Bændablaðið - 28.11.2013, Blaðsíða 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 28. nóvember 2013
Fróðleiksbásinn
Vilmundur Hansen þjóðfræðingur og garðyrkjufræðingur
Þjóðsögur eiga sér margar og
merkilegar birtingarmyndir.
Flestir tengjast þær fortíðinni og
gamla bændasamfélaginu, álfum,
draugum og tröllum. Þrátt fyrir
þetta eru nýjar þjóðsögur alltaf
að verða til og í kringum sumar
persónur verða til svo margar
sögur að það líkist fári.
Sögur um Elvis Presley eru
dæmi um þetta; frægðarstjarna
hans hefur aldrei risið hærra en
í dag, rúmum þrjátíu árum eftir
að hann lést. Vinsældir Elvisar
og sala á tónlist hans eru þvílíkar
að það mundi sæma hvað lifandi
tónlistarmanni sem væri.
Ævi Elvisar er saga um fátækan
dreng sem brýst til frægðar af eigin
rammleik. Hann eignast allt sem
hugurinn girnist en fær leið á öllu,
tapar sér í frægðinni og glatar öllu,
eða eins og hann söng sjálfur „a rat
race at a snail's pace“.
Sögurnar öðlast líf
Skömmu eftir að frægðarsól
Presleys tók að rísa fóru af stað
sögur. Ein er á þá leið að eftir að
eigandi Sun-útgáfufyrirtækisins
heyrði fyrstu upptöku Evisar á hann
að hafa sagt að það væri mun væn-
legra fyrir Elvis að halda áfram að
keyra vörubíl í stað þess að reyna
fyrir sér í tónlist. Önnur saga er á
þá leið að Elvis hafi verið mikill
kynþáttahatari og hafi lýst því yfir
að það eina sem negrar gætu gert
fyrir sig væri að kaupa plöturnar
sínar og bursta skóna.
Báðar sögurnar verða að teljast
mjög vafasamar þar sem eigandi
Sun gaf út fyrstu Elvis-plötuna
og hann var undir sterkum
áhrifum frá trúartónlist þeldökkra
Suðurríkjamanna.
Gat ekki meira
Eftir að tilkynnt var um dauða
Elvisar 16. ágúst 1977 hafa gengið
sögur um að hann væri langt frá
því að vera látinn heldur væri hann
við góða heilsu. Á hverju ári berast
fréttir víðs vegar að úr heiminum
um að til hann hafi sést allt frá
Kópaskeri til Kalkútta.
Vikublaðið World Weekly News
var einstaklega iðið við að birta
frásagnir af þessu. Blaðið hefur til
dæmi sagt frá því að Elvis búi á
Hawaii, ásamt núverandi eiginkonu
sinni, undir nafninu John Burrows.
Elvis mun hafa greint frá því í
viðtali að hann hafi verið að bugast
undan frægðinni og álaginu sem
henni fylgdi og dauði sinn hafi verið
settur á svið svo að hann gæti lifað
eðlilegu lífi. Hann segist reyndar
búa sjaldan lengi á sama stað því
hann sé á stanslausum flótta undan
því að þekkjast. Elvis hefur reyndar
breyst talsvert með aldrinum og í
dag er hann kominn með bjórvömb,
skegg og skalla. Hann segir að sér
líði ágætlega en iðrast þess að hafa
svikið aðdáendur sína með þessum
hætti. „Ég ætlaði mér ekki að særa
neinn, ég gat bara ekki meira.“
Í annarri frétt í sama blaði segir
að í staðinn fyrir Elvis hafi verið
búin til nákvæm vaxmynd af kóng-
inum og hún höfð til sýnis meðan
líkið stóð uppi og að það hafi verið
lík óþekkts Englendings sem fór í
gröfina. Í öðru blaði er því haldið
fram að Elvis sé geimvera og það
hafi sést til hans á tunglinu. Þessi
hugmynd kemur reyndar líka fram
í kvikmyndinni Men in Black þar
sem sagt er að Elvis hafi ekki dáið
heldur farið heim.
Heilagur Elvis
Frá dauða Presleys hafa verið
stofnuð trúfélög sem hafa tekið
hann í guðatölu. Sumir halda því
fram að hann sé frelsarinn endur-
fæddur og þess hefur verið farið á
leit að kaþólska kirkjan taki hann
í tölu dýrlinga.
The Church of Elvis í Portland í
Oregon er opin allan sólarhringinn
og þar er hægt að ganga í hjónaband
og Elvis-eftirherma syngur við
brúðkaupið. Önnur birtingarmynd
Elvis-dýrkunarinnar er að á hverju
ári er keppt úti um allan heim þar
í því að líkjast goðinu í útliti og
háttum. Það eru því til taílenskir,
japanskir, norskir og íslenskir
Elvisar.
Fyrir nokkrum árum heiðraði
bandaríska póstþjónustan goðið
með því að setja mynd af honum
á frímerki og kraftaverkin gerast
enn. Stuttu seinna lýsti bandarísk
kona því yfir að hún hefði læknast
af krabbameini í hálsi eftir að
hafa sleikt Elvis-frímerki. Frá
Hollandi hafa borist þær fréttir að
stytta af Elvis gráti blóði eins og
Maríumyndir gera annað slagið.
Helgidómurinn Graceland
Líkt og aðrir dýrlingar á Elvis sinn
helgireit þangað sem dýrkendur
hans sækja í stríðum straumum alla
daga ársins þótt fjöldinn sé mestur
í kringum fæðingar- og dánardag
hans. Margir líta á Graceland sem
helgidóm og telja sér skylt að fara
í pílagrímsferð þangað að minnsta
kosti einu sinni á ævinni, líkt og
múslímar sem verða að fara til
Mekka.
Dagbækurnar
Fyrir nokkrum árum hélt banda-
rískur blaðamaður því fram að hann
hefði fundið dagbækur Elvisar og
að síðasta færslan væri dagsett
tveimur árum eftir dauða hans.
Fréttin vakti mikla athygli og þótti
óræk sönnun þess að Presley hefði
ekki dáið 1977 eins og haldið er
fram opinberlega. Sagan af dag-
bókunum minnir óneitanlega á dag-
bækur Hitlers á sínum tíma og það
sem meira er, þær hurfu á dular-
fullan hátt áður en blaðamaðurinn
gat sýnt þær eða birt nokkuð úr
þeim.
Aldrei vinsælli en núna
Sé litið til vinsælda og æðisins í
kringum Elvis Presley á undan-
förnum árum er engu líkara en að
hann hafi snúið aftur frá dauðum og
sé ódauðlegur. Sala á tónlist hans
hefur aldrei verið meiri og talið er
að búið sé að selja rúmlega milljarð
eintaka, sem þýðir að sjötta hver
manneskja á jörðinni á plötu með
Elvis, hann lifir.
Elvis lifir