Bændablaðið - 28.11.2013, Side 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. nóvember 20132
Fréttir
Breyttar reglur:
Upprunamerkingar
á kjöti í árslok 2014
Síðbúinn bænda-
fundur á Ísafirði
Bændafundir Bændasamtakanna
hafa staðið yfir síðustu vikur og
gengið vel. Fresta þurfti fundi
á Ísafirði vegna óhagstæðra
flugskilyrða en ný dagsetning er
mánudagurinn 2. desember.
Á fundinn koma að sunnan þeir
Sindri Sigurgeirsson, formaður BÍ,
og Elías Blöndal, lögfræðingur
samtakanna. Sindri ræðir um
þau mál sem efst eru á baugi í
landbúnaðinum en Elías fjallar
um eignarhald og viðskipti með
bújarðir. Á eftir erindum verða
umræður. Boðið er upp á súpu og
brauð en fundurinn verður haldinn
á Hótel Ísafirði og hefst kl. 12.00.
Framleiðsla á innlendu kjöti jókst
að meðaltali um 2,2% á á tólf
mánaða tímabili frá nóvember-
byrjun 2012 til októberloka
2013 sam kvæmt tölum Lands-
samtaka sláturleyfis hafa. Hafði
framleiðsla aukist í öllum
búgreinum miðað við sama
tímabil í fyrra nema í nauta-
kjöti og svína kjöti. Athygli vekur
að innflutningur á kjöti hefur
hins vegar aukist verulega á
milli ára. Þannig jókst sá inn-
flutningur úr 874,8 tonnum
á fyrstu níu mánuðum ársins
2012 í tæp 1.234 tonn á sama
tímabili 2013, eða um rúm
41%. Þá hefur útflutningur
á ýmsum sauðfjár afurðum
einnig aukist töluvert eða um
14% á tólf mánaða tímabili og
á hrossakjöti um 22,9%. Vekur
einnig athygli að útflutningur
á ýmsum svínaafurðum hefur
aukist um 117,3%.
Mest aukning í innflutningi á
svína- og alifuglakjöti
Mest aukning hefur orðið á
innflutningi á svínakjöti fyrstu níu
mánuði þessa árs eins og greint
var frá í síðasta Bændablaði,
úr 217,5 tonnum í 445,5 tonn.
Veruleg aukning hefur líka verið
í innflutningi á alifuglakjöti, eða úr
451 tonni í rúm 624 tonn. Hinsvegar
hefur innflutningur á nautakjöti
dregist örlítið saman, en aukist
lítilsháttar á öðrum kjötvörum að
undanskildi kindakjöti.
Þrátt fyrir mikinn innflutning
hefur innanlandsframleiðslan
á alifuglakjöti líka aukist á tólf
mánaða tímabili. Nam hún tæpum
8.020 tonnum og er aukningin um
2,7%. Framleiðslan í október var
rúm 766 tonn.
Nautakjötsframleiðslan eykst
lítillega
Af nautakjöti voru framleidd 359,7
tonn í október síðastliðnum sem er
8,7% samdráttur frá sama mánuði
2012. Miðað við tólf mánaða
tímabil voru hins vegar framleidd
4.174,2 tonn af nautakjöti, sem er
0,6% aukning milli ára.
Eldri kýr og bolar í þriðja sæti
Ef litið er á frekari greiningu í
nautakjötsframleiðslunni kemur í
ljós að mest hefur verið framleitt
af ungnautakjöti, rúm 215,8 tonn
í október síðastliðnum en 2.451,7
tonn á tólf mánaða tímabili. Næst
er kýrkjöt eða tæp 126,8 tonn í
október og tæplega 1.449 tonn á
tólf mánuðum. Kjöt af eldri kúm
og bolum er svo í þriðja sæti en af
því voru framleidd tæp 14 tonn í
október og rúm 47,5 tonn miðað
við heilt ár. Alikálafkjöt rekur svo
lestina, en af því voru framleidd
776 tonn í október síðastliðnum
og rétt tæp 16 tonn á 12 mánaða
tímabili.
Nautakjötssalan eykst lítillega
milli ára
Ef litið er á söluna á nautakjöti í
heild hefur hún aukist um 1,1%
miðað við 12 mánaða tímabil.
Salan á nautakjöti sem framleitt
er hér innanlands hefur í heildina
aukist um 19 tonn á sama tímabili.
Var salan í október einnig
heldur meiri en framleiðslan og
munar þar tæpum fimm tonnum,
en birgðir í upphafi mánaðar námu
rúmum 12 tonnum.
Hlutfallslega mest aukning
í hrossakjötsframleiðslu
Í október voru framleidd 766,057
tonn af alifuglakjöti sem er um
8,1% aukning miðað við sama
mánuð í fyrra. Þá voru framleidd
131,7 tonn af hrossakjöti, sem er
21,2% aukning milli ára. Þá voru
framleidd 5.344,2 tonn af kindakjöti
sem er 0,9% aukning frá október
í fyrra. Svínakjötsframleiðslan
var svo 584,6 tonn, sem er 4,4%
samdráttur frá október í fyrra. Í
heild voru framleidd 7.186,3 tonn
af kjöti hér innanlands í október.
Hrossakjötssalan hefur tekið
kipp
Ef tekið er mið af kjötsölu úr
innlendri framleiðslu yfir 12
mánaða tímabil frá nóvemberbyrjun
2012 til októberloka 2013 hefur
orðið hlutfallslega langmest
aukning í sölu á hrossakjöti, eða
12,9%. Þess ber þó að geta að
hlutdeild hrossakjötssölunnar af
heildarkjötsölunni á innanlands-
markaði er ekki nema 2,6%.
