Bændablaðið - 21.02.2013, Page 33

Bændablaðið - 21.02.2013, Page 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 21. febrúar 2013 Með sívaxandi fólksfjölda hefur álag á vistkerfi jarðarinnar aukist verulega, meðal annars vegna þeirra landbúnaðaraðferða sem notaðar eru til að ná fram sem mestri uppskeru svo að hægt sé að brauðfæða fjöldann. Ræktunar- aðferðir nútímans hafa stuðlað að alvarlegum umhverfisspjöllum, svo sem landeyðingu, skemmdum á vist kerfum, vatnsskorti og vatns mengun. Hana má meðal annars má rekja til mikillar notkunar á tilbúnum áburði og eiturefnum. Á sama tíma hefur það landbúnaðarsvæði sem háð er reglulegri vökvun við ræktun, tvöfaldast síðastliðin 50 ár. Skaðlegar loftslagsbreytingar Landbúnaður er mikill áhrifavaldur í losun gróðurhúsalofttegunda. Talið er að bein losun tengd búskapnum sjálfum sé um 13% af heildarlosun gróðurhúsalofttegunda árlega, en rúmlega 30% ef reiknað er með losun vegna aðfanga, tækja, vinnslu afurða, breyttri landnotkun og vegna dreifingar og flutninga. Loftslagsbreytingar gætu haft mikil áhrif á landbúnaðinn í framtíðinni þar sem því er spáð að ýmiss konar öfgar í veðri aukist, svo sem hitabylgjur, þurrkar og flóð. Á árunum 1970-2004 jókst losun gróðurhúsalofttegunda af mannavöldum um 70%. Olíu- og fosfórskortur Hefðbundnar landbúnaðaraðferðir eru háðar mikilli notkun á olíu og fosfóráburði, sem hvorttveggja eru þverrandi auðlindir. Spár reikna með að hámarksolíuframleiðslu verði náð árið 2035, aðrir halda því fram að hámarksframleiðslu hafið þegar verið náð. Talið er að nú sé búið að nota um helming alls fosfórs í heiminum og fyrirséð að innan 30 ára þurfi að fara að vinna hann frá svæðum af minni gæðum. Meiri vinnsla hækkar verðið. Fosfór er nauðsynlegur öllum lífverum og ekkert annað efni kemur í hans stað. Alþjóðastofnanir mæla með lífrænum búskap Í alþjóðlegu mati á stöðu landbúnaðar í heiminum er fjallað um að í langan tíma hafi verið lögð áhersla á búskaparhætti í landbúnaði þar sem hægt væri að framleiða sem mest á sem lægstu verði. En nú sé svo komið að ekki sé hægt að halda áfram á þessari braut, það verði að framleiða matvæli á grundvelli sjálfbærrar þróunar. Samkvæmt Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna er ljóst að þær landbúnaðaraðferðir sem notaðar verða í framtíðinni verða að fela í sér sjálfbæra nýtingu auðlinda1. Lífræn ræktun hefur verið nefnd sem ein af þeim aðferðum sem leggja ætti áherslu á8. Í skýrslu Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðannna og Viðskipta- og þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2008 segir að lífrænn landbúnaður: á meðal vatn og fjölbreytileika lífríkisins framleiðni til lengri tíma og neytenda. Í skýrslunni kemur einnig fram að lífrænn landbúnaður noti 20-56% minni orku til að framleiða hverja einingu af uppskeru miðað við hefðbundna ræktun og lífrænir akrar bindi 3-8 sinnum meira af kolefni á hvern hektara en hefðbundin ræktun og gætu því verið mikilvægur þáttur í að draga úr nettóútstreymi gróðurhúsalofttegunda. Græna hagkerfið – stefnumótun stjórnvalda Fjölmörg lönd hafa sett sér markmið til að auka lífræna ræktun á næstu árum og stuðlað að því marki t.d með fjárhagslegum hvötum, innkaupastefnu stjórnvalda, rannsóknum og fræðslu. Má þar nefna Danmörku, Holland, má segja um ýmis bandalög landa til að mynda Evrópusambandið og Í september árið 2011 kom út skýrsla nefndar alþingis