdómar og
fleira. Þá gefur lyfjaskráning mikil-
vægar upplýsingar um margskonar
vinnulag s.s. hlutfall geldstöðumeð-
höndlunar kúa og ótal fleira. Með
aðgengi að slíkum upplýsingum er
hægt að fara miklu dýpra í allan
samanburð og greina hvað sé að og
hvað megi betur fara. Fyrir rúmum
áratug var sett reglugerð hér á landi
um merkingar búfjár (nr. 427/2002)
en setning reglugerðarinnar skapaði
einmitt grunn þess að hægt væri að
hafa eftirlit með skráningu sjúkdóma
og lyfjanotkun og safna þessum
mikilvægu gögnum saman til frek-
ari úrvinnslu. Að þessar upplýsingar
skuli ekki enn vera nýtanlegar hér á
landi er auðvitað með ólíkindum og
nauðsynlegt að bæta úr því sem fyrst.
Snorri Sigurðsson
sns@vfl.dk
Nautgriparæktarsviði
Þekkingarsetri landbúnaðarins
í Danmörku
Utan úr heimi
Kúabúum á Norðurlöndunum
hefur fækkað um 70% á 20 árum
Frá Bæjaralandi í Þýskalandi. Mynd / HKr.
Ræktunarland víða um heim
safnast á æ færri hendur
Það eru ekki aðeins þróunarlönd
sem eru fórnarlömb þess að missa
yfirráð yfir ræktunarlandi sínu.
Stórfyrirtæki, fjármálamenn
og alþjóðlegir sjóðir eru einnig
stórkaupendur á jarðnæði víða um
heim. Samþjöppun eignarréttar
á landi fer hraðvaxandi, segir í
hollendskri rannsóknarskýrslu
sem greint var frá í Landsbygdens
Folk, 26. apríl sl.
„Landrán“ er skilgreint sem
endurvakin nýlendustefna. Ríkis-
stjórnir og fyrirtæki í efnuðun löndum
kaupa nú ræktunarland í stórum stíl,
einkum í þróunarlöndum. En landrán
á sér einnig stað í Evrópu. Frá því
er greint í skýrslu frá hollensku
stofnuninni „Transnational Institute“
en hún hefur safnað upplýsingum um
félagslegt óréttlæti um víða veröld.
Eignar- og umráðaréttur á
jarðnæði safnast á sífellt færri hendur
víða um heim, segir í skýrslunni.
Fjöldi bújarða með yfir 100 ha
af ræktunarlandi er um 3% af 12
milljón bújörðum í Evrópu. Þessar
jarðir ráða hins vegar yfir helmingi
alls ræktunarlands í álfunni.
Að sögn skýrsluhöfunda er þessi
skipting farin að minna á Brasilíu,
Filippseyjar og Kólumbíu, þar sem
ójöfn skipting ræktunarlands hefur
leitt til óteljandi árekstra og átaka
íbúanna. Sem dæmi um þróunina í
Þýskalandi þá hefur bújörðum undir
100 ha að stærð fækkað verulega á
sama tíma og stóru jörðunum fjölgar.
Nú eru 11,7% þýskra bújarða yfir
100 ha að stærð og þær ráða yfir um
55,9% af ræktunarlandinu.
Í Andalúsíu á Spáni hefur
bújöðum fækkað um 2/3 hluta
frá árinu 2007 og árið 2010 áttu
2% landeigenda þar um helming
af akurlendinu. Auk þessarar
samþjöppunar eiga sér stað hljóðlát
kaup á ræktunarlandi í Austur-
Evrópu. Kínversk fyrirtæki rækta
maís í Búlgaríu og stórfyrirtæki,
skráð í Mið-Austurlöndum, rækta
korn í stórum stíl í Rúmeníu.
Þessi landakaup hækka söluverð á
jarðnæði og hrekja óbreytta bændur
úr stéttinni.
Samþjöppunin er einnig áberandi
utan ESB. Í Úkraínu ráða 10 stærstu
fyrirtækin í landbúnaði yfir um 2,8
milljón hektörum lands.
Landbúnaðarstefna ESB
gagnrýnd
Samkvæmt áðurnefndri skýrslu
hvetur landbúnaðarstefna ESB,
(CAP) til samþjöppunar á eignar-
aðild að ræktunarlandi, og þar með
fellur sívaxandi hluti styrkja til
landbúnaðarins í hlut stórbýlanna.
Árið 2009 fengu 0,29% ítalskra
bújarða 18% af landbúnaðarstyrkjum
sambandsins. Á Spáni skiptu 16%
jarðeigandanna með sér 75%
styrkjanna.
Að áliti skýrsluhöfunda er
aðgangur að ræktunarlandi forsenda
þess að lönd Evrópu séu sjálfun sér
næg um fæðu. Landbúnaðarstefna
Evrópu í framtíðinni verður að
efla stuðning við smábýli, segir í
lokaorðum skýrslunnar. Höfundar
hennar telja að ræktunarland eigi
að vera í eigu bænda sem nytja
það sjálfir á félagslegum og
vistfræðilegum grunni. Ríkisvaldið
verður sjálft að hafa yfirumsjón
með ráðstöfun þess en ekki fela
markaðnum það sem verslunarvöru.
Skýrslan er unnin í samstarfi
við alþjóðlegu smábændasamtökin
„Via Campesina“, sem stendur vörð
um umráðarétt bænda yfir jörðum
sínum og sjálfbæran landbúnað.
Eitt af baráttumálun samtakanna
er svokallað „matsuverenitet“, þ.e.
óskoraður réttur hvers bónda til að
framleiða mat á jörð sinni.
Þýtt og endursagt/ ME
Í samanburði NMSM kom fram að íslenskar kýr eru frjósamar og halda vel. T.d. líða ekki nema 90 dagar að jafnaði
þar til kýr festa fang hér á landi en í Finnlandi tekur þetta mun lengri tíma, 140 daga að jafnaði. Þetta skilar sér svo
aftur í því að bil á milli burða er lægst hér á landi, 373 dagar að jafnaði.