Bændablaðið - 20.06.2013, Blaðsíða 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júní 2013
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Nautgriparæktin:
Nýtt kynbótamat í maí 2013
Nú í maí var keyrt nýtt kynbótamat
í nautgriparæktinni og í kjölfarið
ákvað fagráð í nautgriparækt
að setja fyrstu nautin úr árgangi
2007 í dreifingu að lokinni
afkvæmaprófun. Þetta eru naut
sem eru komin með tilskilinn fjölda
dætra með afurðaupplýsingar og
útlitsmat til þess að dómurinn sé
nægilega áreiðanlegur. Hér á eftir
verður gerð nánari grein fyrir
þessum nautum:
Sandur 07014 frá Skeiðháholti á
Skeiðum, f. Glanni 98026, mf. Sproti
95036. Dætur Sands eru ágætlega
afurðasamar varðandi mjólkurmagn
og próteinhlutfall en fituhlutfall er
undir meðallagi. Kýrnar eru fremur
útlögumiklar með fremur grannar
og þaklaga malir en ágæta fótstöðu.
Yfirlína er einnig fremur sterk.
Júgurgerð dætra Sands er mjög góð,
mikil festa og júgrin vel borin en
júgurband ekki áberandi. Spenar eru
langir og grannir en ágætlega settir.
Mjaltir eru úrvalsgóðar og skap um
meðallag. Rúmur helmingur afkvæma
Sands er tvílitur þar sem huppóttur
og skjöldóttur litir eru algengastir. Af
einlitum ber mest á rauðbröndóttum.
Heildareinkunn: 109.
Rjómi 07017 frá Heggsstöðum í
Andakíl, f. Þollur 99008, mf. Kaðall
94017. Afurðasemi dætra Rjóma er
mjög mikil hvað varðar afurðamagn
en hlutfall verðefna í mjólk er undir
meðallagi. Þær eru fremur bollitlar
en með sterka yfirlínu. Malir eru
meðalbreiðar. Fótstaða er sterkleg.
Júgur eru vel löguð og vel borin,
festa ekki mikil en júgurband mjög
sterkt. Spenagerð er góð en þeir eru
fremur grannir. Þessar kýr eru góðar
í mjöltum en skapmiklar. Þrátt fyrir
það eru þær metnar hátt í gæðaröð.
Rúmlega helmingur afkvæma
Rjóma er einlitur og eru rauður og
rauðbröndóttur algengustu litir.
Skjöldóttur er algengastur tvílita.
Heildareinkunn: 110.
Dúllari 07024 frá Ytri-Villingadal í
Eyjafirði, f. Þollur 99008, mf. Kaðall
94017. Dætur Dúllara eru afurða-
samar hvað varðar mjólkurmagn
en hlutfall verðefna í mjólk er
undir meðallagi. Kýrnar eru fremur
bollitlar en yfirlína fremur sterk.
Malir eru fremur grannar og flatar,
nokkuð þaklaga. Fótstaða er góð.
Júgurgerð er góð, júgrin vel borin og
júgurband áberandi sterkt. Spenar eru
vel gerðir, hæfilega langir og þykkir
og ágætlega settir. Mjaltir eru mjög
góðar en kýrnar eru skapmiklar.
Þær skora þó mjög hátt í gæðaröð.
Rúmlega fjórðungur afkvæma
Dúllara er einlitur þar sem rauður og
rauðbröndóttur eru algengustu litir.
Af tvílitum ber mest á huppóttum og
skjöldóttum. Heildareinkunn: 108.
Húni 07041 frá Syðra-Hóli í
Skagabyggð, f. Laski 00010, mf.
Soldán 95010. Afurðasemi dætra
Húna er góð, sérstaklega er hlutfall
próteins í mjólk hátt. Þær eru fremur
bollitlar yfirlínan er veik. Malir eru
meðalbreiðar, ágætlega gerðar og
aðeins þaklaga. Fótstaða er sterkleg.
Júgurgerðin er afbragðsgóð þau eru
vel löguð og vel borin með mikla festu
og sterkt júgurband. Spenagerð er
góð, aðeins þykkir en mjög vel settir.
Dætur Húna eru góðar í mjöltum og
skap þeirra er mjög gott. Tæplega
þriðjungur afkvæma Húna er einlitur
og eru rauður og rauðbröndóttur
algengustu litir. Skjöldóttur er
algengastur tvílita. Heildareinkunn:
111.
Toppur 07046 frá Kotlaugum í
Hrunamannahreppi, f. Hersir 97033,
mf. Punktur 94032. Dætur Topps
eru afurðasamar hvað varðar bæði
mjólkurmagn og hlutfall verðefna
í mjólk. Kýrnar eru júgurhraustar,
bollitlar en með sterka yfirlínu.
