Bændablaðið - 28.11.2013, Blaðsíða 39

Bændablaðið - 28.11.2013, Blaðsíða 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 28. nóvember 2013 Sjáðu kosti tilboðsins og tryggðu þér hagstætt verð og afhendingu í tæka tíð: ✔ 15% afsláttur af verðlistaverði ef pantað er fyrir 5. janúar 2014 ✔ Vélin er af árgerð 2014 ✔ Kaupandi staðfestir pöntun sína með undirskrift og bindur því ekki lausafé frá rekstri marga mánuði fram í tímann ✔ Kaupandi gengur frá greiðslu við afhendingu og getur því skipulagt vélakaup fram í tímann ✔ Verksmiðjuábyrgð gildir til 2015 ✔ Kaupandi fær þá vél sem honum hentar en ekki vél sem orðið hefur útundan í sölu sumarið 2013 Hverri seldri vél fylgir taska og THERMOS hitabrúsi. Á R A M Ó TAT I L B O Ð FR U M - w w w .f ru m .is Gylfaflöt 32 112 Reykjavík Sími 580 8200 www.velfang.is Óseyri 2 603 Akureyri VERKIN TALA Ég keypti tvær Kuhn vélar af Vélfangi í fyrra, sláttu vél af gerð inni GMD 350 og fjöl fætlu af gerðinni GF 642. Í stuttu máli eru báðar þesar vélar að fara langt fram úr mínum von um, þær skila sínu verki 100%. Ég mæli hiklaust með KUHN! Sverrir Guðmundsson Hvammi Norðurárdal, 311 Borgarnes Ég keypti KUHN GA 7501 hjá Vélfangi síðastliðið vor. Vélin er „tær“ snilld, það er sama hvort túnið sé óslétt, jafnvel illfært eða vel slétt, alltaf skilar vélin fullkomnum rakstri. Og þetta tveggja stjörnu „flykki“ er lipur eins og dansmær. Svo er það sér kapítuli hversu auðveldara er að inn mata rúllu bindi vélar úr múgum eftir svona vélar. Skúli Sigurbjartsson Sólbakka, 531 Hvammstanga Bændablaðið Kemur næst út 12. desember Landgræðsluskógar: Samningur undirritaður Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Magnús Gunnarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands, skrifuðu á þriðjudag undir samning vegna Landgræðsluskóga. Samningurinn felur í sér áframhaldandi stuðning ríkisins við verkefni sem hefur það að markmiði að endurheimta land gæði með ræktun og gróðursetningu í rýrt og ógróið land. Skógræktarfélag Íslands sér um stjórn verkefnisins en skógræktar- félögin sem eru starfrækt víða um land sjá um framkvæmd þess á hverj- um stað, útvegun lands, friðun og vörslu, gróðursetningu og umhirðu. Gerðir eru þinglýstir samningar um öll svæði sem kveða m.a. á um að þau skuli vera opin almenningi til útivistar. Nánast öll skógræktarfélög landsins vinna nú á einn eða annan hátt að verkefninu. Þannig er það vettvangur áhugamannasamtaka í gróðurvernd um allt land. Landgræðsluskógaverkefnið hófst árið 1990 og var hleypt af stokkunum í tilefni 60 ára afmælis Skógræktarfélags Íslands, í sam- vinnu skógræktarfélaganna í landinu, Skógræktar ríkisins, Landgræðslu ríkisins og þáverandi landbúnaðar- ráðuneytis. Gerðir hafa verið samningar um 130 svæði um allt land. Samkvæmt nýlegri úttekt á verkefninu þekja sýnilegir skógar nú tæpa 5.000 hektara. Langflest Landgræðsluskógasvæði eru á landi í eigu sveitarfélaga, ríkis eða skógræktarfélaganna sjálfra. Nýr samningur milli umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og Skógræktarfélags Íslands gildir til fimm ára og felur í sér 35 milljóna króna árlegt framlag til verkefnisins. Sigurður Ingi Jóhannsson, og Magnús Gunnarsson, formaður Ljósveita sett upp á Hvammstanga Á vegum fyrirtækisins Mílu er hafin vinna við að setja upp búnað fyrir Ljósveitu í símstöðinni á Hvammstanga. Til að flýta fyrir lagningu á landsbyggðinni er í fyrsta áfanga settur upp búnaður fyrir Ljósveitu í símstöðvar og geta íbúar sem búa í innan við 1.000 metra línulengd frá símstöðinni tengst fljótt og vel. Hafa íbúar möguleika á að nálgast háhraðaþjónustu um Ljósveitu Mílu hjá fjarskiptafyrirtæki sínu. Með því að tengjast Ljósveitu Mílu fá íbúar möguleika á allt að 50Mb/s til heimila og 25Mb/s frá heimilum. Aukinn gagnaflutningshraði Ljósveitu Mílu býður upp á móttöku á allt að fimm háskerpu- sjónvarpsstöðvum. Hraði og öryggi tengingarinnar skapar kjöraðstæður til fjarvinnu, afþreyingar og samskipta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.