sem bar yfirskriftina: Efling græns hagkerfis á Íslandi, sjálfbær hagsæld – samfélag til áhersla á mikilvægi þess að stjórnvöld móti framkvæmdaáætlun um eflingu lífrænnar framleiðslu á Íslandi, enda eins og fram kemur í skýrslunni, gangi lífrænir búskaparhættir lengst í átt til sjálfbærar þróunar í landbúnaði. Í upphafi árs 2012 voru tillögur þar með tillaga þess efnis að stjórnvöld setji af stað framkvæmdaáætlun með það að markmiði að lífræn framleiðsla verði 15% af landbúnaðarframleiðslu á Íslandi árið 2020. Tölur varðandi hlutfall lífrænna íslenskra land- búnaðar vara á markaði liggja ekki fyrir, en samkvæmt lauslegri áætlun er hlutdeild lífrænna matvara um 2% að innflutningi meðtöldum. saman hvað varðar umfang lífrænnar ræktunar er oftast miðað við hlutfall ræktarlands í lífrænni ræktun. Í þeim samanburði hefur Íslandi dregist verulega aftur úr nágrannalöndunum. Eftirspurn meiri en framleiðsla Eftirspurn eftir lífrænum matvörum hefur aukist mikið undanfarin ár bæði hérlendis og erlendis. í lífrænni matjurtarækt á Íslandi eru langt frá því að anna eftirspurn og þannig virðist það hafa verið lengi. Umframeftirspurn hefur svo verið mætt með innflutningi en ekki eru til neinar upplýsingar um hversu mikill hann gæti verið. Lítil sem engin nýliðun hefur verið í lífrænni matjurtarækt síðan 1996 en bændur hafa þó haldið tryggð við greinina og aukið framleiðsluna. Samt sem áður er hlutdeild lífræns grænmetis lítil á Íslandi og miðað við fyrirhugaða aukningu mun svo verða áfram næstu þrjú árin. Hlutur lífræns byggs ætlað til manneldis er hinsvegar talsverður og eykst mikið helst hafa aukið lífræna ræktun eru aðlögunarstyrkir, en undanfarin ár hafa fjárframlög ríkisins til lífrænnar ræktunar verið skorin niður þannig að ekki er hægt að standa við gerða samninga hvað þá að taka fleiri býli í aðlögunarferli. Nánast allt sem lýtur að uppbyggingu greinarinnar undanfarin ár hefur verið í algjöru lágmarki, má þar nefna rannsóknir, kennslu, styrki, ráðgjafarþjónustu og kynningu. Ekki virðast heldur þær stofnanir sem styðja ættu við greinina vera að standa sig í stykkinu, því að bændur í lífrænni matjurtarækt líta í raun á þær sem helstu hindranir hvað varðar vöxt lífrænnar ræktunar. Möguleikar á Íslandi Með tilliti til sjálfbærrar þróunar eru kostir lífrænnar ræktunar á Íslandi margir, og auðlindir landsins gætu veitt forskot þegar kemur að framleiðslu á matvöru í sem mestri sátt við umhverfið. lífrænni ræktun hérlendis er skortur á lífrænum áburði, en stranglega bannað er að nota tilbúinn áburð í lífrænni ræktun. Á Íslandi fellur mikið til af ýmiss konar úrgangi sem hugsanlega mætti nýta í áburð, svo sem fisk- og sláturúrgang, eða rækjuskel sem nú er losuð í sjóinn. Dæmi eru um að bændur í lífrænni ræktun nýti með góðum árangri það sem annars þyrfti að losna við á annan hátt með tilheyrandi áhrifum á umhverfið. Notkunin er samt háð undanþágum en Heilbrigðiseftirlitið hefur þó veitt leyfi til að fiskúrgangur sé notaður sem áburður. Ein af tillögum nefndar um eflingu græns hagkerfis á Íslandi var að gerð yrði kostnaðar- og ábatagreining á framleiðslu lífræns áburðar hérlendis, bæði til að mæta þörf bænda í lífrænni ræktun og einnig til að bæta nýtingu þess lífræna úrgangs sem fellur til í landinu svo sem í sjávarútvegi, landbúnaði, verslun og þeim tillögum sem nefnd á vegum forsætisráðuneytisins lagði til nýlega að yrði frestað. Í