Bændablaðið - 21.02.2013, Qupperneq 27

Bændablaðið - 21.02.2013, Qupperneq 27
27Bændablaðið | Fimmtudagur 21. febrúar 2013 Landssamtök landeigenda héldu aðalfund sinn 14. febrúar síðast- liðinn. Vel var mætt á fundinn og ljóst að nokkur hiti er í land- eigendum vegna aðskiljanlegra hagsmuna. Hart var deilt á stjórn- völd vegna samráðsleysis, meðal annars varðandi frumvarp til nýrra náttúruverndarlaga en í þeim telja landeigendur að gengið sé freklega á rétt þeirra. Í ályktun sem fundurinn samþykkti er þetta ítrekað og skorað á Alþingi að endurskoða málið frá grunni með það að markmiði að skapa víðtækari sátt um náttúruvernd á Íslandi. Þá voru málefni eigenda sjávar- jarða töluvert rædd á fundinum og því velt upp hvort ekki væri ástæða til að sameina krafta Lands- samtaka landeigenda og samtaka eigenda sjávarjarða. Sömuleiðis skapaðist talsverð umræða um sameiginlega hagsmuni skógarbænda og landeigenda. Þá var rætt um baráttu landeigenda vegna lagningu háspennulína og málefni sem varða Landsnet. Að venju var mikil umræða um þjóðlendumál, einkum um mikilvægi þess að fá endurupptökuákvæði inn í lögin. Ný stjórn var kosin í fundinum. Örn Bergsson var endurkjörinn sem formaður samtakanna og voru þeir Óðinn Sigþórsson og Sigurður Jónsson einnig endurkjörnir. Nýjar inn í stjórn komu þær Guðrún María Valgeirsdóttir og Elín R. Líndal. Gunnar Sæmundsson og Guðný Sverrisdóttir gáfu ekki kost á sér til endurkjörs og voru þeim þökkuð mikil og óeigingjörn störf fyrir samtökin. Örn Bergsson formaður kvaðst afar ánægður með fundinn. Hann sagði talsvert hafa unnist á þeim sex árum sem samtökin hefðu starfað. „Það sem hefur unnist er í fyrsta lagi að kröfugerð í þjóðlendumálum er allt önnur og ásættanlegri en var. Hæstiréttur hefur jafnframt nálgast okkar sjónarmið á síðustu árum. Við leggjum áherslu á það nú og munum berjast fyrir að inn í þjóðlendulögin verði sett endurupptökuákvæði. Slík ákvæðu myndu þýða að hægt væri að fá mál endurupptekin í ljósi nýrra gagna. Við höfum lært í gegnum þessi þjóðlendumál öll að ný gögn finnast oft eftir að úrskurðað hefur verið.“ Hart deilt á stjórnarskrármálið Að loknum fundinum hófst málþing um stjórnarskrármálið þar sem frummælendur voru þeir Karl Axelsson hæstaréttarlögmaður, Ari Teitsson, varaformaður Stjórnlaga- ráðs, og Reimar Pétursson hæsta- réttar lögmaður. Í máli Ara kom fram að hann teldi margt hníga til þess að Ísland þyrfti á nýrri stjórnarskrá að halda. Í núverandi stjórnarskrá væri stjórnskipun um margt óljóst og ekki síður væri eignarhald á auðlindum óskýrt. Hins vegar teldi hann því miður ekki útlit fyrir að takast mætti að klára breytingarnar fyrir þinglok eins og hann hefði vonast til. Ari lagði áherslu á mikilvægi auðlinda og að þær yrðu tryggðar fyrir komandi kynslóðir. Hins vegar yrði að varast að aðgerðir í þeim efnum yrðu til þess að gengið yrði á eignarrétt fólks. Hann tók fram að í tillögum Stjórnlagaráðs um auðlindaákvæði hefði ekki verið átt við auðlindir í einkaeigu og hvatti til umræðu um ákvæðið. Reimar bar saman ferli breytinga stjórnarskrárinnar hér við setningu stjórnarskrár Bandaríkjanna á sínum tíma. Hann benti á að við setningu stjórnarskrárinnar bandarísku hefði verið brýn þörf á slíkri vinnu enda hefði borgarastyrjöld þá verið nýafstaðin þar í landi. Hér á