Malir eru fremur grannar og flatar,
nokkuð þaklaga. Fótstaða er örlítið
náin. Júgurgerð er í góðu meðallagi,
júgrin ágætlega borin en festa og
júgurband um meðallag. Spenar eru
vel gerðir, fremur stuttir en örlítið
gleitt settir. Mjaltir þessara kúa eru
í tæpu meðallagi en skap þeirra er
mjög gott. Tæplega fjórðungur
afkvæma Topps er einlitur þar sem
rauður er algengasti litur. Af tvílitum
ber eðlilega mest á húfóttum og leist-
óttum. Heildareinkunn: 110.
Lögur 07047 frá Egilsstöðum á
Völlum, f. Laski 00010, mf. Völsungur
94006. Afurðasemi dætra Lagar er í
góðu meðallagi, bæði hvað varðar
magn og verðefni. Þær eru fremur
stórar kýr með aðeins veika yfirlínu.
Malir eru meðalbreiðar, ágætlega
gerðar og aðeins þaklaga. Fótstaða er
sterkleg. Þessar kýr eru með frábæra
júgurgerð, þau eru vel löguð, mjög
vel borin með mikla festu og sterkt
júgurband. Spenagerð er úrvalsgóð,
fremur stuttir og grannir spenar og
mjög vel settir. Dætur Lagar eru mjög
góðar í mjöltum og skapið er sérlega
gott. Rúmlega helmingur afkvæma
Lagar er einlitur og eru rauður og
bröndóttir litir algengastir, þó einnig
sé nokkuð um kolótta. Huppóttur er
algengastur tvílita. Heildareinkunn:
112.
Samhliða þessu ákvað fagráð að
fækka reyndum nautum í dreifingu.
Þau naut sem áður voru komin til
notkunar sem reynd naut og verða
áfram í almennri dreifingu eru
eftirtalin:
Gyllir 03007 frá Dalbæ í
Hrunamannahreppi, f. Seifur 95001,
mf. Soldán 95010. Gyllir verður
áfram í dreifingu enda bætir hann sína
stöðu umtalsvert. Hann hækkar í mati
fyrir afurðir sem og fyrir júgur- og
spenagerð. Þá hækkar mat hans fyrir
mjaltir gríðarmikið og þar stendur
hann nú efstur allra nauta. Það er líka
aðalsmerki dætra hans hve góðar þær
eru í mjöltum auk þess sem þetta eru
miklar mjólkurkýr með góða júgur-
og spenagerð. Þá er skap þeirra gott
en setja verður spurningarmerki við
frjósemi þeirra, þar sem þær virðast
heldur færa burð. Heildareinkunn:
111.
Hryggur 05008 frá Bryðjuholti í
Hrunamannahreppi, f. Teinn 97001,
mf. Þokki 97776 (Ólasonur 88002
og hálfbróðir Frísks 94026), verður
áfram í dreifingu. Kynbótamat hans
breytist mjög lítið og hann er áfram
fyrst og fremst valkostur varðandi
efnahlutföll í mjólk. Hann gefur kýr
með sterka júgurgerð og úrvalsgott
skap en mjaltir eru undir meðallagi.
Heildareinkunn: 108.
Baugur 05026 frá Kotlaugum
í Hrunamannahreppi, f. Stígur
97010, mf. Punktur 94032, er áfram
til dreifingar en mat hans tekur
óverulegum breytingum. Hann
gefur gríðarlega mjólkurlagnar
kýr með mikla júgurhreysti. Þetta
eru fínbyggðar kýr með júgur- og
spenagerð í meðallagi. Þær eru
skapgóðar og mjaltir um meðallag.
Heildareinkunn: 114.
Frami 05034 frá Skúfsstöðum
í Hjaltadal, f. Stígur 97010, mf.
Kaðall 94017, hefur styrkt sína
stöðu, einkum hvað afurðaþáttinn
varðar, og stendur hann nú jafnfætis
Vindli 05028 og Birtingi 05043 í
heildareinkunn. Aðalsmerki Frama
eru miklar afurðir, há efnahlutföll,
góð spenagerð og mjaltir. Júgurgerð
er um meðallag og skap dætra hans
er heldur undir meðallagi. Rétt er að
taka fram að Frami hefur gefið hærra
hlutfall dauðfæddra kálfa en önnur
naut. Heildareinkunn: 115.
Baldi 06010 frá Baldursheimi í
Hörgársveit, f. Stígur 97010, mf.
Daði 87003, breytist óverulega
í mati. Dætur hans eru ágætlega
afurðasamar og þá sérstaklega hvað
verðefni varðar. Baldadætur hafa
gríðarsterka júgurgerð, vel borin með
mikla júgurfestu enda sækir Baldi það
í báðar ættir. Stígur gaf góða júgurgerð
og móðir Balda var með geysilega
fallegt og vel borið júgur sem þrátt
fyrir mikla endingu var alla tíð eins
og á 1. kálfs kvígu. Baldi gefur kýr
sem eru með góða spenagerð, aðeins
langir en vel settir, og þær eru góðar í
mjöltum. Heildareinkunn: 113.
