Bændablaðið - 28.11.2013, Qupperneq 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 28. nóvember 2013
Sjáðu kosti tilboðsins og tryggðu þér hagstætt verð og afhendingu í tæka tíð:
✔ 15% afsláttur af verðlistaverði ef pantað er fyrir 5. janúar 2014
✔ Vélin er af árgerð 2014
✔ Kaupandi staðfestir pöntun sína með undirskrift og bindur því ekki
lausafé frá rekstri marga mánuði fram í tímann
✔ Kaupandi gengur frá greiðslu við afhendingu og getur því skipulagt
vélakaup fram í tímann
✔ Verksmiðjuábyrgð gildir til 2015
✔ Kaupandi fær þá vél sem honum hentar en ekki vél sem orðið hefur
útundan í sölu sumarið 2013
Hverri seldri vél fylgir
taska og THERMOS
hitabrúsi.
Á R A M Ó TAT I L B O Ð
FR
U
M
-
w
w
w
.f
ru
m
.is
Gylfaflöt 32 112 Reykjavík Sími 580 8200 www.velfang.is Óseyri 2 603 Akureyri
VERKIN TALA
Ég keypti tvær Kuhn vélar af Vélfangi í fyrra, sláttu vél af
gerð inni GMD 350 og fjöl fætlu af
gerðinni GF 642. Í stuttu máli eru
báðar þesar vélar að fara langt
fram úr mínum von um, þær skila
sínu verki 100%.
Ég mæli hiklaust með KUHN!
Sverrir Guðmundsson
Hvammi Norðurárdal,
311 Borgarnes
Ég keypti KUHN GA 7501 hjá Vélfangi síðastliðið vor. Vélin er „tær“ snilld,
það er sama hvort túnið sé óslétt, jafnvel
illfært eða vel slétt, alltaf skilar vélin
fullkomnum rakstri. Og þetta tveggja
stjörnu „flykki“ er lipur eins og dansmær.
Svo er það sér kapítuli hversu auðveldara
er að inn mata rúllu bindi vélar úr múgum
eftir svona vélar.
Skúli Sigurbjartsson
Sólbakka, 531 Hvammstanga
Bændablaðið
Kemur næst út
12.
desember
Landgræðsluskógar:
Samningur
undirritaður
Sigurður Ingi Jóhannsson,
umhverfis- og auðlindaráðherra,
og Magnús Gunnarsson, formaður
Skógræktarfélags Íslands, skrifuðu
á þriðjudag undir samning vegna
Landgræðsluskóga. Samningurinn
felur í sér áframhaldandi stuðning
ríkisins við verkefni sem hefur
það að markmiði að endurheimta
land gæði með ræktun og
gróðursetningu í rýrt og ógróið
land.
Skógræktarfélag Íslands sér um
stjórn verkefnisins en skógræktar-
félögin sem eru starfrækt víða um
land sjá um framkvæmd þess á hverj-
um stað, útvegun lands, friðun og
vörslu, gróðursetningu og umhirðu.
Gerðir eru þinglýstir samningar um
öll svæði sem kveða m.a. á um að
þau skuli vera opin almenningi til
útivistar. Nánast öll skógræktarfélög
landsins vinna nú á einn eða annan
hátt að verkefninu. Þannig er það
vettvangur áhugamannasamtaka í
gróðurvernd um allt land.
Landgræðsluskógaverkefnið
hófst árið 1990 og var hleypt af
stokkunum í tilefni 60 ára afmælis
Skógræktarfélags Íslands, í sam-
vinnu skógræktarfélaganna í landinu,
Skógræktar ríkisins, Landgræðslu
ríkisins og þáverandi landbúnaðar-
ráðuneytis.
Gerðir hafa verið samningar
um 130 svæði um allt land.
Samkvæmt nýlegri úttekt á
verkefninu þekja sýnilegir skógar
nú tæpa 5.000 hektara. Langflest
Landgræðsluskógasvæði eru á
landi í eigu sveitarfélaga, ríkis eða
skógræktarfélaganna sjálfra.
Nýr samningur milli umhverfis-
og auðlindaráðuneytisins og
Skógræktarfélags Íslands gildir til
fimm ára og felur í sér 35 milljóna
króna árlegt framlag til verkefnisins.
Sigurður Ingi Jóhannsson,
og Magnús Gunnarsson, formaður
Ljósveita sett upp
á Hvammstanga
Á vegum fyrirtækisins Mílu
er hafin vinna við að setja
upp búnað fyrir Ljósveitu í
símstöðinni á Hvammstanga.
Til að flýta fyrir lagningu á
landsbyggðinni er í fyrsta áfanga
settur upp búnaður fyrir Ljósveitu
í símstöðvar og geta íbúar sem búa
í innan við 1.000 metra línulengd
frá símstöðinni tengst fljótt og vel.
Hafa íbúar möguleika á að nálgast
háhraðaþjónustu um Ljósveitu
Mílu hjá fjarskiptafyrirtæki sínu.
Með því að tengjast Ljósveitu
Mílu fá íbúar möguleika á allt að
50Mb/s til heimila og 25Mb/s frá
heimilum.
Aukinn gagnaflutningshraði
Ljósveitu Mílu býður upp á
móttöku á allt að fimm háskerpu-
sjónvarpsstöðvum. Hraði og öryggi
tengingarinnar skapar kjöraðstæður
til fjarvinnu, afþreyingar og
samskipta.