landi hefði hins vegar ekki verið nein brýn nauðsyn til að setja nýja stjórnarskrá. Ekki hefðu heldur verið sett skýr markmið um þær niðurstöður sem stjórnarskrárferlið ætti að hafa í för með sér. Ekki hefði náðst sátt um ferlið og í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu hefði verið notast við óljós hugtök á borð við „lagt til grundvallar“ og „frumvarp“. Reimar sagðist ekki undrast það að margir hefðu sniðgengið þjóðaratkvæðagreiðsluna. Reimar fór hörðum orðum um ferlið í niðurlagi erindis síns og sagði ljóst að ákveðnir stjórnmálamenn vildu samþykkja breytingarnar, sama hvaða afleiðingar það kynni að hafa. Allt ferlið markaðist af tilraunastarfsemi og því að horft væri framhjá reynslu annarra þjóða. Eignaupptaka hugsanleg Karl fjallaði um eignarréttinn í erindi sínu og fór sérstaklega yfir þau ákvæði í frumvarpi til nýrra stjórnskipunarlaga sem hann taldi varða landeigendur. Meðal annars gerð hann 32. grein frumvarpsins að umtalsefni en þar er fjallað um menningar- og náttúruverðmæti. Karl sagði ákvæðið hafa afar rúma merkingu ef horft væri til upptalningar í skýringum Stjórnlagaráðs. Þjóðareignarhugtak væri rúmt ef horft væri til þessarar greinar og túlka mætti það þannig að eignaupptaka væri möguleg þar eð ekki væri gerður fyrirvari um hverjir væru eigendur þessara verðmæta nú. Þá sagði Karl greinargerð með 34. grein, sem fjallar um auðlindir og þjóðareign, ónothæfa eins og hún liti út. Þar vantaði útlistun á nýjum hugtökum, á borð við þjóðareign. Jafnframt væri lítið hugað að auðlindum á landi en mest horft til sjávarauðlindarinnar. Karl gagnrýndi að skipt hafi verið út orðinu „einkaeignaréttur“ fyrir „í einkaeigu“. Með þessu væru eignarréttindi sveitarfélaganna í landinu gerð upptæk. Ríki gætu ekki selt jarðir með auðlindum nema undanskilja t.a.m. laxveiðiár. Þá yrðu vatnsréttindi óljós og eignarréttur sjávarjarða yrði afnumin þar sem tekið var út „utan netalaga“. Karl sagði loks að tillögur meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar væru almennt afar slæmar og 34. greinin hefði ekki batnað í meðförum Alþingis, raunar væri búið að setja aftur inn annmarka sem sérfræðingahópurinn hefði tekið út. /fr BÆNDUR OG RÚNINGSMENN ATHUGIÐ!! Upphengin vinsælu eru til á lager. Nú er ekkert mál að hengja sig upp hvar sem er. Upphengin eru gal- vaniseruð. Hægt að taka í sundur með lítilli fyrirhöfn. Get einnig sérsmíðað fyrir menn eftir óskum. Upplýsingar gefur Steingrímur í síma 899-1049 eða flexiverk@gmail.com. 47 myndir af kindum Bókin 47 myndir af kind- um er að koma út. þessar kindur standa ekki við nýétið rofabarð eða hanga á hvolfi í sláturhúsinu, heldur taka þær daginn snemma, skreppa í heim- sókn til mömmu eða slaka á við leik og störf. Höfundur mynda og texta er Magga og textinn er bæði á íslensku og ensku. bókin kostar kr. 2.990 kr og er hægt að nálgast hjá höfundi í gegnum tölvu- póst magga2612@simnet.is eða í síma 868-0978 Landeigendur vilja endurupptökuákvæði í þjóðlendulög Frá aðalfundi Landssamtaka landeigenda 14. febrúar. Myndir / fr Örn Bergsson formaður samtakanna í pontu. Bændablaðið Með yfirburðalestur á landsbyggðinni (Samkvæmt lestrarkönnun Capacent) Kemur næst út 7. mars Smáauglýsingar 56-30-300 Hafa áhrifum land allt!

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.