Logi 06019 frá Kristnesi í Eyjafirði,
f. Fontur 98027, mf. Fróði 96028,
styrkir sína stöðu verulega með
nýju mati. Hann hækkar verulega
fyrir afurðir og þá bæði magn og
prótein%. Hann er því góður valkostur
til hækkunar á próteini í mjólk en þess
utan eru dætur hans um meðallag
fyrir flesta þætti þó nefna verði að
aðeins ber á mismjöltum hjá þeim.
Heildareinkunn: 111.
Kambur 06022 frá Skollagróf í
Hrunamannahreppi, f. Fontur 98027,
mf. Völsungur 94006 lækkar heldur
í mati en getur þó ekki talist annað
en gríðarsterkt naut. Dætur hans eru
afurðakýr, bæði hvað varðar magn
og verðefni. Þá eru þær júgurhraustar
með úrvalsgóða júgurgerð og
afbragðsgóðar mjaltir og skap.
Spenagerðin er um meðallag og þeir
eru fremir grannir. Heildareinkunn:
113.
Dynjandi 06024 frá Leirulækjarseli
í Borgarbyggð, f. Stígur 97010, mf.
Kaðall 94017 hækkar í mati og styrkir
sína stöðu vel. Dætur Dynjanda eru
mjólkurlagnar með geysihá verðefni
í mjólk. Þessar kýr eru með góða
júgur- og spenagerð og mjaltir eru
góðar. Dynjandi er naut sem án efa á
skilið meiri notkun en hingað til. Hann
hefur hins vegar verið í samkeppni
við Birting, Vindil og Frama þar sem
hann samfeðra og móðurfaðir þeirra
allra er Kaðall. Heildareinkunn: 112.
Hjarði 06029 frá Hjarðarfelli á
Snæfellsnesi, f. Fontur 98027, mf.
Punktur 94032 heldur sínu sterka mati.
Hjarðadætur eru miklar mjólkurkýr
og hlutfall verðefna er gott. Þeirra
aðalsmerki er þó júgurhreystin þar
sem segja má að þær standi feti
framar öðrum dætrahópum nauta
sem í dreifingu eru. Hjarði gefur
gríðargóða júgur- og spenagerð og
skap kúnna er gott. Mjaltir eru þó
í slöku meðallagi. Þetta er eigi að
síður naut sem á skilið meiri notkun
en hingað til. Heildareinkunn: 114.
Víðkunnur 06034 frá Víðiholti í
Reykjahverfi, f. Þrasi 98052, mf.
Stígur 97010 lækkar nokkuð í mati
og þá fyrst og fremst hvað afurðir
snertir. Dætur hans eru eigi að síður
góðar mjólkurkýr, fitu% er há en
prótein% er undir meðallagi. Þær
eru júgurhraustar og júgurgerðin er
gríðarlega góð, sterkleg og mjög vel
borin júgur með mikla festu. Spenar
eru vel gerðir og vel settir. Hann bætir
mat sitt fyrir mjaltir og stendur þar
í meðaltali þrátt fyrir að faðir hans,
Þrasi 98052, hafi gefið mjaltir undir
meðallagi. Heildareinkunn: 108.
Guðmundur Jóhannesson
Ábyrgðarmaður
í nautgriparækt
hjá Ráðgjafar miðstöð
landbúnaðarins
Gunnfríður Elín
Hreiðarsdóttir
Fagstjóri í búfjárrækt
hjá Ráðgjafar miðstöð
landbúnaðarins
Kynbótamat reyndra nauta í notkun sumarið 2013
Nafn og nr.
M
jó
lk
Fi
tu
%
Pr
ót
ei
n%
Af
ur
ði
r
Fr
jó
se
m
i
Fr
um
ut
al
a
Gæ
ða
rö
ð
Sk
ro
kk
ur
Jú
gu
r
Sp
en
ar
M
ja
lti
r
Sk
ap
En
di
ng
Ky
nb
ót
ae
in
ku
nn
Gyllir 03007
Hryggur 05008
Baugur 05026
Vindill 05028
Frami 05034
Koli 06003
Baldi 06010
Logi 06019
Kambur 06022
Dynjandi 06024
Hjarði 06029
Víðkunnur 06034
Sandur 07014
Rjómi 07017
Dúllari 07024
Húni 07041
Toppur 07046
Lögur 07047
Lögur 07047 frá Egilsstöðum á Völlum.
Toppur 07046 frá Kotlaugum í Hrunamannahreppi.