Bændablaðið - 21.02.2013, Blaðsíða 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 21. febrúar 2013
www.buvis.is
Ve r i ð v e l k o m i n á v e f s í ð u o k k a r
Áburðarverð 2013
Áburður Efnisinnihald (hrein efni) Greitt Greitt Greitt
N P K S Ca Mg við pöntun 15. maí 15. okt.
Kraftur 27 27.0 4.3 2.4 69.830 71.920 75.150
Kraftur 27+S 27.0 2.9 4.3 71.510 73.660 76.500
Kraftur 34 34.4 66.060 68.040 71.100
Völlur 30-5+S 30.0 2.0 2.0 76.890 79.200 82.760
Völlur 27-12+S 26.8 5.0 2.0 82.260 84.730 88.540
Völlur 26-6-6+S 26.0 2.5 4.9 2.0 79.150 81.520 85.180
Völlur 20-10-10+S 20.2 4.1 8.0 4.0 84.050 86.570 88.850
Völlur 23-7-12+S 23.0 3.0 10.0 1.0 84.180 86.710 88.980
Völlur 17-15-15+S 16.5 6.4 12.0 2.0 86.200 88.786 92.780
ÁB
UR
ÐU
R
Verð á tonn án VSK. í 500kg stórsekkjum. Verð getur breyst án
fyrirvara. Flutningur á norður- og austurlandi er innifalinn í verði.
Hafir þú hug á öðrum greiðslukjörum hafðu samband við sölumenn
okkar.
Vatnsuppleysanleiki fosfórs 76-98%
Verðskrá getur breyst án fyrirvara. Hvern mánudag kl 9.00 birtist ný verðskrá á www.buvis.is
Kraftur 27
Eingildur N-áburður með kalsíum og magnesíum. Hann hentar
með sauðataði á flest tún og með vordreifðri kúamykju á eldri
tún. Hentar einnig á milli slátta og til beitar þar sem ekki er
talin þörf á því að bera á P og K.
Kraftur 34
Eingildur N-áburður. Hann hentar með sauðataði á flest tún og
með vordreifðri kúamykju á eldri tún. Þá hentar Kraftur á milli
slátta og til beitar þar sem ekki er talin þörf á því að bera á P
og K.
Kraftur 27+S
Eingildur N-áburður með kalsíum og brennisteini. Hann hentar
með sauðataði á flest tún og með vordreifðri kúamykju á
eldri tún. Hentar einnig á milli slátta og til beitar þar sem ekki
er talin þörf á því að bera á P og K. Velja skyldi Kraft 27+S á
þurrlendistún þar sem hætta er á brennisteinsskorti.
Völlur 30-5+S
Tvígildur NP áburður með brennisteini. Hann hentar með
vordreifðum búfjáráburði á tún sem gera ekki miklar kröfur um
fosfóráburð. Þá hentar hann á milli slátta á endurræktuð tún og
til landgræðslu. (Vatnsuppleysanleiki fosfors 98%)
Völlur 27-12+S
Tvígildur NP áburður með brennisteini. Hann hentar með
vordreifðum búfjáráburði á grænfóður, endurræktuð tún
og nýræktir sem þurfa mikinn fosfór. Hentar einnig sem
landgræðsluáburður.(Vatnsuppleysanleiki fosfórs 98%)
Völlur 26-6-6+S
Þrígildur NPK túnáburður með brennisteini og lágu hlutfalli
steinefna. Hann hentar með haustdreifðum búfjáráburði eða
hóflegum skömmtum af vordreifðum búfjárábuði. Þá hentar
hann ágætlega á milli slátta á uppskerumikil tún, á beitartún og
til landgræðslu. (Vatnsuppleysanleiki fosfórs 76%)
Völlur 23-7-12+S
Þrígildur NPK túnáburður með brennisteini. Hann hentar á eldri
tún í góðri rækt sem ekki fá búfjáráburð og gera minni kröfur
um fosfóráburð. (Vatnsuppleysanleiki fosfórs 76%)
Völlur 20-10-10+S
Þrígildur NPK túnáburður með brennisteini. Hann hentar á
uppskerumikil endurræktuð tún þar sem ekki er borinn á
búfjáráburður. Hentar einnig á rýgresi, bygg og hafra og á bygg
til þroska þar sem borinn er á hár skammtur af köfnunarefni.
