Bændablaðið - 20.06.2013, Blaðsíða 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júní 2013
hlj@bondi.is
Vélabásinn
Hjörtur L. Jónsson
Þó að bíll, traktor eða önnur
vinnutæki séu gömul og jafnvel
ryðguð er ekki verra að þrífa
og bóna af og til. Þó er ekkert
eins nauðsynlegt og að vera með
rúður hreinar bæði að utan og
innan. Hér að neðan segi ég frá
uppáhaldsefnunum mínum sem
ég nota við bón og þrif.
Um miðjan mars bónaði ég í
tilraunaskyni bíl Eiríks Blöndal,
framkvæmdastjóra Bænda-
samtakanna. Vinstri hlið bílsins
frá miðju „húddi“ aftur á miðjan
afturgafl var bónuð með venjulegu
Sonax-bóni en hægri hliðin var
bónuð með nýju bóni úr Sonax-
fjölskyldunni sem unnið er úr
brasilísku tré og heitir Carnauba.
Þetta bón á að endast lengur en önnur
bón, húðin sem eftir verður er örlítið
þykkari og harðari viðkomu þegar
búið er að bóna bílinn.
Létt en seinlegt
Gæta þarf að því að í þessu bóni er
ekkert hreinsiefni eins og í flestum
öðrum bónum og því þarf að þvo
bílinn (eða það sem á að bóna)
mjög vel fyrir bón. Heldur lengri
tíma tekur að bera þetta bón á, en í
staðinn er mun auðveldara að strjúka
úr bóninu með hreinni bóntusku.
Sennilega er þetta auðveldasta bón
sem ég hef bónað með (engin átök,
bara að strjúka létt yfir).
Í lok maí leyfði Eiríkur mér að
taka sinn eðal Volvo út á þvottaplan
og þvo bílinn. Ég byrjaði fyrst
á vélarlokinu (húddinu) og varð
svolítið hissa, því kústurinn virtist
renna mun auðveldlegar hægra
megin. Eftir að ég hafði kústþvegið
bílinn allan var greinilegt að mun
auðveldara var að renna kústinum
eftir hægri hliðinni en þeirri vinstri.
Síðast kústaði ég afturhlerann frá
vinstri hlið út á þá hægri, kústurinn
fór hægt af stað en þegar komið
var inn á mitt skottlok var eins og
bremsunni á kústinum hefði verið
sleppt. Það fór ekki á milli mála að
þó að Carnauba-bónið væri rúmlega
tveggja mánaða á bílnum virkaði það
svona vel.
Eftir þvottinn lét ég buna vatn á
húddið til að sjá hvort munur væri á
helmingunum. Það fór ekki á milli
mála að enn var bónhúð hægra
megin, þar sem vatnið perlaði af rétt
eins og á nýbónuðum bíl.
Carnauba hefur töluverða
yfirburði
Við fyrstu prófanir virðist Carnauba
hafa töluverða endingu og yfirburði.
Fleiri bíla hef ég bónað með
Carnauba-bóninu og hef ég bónað
rúður á einum bíl með Carnauba.
Hingað til hef ég verið hrifnastur af
Ultra Glozz-bóni á rúður, en miðað
við þessa stuttu reynslu af Carnauba
á rúður virðist það ekkert síðra en
Ultra Glozz.
Subaru-bíll Bændasamtakanna
var bónaður með Carnauba um
páskana og rúmum tveim mán-
uðum eftir bón er bíllinn enn eins
og nýbónaður. Síðasti bíllinn í
tilraunum mínum með Carnauba-
bónið var gamli jepplingurinn minn,
en þann bíl bónaði ég um páskana
og nú á lýðveldisdaginn var farið á
þvottaplan og bíllinn þveginn. Enn
virðist vera góð áferð af bóninu á
bílnum mínum og óhreinindin runnu
auðveldlega af bílnum. Eftir þvott-
inn lét ég buna vatn á bílinn og þá
perlaði vatnið vel af rétt eins og á
nýbónuðum bíl. Þó að Carnauba sé
frekar dýrt í innkaupum mæli ég
klárlega með því.
