Bændablaðið - 20.06.2013, Blaðsíða 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júní 2013
Nú þegar komin er ný og fram-
sækin ríkisstjórn, sem ætlar að
einbeita sér að upp byggingu
landsins, eru virkjunar-
framkvæmdir til rafmagns-
framleiðslu aftur komnar á dag-
skrá. Menn mega ekki gleyma
því að almenn lífskjör breyttust
auðvitað mjög til batnaðar með
tilkomu rafmagnsins og almenn
nútíma og iðnvæðing landsins
stór og smá hefði ekki orðið án
þess eða hvernig væri lífið í dag
án rafmagns og alls þess sem það
keyrir? Er það því ekki einmitt
rétt að halda áfram á þeirri braut
og efla með því farsæld okkar?
Hvað vilja andstæðingar
virkjana?
Samt mótmælir fólk þessum
áformum og ég spyr hvers
vegna og hvað vakir fyrir þessu
velæruverðuga fólki? Ef einhver
rökhyggja býr yfirhöfuð að baki, þá
virðist mér andstæðingar virkjana
einkum líta á þær sem samnefnara
við álver sem þessu fólki líkar
ekki af einhverjum óskilgreindum
ástæðum eða þá vegna meintra
slæmra umhverfisáhrifa virkjan-
anna, en eru þetta alltaf réttmæt
sjónarmið byggð á yfirvegun og
raunsæi?
Raforku- og álver, iðnvæðing og
hagsýni
Ál er auðvitað til margs nýtilegt
sem andstæðingar álvera átta
sig kannske á þegar þeir fljúga í
flugvélum og drekka gos úr dósum?
Það sem skiptir máli fyrir okkur
er að með álverunum höfum við
eignast raforkuver og erum að
eignast fleiri, sem fara ekki frá
okkur og munu mynda okkur
verðmæti um mjög langa framtíð.
Álverin hafa búið til og skapa enn
tekjur fyrir landið og hafa ásamt
með virkjununum sett okkur í hærri
tröppu til þess að stíga næstu skref
upp frá. Það er auðvitað sjálfsagt
að standa við gerða samninga um
frekari áform á því sviði, en það eru
vonandi mögulega fleiri kaupendur
sem vilja umhverfisvæna og
endurnýjanlega orku í sífellt
orkufrekari heimi. Ég ætla mér
ekki að gerast talmaður álvera enda
er ég ekkert sérstaklega spenntur
fyrir fleiri álverum eða þeim sem
slíkum og tel að farsælt væri að
reyna enn frekar en þegar er gert
til þess að laða að sem arðbærust
útflutningsiðnfyrirtæki önnur af
ýmsum stærðum og á sem flestum
sviðum til þess að sem breiðastur
grundvöllur verði fyrir efnahags og
atvinnulífið, enda geta ekki allir
unnið hjá hinu kostnaðarsama
opinbera. Vonandi tekst það og því
má spyrja þau sem vilja ekki nýta
orkuauðlindina frekar hvort þau séu
þá á móti almennri iðnvæðingu,
á móti uppbyggingu og meiri
velmegun? Hvað lausnir hafa
mótmælendur t.d. á því hvernig
vinna má bug á atvinnuleysinu
eða taka á móti sívaxandi fjölda
fólks á vinnumarkaðinn án þess að
skapa nýjar undistöður og tækifæri
eða þá hvernig á að greiða fyrir
hið opinbera og velferðina, sem
sama fólk krefst og nýtur? Þessum
spurningum og fleirum verða þau
hin sömu að svara.
Umhverfið
Ég er ekki sjálfur þannig né þekki
nokkurn mann sem þykir ekki vænt
um landið og náttúru þess og vill
fara vel með. Grösugar sveitir, fjöll,
vötn og ár og dalir eru unaður til
þess að njóta og landið okkar er
einmitt okkar til þess að nota það
og nýta, t.d. bændur með búskap
og ræktun,
f e r ð a -
iðnaðurinn
og við sjálf
með útivist
og náttúru-
s k o ð u n
o.s.frv. Það
er mikill mis-
skilningur að
náttúran sé
stöðug og
alltaf eins,
heldur er hún
síbreytileg og
á fleygiferð og engir ættu að vita
það betur en við Íslendingar sem
að erum svo nálæg henni á allan
hátt þ.m.t. veðrum, eldfjöllum og
landskjálftum sem setja för sín á
landslagið. Þar sem maðurinn fer
verða líka alltaf einhver spor eftir
í sandinum og stundum hafa verið
gerð mistök eins og verða vill í
mannanna verkum, en ekki hefur
það allt verið slæmt nema síður sé
og með því að læra af mistökunum
þá á það varla að aftra okkur til
göngunnar fram á við. Ekki einu
sinni fuglinn fljúgandi vissi áður
nokkuð um Kárahnjúka, en nú er
þar kominn vegur sem opnað hefur
stórt landsvæði, sem er orðið ferða-
mannaáfangi. Svipað má segja t.d.