Alls voru framleidd tæplega
132 tonn af hrossakjöti í október
en rúmlega 1.435 tonn á tólf
mánaða tímabili. Innanlandssalan
á hrossakjöti er þó talsvert minni
en framleiðslan eða tæp 88 tonn
í október og rúm 648 tonn á tólf
mánuðum. Ekki er þó um verulega
birgðasöfnun að ræða heldur liggur
skýringin í útflutningi sem nam
rúmum 803 tonnum á 12 mánaða
tímabili.
Kindakjötssalan í október sló
met
Sala á kindakjöti frá afurða-
stöðvum til kjötvinnsla og verslana
í október nam rúmum 1.210
tonnum sem er 8,7% aukning frá
sölu kindakjöts í október 2012.
Er þetta mesta salan á kindakjöti
sem náðst hefur í einum mánuði á
þessari öld.
Miðað við 12 mánuði er
hlutfallsleg aukning í kjötsölunni
næstmest í sölu á kindakjöti, eða
5,1%, en hlutdeild kindakjöts á
markaðnum er 27,1%.
Alifuglakjötið er í heildina
vinsælast
Þá hefur alifuglasalan aukist um
3,3%, en alifuglakjöt er greinilega
vinsælast með neytenda. Er
hlutdeild þess í heildarssölu á kjöti
á 12 mánaða tímabili 31,4%. Þá
hefur nautakjötsalan aukist um
1,1% á þessum 12 mánuðum, en
hlutdeild nautakjöts á markaðnum
er 16,5%. Hins vegar stendur
salan á svínakjöti í stað en sú
tegund kjötvöru er með 22,4%
markaðshlutdeild, næst á eftir
kindakjöti.
/HKr.
Heildarinnflutningur á kjöti jókst
um 41% fyrstu níu mánuði ársins
– Innanlandsframleiðsla miðað við tólf mánaða tímabil hefur að meðaltali aukist um 2,2%
Riða greinist
í Berufirði
Riða af tegundinni Nor98 hefur
fundist á bænum Krossi í Berufirði
á Austfjörðum. Riðan fannst í
kind frá bænum við reglulega
skimun Matvælastofnunar fyrir
skemmstu. Umrætt afbrigði riðu
er talið afbrigðilegt og ekki er talin
ástæða til að skera niður sauðfé
á bænum. Hins vegar verður
vöktun vegna riðu á Krossi og á
nágrannabæjum aukin.
Síðast greindist Nor98 í kind sem
kom í sláturhús haustið 2011 frá bæ
í Jökuldal. Erlendar rannsóknir hafa
sýnt að Nor98 er ekki smitandi á
sama hátt og hefðbundin riða.
Nor98 hefur fundist í mörgum
löndum en engar vísbendingar
eru um að smitefnið berist milli
kinda á náttúrulegan hátt. Nor98
hefur meðal annars fundist á Nýja-
Sjálandi en alþjóðlega er viðurkennt
að landið sé laust við hefðbundna
riðu. Því verður ekki skorið niður á
Krossi en vöktun aukin.
Kross er í Suðurfjarðahólfi, þar
sem hefðbundin riða hefur greinst á
13 bæjum á undanförnum 20 árum
frá 1994 til 2005. Í dag er sauðfé á
sjö þessara bæja. Suðurfjarðahólf er
því skilgreint sem riðuhólf og verður
það til 2025 ef ekki greinist þar
hefðbundin riða á ný. Í riðuhólfum
er bannað að flytja kindur milli
hjarða og full ástæða er til að minna
bændur á að það bann gildir um alla
bæi í hólfinu. /fr
Alifuglakjöt
Hrossakjöt
Nautakjöt
Sauðfé
Svínakjöt
Alifuglakjöt
Hrossakjöt
Nautakjöt
Sauðfé *
Svínakjöt
* Sala á sauðfé mánuð er sala frá afurðastöðum til kjötvinnsl a og verslana.
Mynd/HKr.
Skylt verður að merkja kjöt
á markaði hérlendis með
upprunamerkingum frá desember
2014. Á þetta við um ferskt og fryst
svínakjöt, kindakjöt, geitakjöt og
alifuglakjöt. Er þetta í samræmi
við reglugerð Evrópusambandsins
sem tekur gildi 13. desember á
næsta ári og verður skylt að taka
upp hér á landi í samræmi við
ákvæði EES-samningsins.
Þegar eru í gildi reglur um upp-
runamerkingar á fersku og frosnu
nautakjöti sem tóku gildi haustið
2011. Þá verður skylt að geta upp-
runa aðalhráefnis samsettrar vöru
sé uppruni þess annar en vörunnar
sjálfrar.
Þetta kemur fram í frétt á
heimasíðu Matvælastofnunar, en þar
er málið sett í samhengi við umræðu
um uppruna kjúklingakjöts sem
hefur verið í kastljósinu undanfarna
daga. Engin ákvæði eru um að
merkja skuli uppruna alifuglakjöts
né annars kjöts, utan nautakjöts, hér
á landi. Ekkert mælir því á móti því
að uppþítt kjúklingakjöt sé selt hér
á landi, sem og annað kjöt. Því eru
merkingar á kjöti ekki blekkjandi sé
uppruni þess ekki gefinn í skyn með
merkingum né markaðssetningu
samkvæmt núgildandi reglum. /fr