Hreinar rúður innan og utan í
forgang yfir öðrum þrifum
Vinur minn sagði að neyðarlegasta
augnablik ævi sinnar hefði verið
þegar hann sagði við lögreglumann
í skýrslutöku við árekstur þar sem
hann var í órétti: „Rúðurnar á
bílnum mínum eru svo skítugar að
innan að ég sá bara bílinn ekki koma
og svínaði fyrir hann.“ Allir hafa
einhvern tímann lent í því að þegar
sólin er í vissri stöðu er mjög erfitt
að sjá út um rúðuna vegna einhverra
óhreininda utan eða innan á rúðunni.
Nauðsyn þess að hafa rúður hreinar
að innanverðu er síst minni en
að bóna þær að utan, en ýmsum
óhreinindum getur verið vont að
ná innan af rúðum svo ekki myndist
ský innan á þeim.
Oftast hef ég notast við rúðu geisla
og dagblaðapappír, en ókosturinn við
dagblaðapappírinn er að prentsverta
úr myndum og texta blaðanna verður
eftir á rúðunni í litlum mæli. Frekar
vil ég þó hafa smá prentsvertu en
skýjaða og kámuga rúðu (ágætt
er að nota minningargreinasíðuna
í Morgunblaðinu því þar eru fáar
myndir).
Í gegnum tíðina hefur mér reynst
mjög vel að bóna rúður að utan með
Ultra Glozz bóni en að innan hef
ég notast við volgt vatn og sápu í
fyrstu og þurrkað síðan rendurnar
með dagblaðapappír.
Undraefnið Fluid Film sem
unnið er úr ullarfitu af sauðfé
Fluid Film skrifaði ég um í
Bændablaðið 2. des. 2010 (hægt að
skoða grein á vef Bændablaðsins).
Þetta efni nota ég á flest plast til
að fá gljáa og fallega áferð. Einnig
er það gott til að smyrja keðjuna
á mótorhjólinu mínu og ýmislegt
annað, s.s. hurðarskrár, lamir og fl.,
er einnig mjög gott sem ryðvörn.
Kunningi minn notar þetta efni á
reiðhnakkinn sinn og er hreinlega
heillaður af efninu. Það fæst á frekar
fáum stöðum, en m.a. hjá Ellingsen
og JHM sport á Stórhöfða.
Þrif á bílum eru nauðsynleg:
Carnauba er nýtt undraefni frá Sonax
Lengst til vinstri er bónklútur og lakkhreinsir sem hreinsar t.d. vel lakk úr öðrum bílum þegar hurðum hefur verið
svo undrabónið Carnauba. Þá kemur Ultra Glozz, sem er gott á allar rúður að utan. Undir er síðan blátt þurrkhand-
klæði frá Sonax. Með því er hægt að þurrka af allt að tveim bílum án þess að þurfa að vinda. Lengst til hægri er svo
Fluid Film efni sem er endalaust að koma á óvart. Myndir / HLJ
Bíll framkvæmdastjórans sem notaður var við bóntilraunina.
Munurinn á venjulegu bóni og Carnauba sést greinilega eftir tvo mánuði og nokkra þvotta á bílnum. Vinstra megin
var bónað með venjulegu bóni en hægra megin með Carnauba.
sauðfé og má nota á allt mögulegt.
Það virkar mjög vel til að lífga upp
á plastlista á bílum og jafnvel sem
smurefni á lamir og drifkeðjur og
sem ryðvörn.
Síðasti bíllinn í tilraunum mínum
með Carnauba-bónið var gamli jepp-
lingurinn minn, en þann bíl bónaði ég
um páskana og nú á lýðveldisdaginn
var farið á þvottaplan og bíll inn
þveginn. Enn virðist vera góð áferð
af bóninu á bílnum mínum, því
óhreinindin runnu auðveldlega af
honum. Eftir þvottinn lét ég buna
vatn á bílinn og þá perlaði vatnið
vel af rétt eins og á nýbónuðum bíl.
Vatn og sápa í úðabrúsa á rúður að innanverðu, þurrkast í burtu með dagblaði.