um efri Þjórsá og víða er nú hægt
að ferðast og skoða staði sem áður
voru huldir augum manna. Í stað
grjóts og auðnar hefur ásjóna lands-
ins sums staðar fegrast mjög með
fallegum mannvirkjum og frágangi
í kring um þau. Því má spyrja
hvort virkjanaandstæðingar vilji
eingöngu torf og hrjóstur eða hvað
vilja þeir í þessum efnum? Geyma
til framtíðar er þá stundum sagt, en
það þarf ákvarðanir núna svo það
verði einhver framtíð. Vatnið rennur
og gufan rýkur ónýtt alla daga eða
á að sleppa allri landgræðslu, vega-
lagningu og öðru því sem breytir
ásjónu landsins? Er ekki best að
sleppa öfgasjónarmiðum í þessum
efnum sem öðrum og fara fram
varlega og af skynsemi, en fara
fram og nýta áfram gæði lands-
ins fyrir alþýðu manna? Þ.m.t. að
virkja orkuna til lífsgæðaaukningar
einnig fyrir það ágæta fólk, sem
áttar sig ekki alltaf á því að atvinna
og verðmætasköpun kemur ekki af
sjálfu sér og að það nýtur gjarnan
sjálft verka og svita annarra.
Stöðugleiki er forsenda
fjárfestinga og yfirvegunar
Ég veit ekki hvort nokkurn tíma
verður hægt að fullnægja háværum
og tilfinningaþrungnum smáhópum
öfga náttúruverndarsinna, en verið
gæti að það væri einmitt betri
afkoma, sem muni róa þennan hóp
þótt hann vilji sjálfur ekki taka þátt
í því að skapa hana. Í öðrum blaða-
greinum hef ég fjallað um aðgerðir
sem að mínu mati eru bestar til þess
fallnar að koma fljótt á fjármála-
stöðugleika hér á landi. Stöðugleiki
á stjórnmálasviðinu er hin hliðin
á því hvað þarf til þess að endur-
heimta traust, jákvæðni og góðar
væntingar, en fjárfestingar fara
síður af stað með aukinni atvinnu
og hagsæld án þess. Það er ekki
ágreiningur um að á þetta hefur
mjög skort undanfarin ár og leitt
til ýmissar spennu í þjóðfélaginu,
en ný ríkisstjórn og Alþingi munu
væntanlega reyna að snúa öllu því
við til betri vegar. Ég óska þeim
allrar velgengni til endurreisnar
og framfara Íslands og ráðlegg
úrtölufólki að grafa exina því
ófriður eyðir.
Kjartan Örn Kjartansson
Höfundur er varaformaður
Hægri grænna, flokks fólksins.
Virkjunarframkvæmdir
og framfarir
Kjartan Örn
Kjartansson
Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri www.jotunn.is
Jötunn Vélar ehf. - Kt. 600404 2610
Vinnslubreidd frá 2,65 - 4,42 m
Öll heyvinnutæki
eru afhent samsett!
Hafðu samband við sölumenn í síma 480 0402.
Eigum á lager allar stærðir
Sláttuvélar í úrvali
Sláttuvélar
Af fyrstu tveimur vélunum sem
seljast af hverri gerð verður veittur
200.000 kr. auka kynningarafsláttur
Fyrstur pantar fyrstur fær
Zetor varahlutir
Lækkað verð
Notaðu „Orginal“ varahluti
Það borgar sig!
www.VBL.is REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600
REYKJAVÍK S: 414-0000 / AKUREYRI S: 464-8600 / www.VBL.is
Major 80 - 77 hestöfl
Verð kr. 5.500.000 án vsk.
AIÖ ámoksturstæki innifalin í verði
Proxima 100 - 96 hestöfl
Verð kr. 6.850.000 án vsk.
Trac lift 120 SLI ámoksturstæki innifalin í verði
Proxima Power 90 - 88 hestöfl
Verð kr. 7.250.000 án vsk.
Trac lift 120 SLI ámoksturstæki innifalin í verði
Proxima Power 120 - 117 hestöfl
Verð kr. 8.100.000 án vsk.
Trac lift 120 SLI ámoksturstæki og aukahlutapakki er innifalinn í verði
Forterra 140 - 136 hestöfl
Verð kr. 9.800.000 án vsk.
Trac lift 260 ámoksturstæki innifalin í verði
Verð eru miðuð við gengi DKK 20.6
Aukahlutapakki samanstendur
af blikkljósi á topp, loftfjaðrandi
ökumannssæti, farþegasæti,
loftkælingu,beislisstýringarbúnaði
aftan á vél, stærri dekkjum
380/70 R24 og 480/70 R 34
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á VÉLUNUM Á VBL.is
ÁFRAM