Bændablaðið - 28.11.2013, Blaðsíða 48

Bændablaðið - 28.11.2013, Blaðsíða 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 28. nóvember 2013 Fróðleiksbásinn Vilmundur Hansen þjóðfræðingur og garðyrkjufræðingur Þjóðsögur eiga sér margar og merkilegar birtingarmyndir. Flestir tengjast þær fortíðinni og gamla bændasamfélaginu, álfum, draugum og tröllum. Þrátt fyrir þetta eru nýjar þjóðsögur alltaf að verða til og í kringum sumar persónur verða til svo margar sögur að það líkist fári. Sögur um Elvis Presley eru dæmi um þetta; frægðarstjarna hans hefur aldrei risið hærra en í dag, rúmum þrjátíu árum eftir að hann lést. Vinsældir Elvisar og sala á tónlist hans eru þvílíkar að það mundi sæma hvað lifandi tónlistarmanni sem væri. Ævi Elvisar er saga um fátækan dreng sem brýst til frægðar af eigin rammleik. Hann eignast allt sem hugurinn girnist en fær leið á öllu, tapar sér í frægðinni og glatar öllu, eða eins og hann söng sjálfur „a rat race at a snail's pace“. Sögurnar öðlast líf Skömmu eftir að frægðarsól Presleys tók að rísa fóru af stað sögur. Ein er á þá leið að eftir að eigandi Sun-útgáfufyrirtækisins heyrði fyrstu upptöku Evisar á hann að hafa sagt að það væri mun væn- legra fyrir Elvis að halda áfram að keyra vörubíl í stað þess að reyna fyrir sér í tónlist. Önnur saga er á þá leið að Elvis hafi verið mikill kynþáttahatari og hafi lýst því yfir að það eina sem negrar gætu gert fyrir sig væri að kaupa plöturnar sínar og bursta skóna. Báðar sögurnar verða að teljast mjög vafasamar þar sem eigandi Sun gaf út fyrstu Elvis-plötuna og hann var undir sterkum áhrifum frá trúartónlist þeldökkra Suðurríkjamanna. Gat ekki meira Eftir að tilkynnt var um dauða Elvisar 16. ágúst 1977 hafa gengið sögur um að hann væri langt frá því að vera látinn heldur væri hann við góða heilsu. Á hverju ári berast fréttir víðs vegar að úr heiminum um að til hann hafi sést allt frá Kópaskeri til Kalkútta. Vikublaðið World Weekly News var einstaklega iðið við að birta frásagnir af þessu. Blaðið hefur til dæmi sagt frá því að Elvis búi á Hawaii, ásamt núverandi eiginkonu sinni, undir nafninu John Burrows. Elvis mun hafa greint frá því í viðtali að hann hafi verið að bugast undan frægðinni og álaginu sem henni fylgdi og dauði sinn hafi verið settur á svið svo að hann gæti lifað eðlilegu lífi. Hann segist reyndar búa sjaldan lengi á sama stað því hann sé á stanslausum flótta undan því að þekkjast. Elvis hefur reyndar breyst talsvert með aldrinum og í dag er hann kominn með bjórvömb, skegg og skalla. Hann segir að sér líði ágætlega en iðrast þess að hafa svikið aðdáendur sína með þessum hætti. „Ég ætlaði mér ekki að særa neinn, ég gat bara ekki meira.“ Í annarri frétt í sama blaði segir að í staðinn fyrir Elvis hafi verið búin til nákvæm vaxmynd af kóng- inum og hún höfð til sýnis meðan líkið stóð uppi og að það hafi verið lík óþekkts Englendings sem fór í gröfina. Í öðru blaði er því haldið fram að Elvis sé geimvera og það hafi sést til hans á tunglinu. Þessi hugmynd kemur reyndar líka fram í kvikmyndinni Men in Black þar sem sagt er að Elvis hafi ekki dáið heldur farið heim. Heilagur Elvis Frá dauða Presleys hafa verið stofnuð trúfélög sem hafa tekið hann í guðatölu. Sumir halda því fram að hann sé frelsarinn endur- fæddur og þess hefur verið farið á leit að kaþólska kirkjan taki hann í tölu dýrlinga. The Church of Elvis í Portland í Oregon er opin allan sólarhringinn og þar er hægt að ganga í hjónaband og Elvis-eftirherma syngur við brúðkaupið. Önnur birtingarmynd Elvis-dýrkunarinnar er að á hverju ári er keppt úti um allan heim þar í því að líkjast goðinu í útliti og háttum. Það eru því til taílenskir, japanskir, norskir og íslenskir Elvisar. Fyrir nokkrum árum heiðraði bandaríska póstþjónustan goðið með því að setja mynd af honum á frímerki og kraftaverkin gerast enn. Stuttu seinna lýsti bandarísk kona því yfir að hún hefði læknast af krabbameini í hálsi eftir að hafa sleikt Elvis-frímerki. Frá Hollandi hafa borist þær fréttir að stytta af Elvis gráti blóði eins og Maríumyndir gera annað slagið. Helgidómurinn Graceland Líkt og aðrir dýrlingar á Elvis sinn helgireit þangað sem dýrkendur hans sækja í stríðum straumum alla daga ársins þótt fjöldinn sé mestur í kringum fæðingar- og dánardag hans. Margir líta á Graceland sem helgidóm og telja sér skylt að fara í pílagrímsferð þangað að minnsta kosti einu sinni á ævinni, líkt og múslímar sem verða að fara til Mekka. Dagbækurnar Fyrir nokkrum árum hélt banda- rískur blaðamaður því fram að hann hefði fundið dagbækur Elvisar og að síðasta færslan væri dagsett tveimur árum eftir dauða hans. Fréttin vakti mikla athygli og þótti óræk sönnun þess að Presley hefði ekki dáið 1977 eins og haldið er fram opinberlega. Sagan af dag- bókunum minnir óneitanlega á dag- bækur Hitlers á sínum tíma og það sem meira er, þær hurfu á dular- fullan hátt áður en blaðamaðurinn gat sýnt þær eða birt nokkuð úr þeim. Aldrei vinsælli en núna Sé litið til vinsælda og æðisins í kringum Elvis Presley á undan- förnum árum er engu líkara en að hann hafi snúið aftur frá dauðum og sé ódauðlegur. Sala á tónlist hans hefur aldrei verið meiri og talið er að búið sé að selja rúmlega milljarð eintaka, sem þýðir að sjötta hver manneskja á jörðinni á plötu með Elvis, hann lifir. Elvis lifir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.