(Vatnsuppleysanleiki fosfórs 76%)
Völlur 17-15-15+S
Þrígildur NPK áburður með brennisteini og háu steinefna-
hlutfalli. Hann hentar á fóðurkál þar sem ekki er borinn á
búfjáráburður og repju og korn til þroska. Hentar einnig á
smáratún og grassáningar. (Vatnsuppleysanleiki fosfórs 76%)
B Æ T I R H A G B Æ N DA
Kynna gamla bæinn
á Blönduósi
Blönduósbær hefur sótt um styrk
til Menningarráðs Norðurlands
vestra fyrir verkefni sem nefnt er
Saga byggðarinnar á Blönduósi
fyrir 100 árum. Verkefnið gengur
út á að gera grein fyrir byggðinni
á Blönduósi fyrir 100 árum og er
unnið út frá skipulagskorti frá
1914 sem sýnir þá byggð sem þá
var til staðar.
Sett verður upp stórt skilti sem
sýnir gamla kortið og svo þau hús
sem enn standa og á því kemur
fram við hvaða hús eru söguskilti.
Þá verða sett upp þrjú söguskilti
eins og eru við „Þorsteinshús“
og fjallað um Hillebrantshús,
Kvennaskólann og Blöndubyggð 1,
en húsin eru í eigu Blönduósbæjar
og nágrannasveitarfélaga.
Verkefni þetta er sett af stað í því
augnamiði að vekja meiri athygli á
gamla bænum og upplýsa ferðamenn
um byggðasögu Blönduósbæjar. Frá
þessu er sagt á vef Blönduósbæjar.
Bændablaðið
Kemur næst út
7. mars
Byggðastofnun hefur fengið
Orkustofnun til að reikna út
kostnað við raforkunotkun og
húsahitun á sömu fasteigninni á
nokkrum þéttbýlisstöðum á landinu
á ársgrundvelli. Viðmiðunar eignin
er einbýlishús sem er 161,1 m2 að
grunnfleti og 351 m3. Stærð lóðar
er 808 m2. Gjöldin eru reiknuð
út samkvæmt gjaldskrá þann 1.
janúar 2013. Þetta kemur fram á
heimasíðu Byggðastofnunar.
Af þeim stöðum sem skoðaðir
voru reyndist rafmagnsverð hæst
hjá notendum RARIK í dreifbýli kr.
103.059. Í þéttbýli er rafmagnsverð
hæst á orkuveitusvæði RARIK kr.
77.533. Lægst er rafmagnsverðið á
Akureyri, kr. 66.278. Hæsta verð er
rúmlega 55% hærra en lægsta verð.
Í þéttbýli er hæsta verð 17% hærra
en lægsta verð.
Dýrt að hita upp hús á orku-
veitusvæði RARIK í dreifbýli
Þegar kemur að húshitunar-
kostnaðinum verða skilin skarpari.
Þar er hæsti kyndingarkostnaðurinn
á orkuveitusvæði RARIK í dreif-
býli kr. 217.063. Í þéttbýli er
kostnaðurinn hæstur á Grundarfirði,
Neskaupstað og Vopnafirði, kr.
187.133. Þess ber að geta að á
nokkrum öðrum þéttbýlisstöðum er
húshitunarkostnaður hærri en hér
kemur fram fyrir þá íbúa sem ekki eiga
kost á hitaveitu eða fjarvarmaveitu.
Lægsti húshitunarkostnaðurinn
er á Sauðárkróki, kr. 68.707. Hæsta
verð er 216% hærra en lægsta verð.
Í þéttbýli er hæsta verð 172% hærra
en lægsta verð.
Ef horft er til heildarkostnaðar þá
er kostnaðurinn hæstur í dreifbýli á
orkuveitusvæði RARIK kr. 320.123.
Heildarkostnaður í þéttbýli er hæstur
á Grundarfirði, Neskaupstað og
Vopnafirði kr. 264.686.
Lægstur er heildarkostnaðurinn á
Sauðárkróki, kr. 146.260. Hæsta verð
er því 119% hærra en lægsta verð. Í
þéttbýli er hæsta verð 81% hærra en
lægsta verð.
Skýrsla Byggðastofnunar um húshitun:
Um 216% munur á hæsta
og lægsta kostnaði
Frá Norð rði. Heildarkostnaður vegna húshitunar í þéttbýli er hæstur á
Grundar rði, Neskaupstað og Vopna rði, kr. 264.686. Mynd / HKr.