hefðbundinni ræktun er aðallega notaður tilbúinn áburður og allt frá árinu 2001 þegar Áburðarverksmiðja ríkisins hætti starfsemi hefur allur tilbúinn áburður verið fluttur inn á Íslandi, en áburðarverð hefur hækkað mikið undanfarin ár. Mengun og orkunotkun Mikil notkun tilbúins áburðar getur valdið ofauðgun í nágrenni við landbúnaðarsvæði. Útskolun þessara efna í nærliggjandi ár, læki og vötn leiðir af sér að ofvöxtur hleypur í vatnaplöntur, þörunga og svif. Við þessar kringumstæður getur skapast súrefnisskortur sem drepur þær lífverur sem fyrir eru. Ofauðgun í nágrenni við landbúnaðarsvæði hefur víða verið vandamál og má þar nefna Danmörku. Ein af ástæðum þess að dönsk stjórnvöld hafa lagt ríka áherslu á lífrænan landbúnað er sú að ofauðgun í ám, vötnum og sjó var mikið vandamál í Danmörku. Einnig var farið að finnast nítrat og leifar af skordýraeitri í drykkjarvatni og landbúnaðarvörum. ýmissa efna á umhverfið er það ekki einungis notkunin sjálf sem hefur áhrif heldur einnig framleiðsla þeirra og flutningur til kaupenda. Hefðbundinn landbúnaður er háður mikilli orku sem að langmestu leyti er fengin úr óendurnýjanlegu eldsneyti á borð við olíu, kol og gas. Notkunin er meðal annars tilkomin vegna framleiðslu aðfanganna, ræktunar og flutnings. Rannsókn í af orkunotkun tengd landbúnaði er tilkomin vegna framleiðslu áburðar hafa sýnt jafnvel hærra hlutfall. Við þetta bætist svo flutningur vörunnar til kaupenda en flutningum um langan veg fylgir mikil losun gróðurhúsalofttegunda, hún getur jafnvel verið meiri en losun tengd framleiðslu vörunnar. Á Íslandi er nægt vatn og lágt hitastig og einangrun landsins koma í veg fyrir ýmsa þá sjúkdóma sem Íslendingar við þau hlunnindi að hafa jarðhita og rafmagn sem losar aðeins brot af þeim CO2 ígildum sem meðalrafmagnsframleiðsla í ræktun í gróðurhúsum eykur fjölbreytni þeirra tegunda sem hægt er að rækta, lengir ræktunartímann og síðast en ekki síst kemur í veg fyrir innflutning. Úrelt sjónarmið enn við lýði Helstu rök þeirra sem setja sig upp á móti aukinni lífrænni ræktun eru þau að hún geti ekki brauðfætt hinn ört vaxandi fólksfjölda á jörðinni. Uppskeran sé minni og einnig þurfi lífræna ræktunin meira landrými. frá land til að rækta með aðferðum sem þurfi meira pláss og skili minni uppskeru. Núverandi matvælaframleiðsla er talin geta brauðfætt um 10 milljarða manna ( 7 milljarðar byggja jörðina nú). Áætlað er að um þriðjungur af framleiddum mat í heiminum endi í ruslinu. Í nýlegri skýrslu er þetta hlutfall jafnvel talið hærra. Vannæring í heiminum í dag er tilkomin af fátækt og ójöfnuði en ekki vegna þess að skortur sé á matvælum. Rannsókn frá árinu 2006 leiddi í ljós að væru lífrænar landbúnaðaraðferðir teknar upp í þróunarlöndum myndi þær auka var fyrst og fremst að þakka meiri vistfræðiþekkingu varðandi lífræna áburðargjöf, notkun belgjurta, skiptiræktun og árangursríkri vatnsstjórnun. Áður hefur verið minnst á þau rök íslenskra fræðimanna að ekki ætti að auka lífræna ræktun vegna þess hún þurfi meira landrými en hefðbundin ræktun, í þessu samhengi er vert að hafa í huga að í skýrslu um landnotkun á Íslandi frá árinu 2010 kemur fram að aðeins fimmti hluti þess lands sem talið er gott ræktunarland er í raun nýtt sem slíkt. Lokaorð skref í átt til sjálfbærar þróunar og liður í því að tryggja að komandi kynslóðir geti nýtt jörðina með þeim getur lífræn ræktun einnig haft í för með sér ýmsa aðra kosti svo sem fjárhagslegan ávinning og aukna hollustu. Mikil vakning hefur átt sér stað út um allan heim um kosti þess að leggja áherslu á lífrænar landbúnaðaraðferðir, en einhverra hluta vegna virðist þetta ekki vera áherslan hérlendis. Ragna D. Davíðsdóttir MS í umhverfis- og auðlindafræði frá Háskóla Íslands og höfundur nýútkominnar skýrslu um lífræna matjurtarækt á Íslandi. Sjálfbær þróun með lífrænni ræktun Heimildir FAO. (2011) The state of the world's land and water resources for food and agriculture: Managing systems at risk. Rome: Food and Agriculture Organization of the United Nation (FAO). UNCTAD. (2010). Agriculture at the Crossroads: Guaranteeing Food Security in a Changing Climate. Achieving food security in the face of climate change: Final report from the Commission on Sustain- able Agriculture and Climate Change. Copenhagen, Denmark: CGIAR Research Program on Climate Change, Agriculture and Food Security (CCAFS). Pachauri, R. K., & Reisinger, A. (Eds.) (2007). Climate change 2007: Synthesis Report. Geneva, Switzerland: IPCC. IEA. (2010). World Energy Outlook 2010. París: IEA. Aleklett, K., Höök, M., Jakobsson, K., Lardelli, M., Snowden, S. & Söderbergh, B. (2010). The Peak of the Oil Age – Analyzing the World Oil Production Reference Scenario in World Energy Outlook 2008. Energy Policy, 38(3), 1398-1414. Oxford: Elsevier Ltd. Sverdrup, H. U. & Ragnarsdottir, K. V. (2011). Challenging the planetary boundaries II: Assessing the sustainable global population and phosphate supply, using a systems dynamics assessment model. Applied Geochemistry, 26, S307-S310 IAASTD (2008). Agriculture at a Crossroads: Executive Summary of the Synthesis Report. Washington, DC: Island Press. UNEP-UNCTAD. (2008). Best practices for organic policy what developing country governments can do to promote the organic agriculture sector. New York: United Nations. hagsæld - samfélag til fyrirmyndar. Reykjavík: Alþingi. Guðni Einarsson, Guðríður Helgadóttir, Helga Þórðardóttir, ÓIafur R. Dýrmundsson & Sigurður Jóhannesson. (2010). Staða og horfur í lífrænum landbúnaði og tillögur um stuðning við aðlögun að lífrænum búskap á Íslandi. Skýrsla til Jóns Bjarnasonar ráðherra. Norfelt, T. F. (2011). Organic farming in Denmark. Heller, M. C. & Keoleian, G. A. (2000). Life Cycle-Based Sustainability Indicators for Assesment of the U.S Food System. (Skýrsla Nr. CSS00-04). Michigan: University of Michigan. Sims, R. E. H. & Dubois, O. (2011). Energy-smart food for people and climate: issue paper. Rome: FAO. Ólafur R. Dýrmundsson. (2008, 16. maí). Skilyrði fyrir lífrænan landbúnað á Íslandi. Málþing Land- búnaðarháskóla Íslands, Norræna húsinu, Reykjavík. Institution of Mechanical Engineers. (2013). Global food waste not, want not. (Skýrsla). London: Institution of Mechanical Engineers. Badgley, C., Moghtader, J., Quintero, E., Zakem, E., Jahi Chappeli, M., Avilés-Vázquez, K., Samulon, A. & Perfecto, I. (2006). Organic agriculture and the global food supply. Renewable Agriculture and Food Systems 22(2), 86-108. Arnór Snæbjörnsson, Drífa Hjartardóttir, Eiríkur Blöndal, Jón Geir Pétursson, Ólafur Eggertsson og Þórólfur Halldórsson. (2010). Skýrsla nefndar um landnotkun. Athugun á notkun og varðveislu ræktanlegs lands. Reykjavík: Sjávarútvegs og landbúnaðarráðuneytið. Ragna D. Davíðsdóttir

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.