Bændablaðið - 28.11.2013, Blaðsíða 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. nóvember 201310
Fréttir
Íslenskt sauðfé er frægt víðar en á
Íslandi. Afurðir sauðkindarinnar
eru víða eftirsóttar og þá ekki síst
ullin fyrir sína einstöku eiginleika.
Sigrún Lára Shanko textílkona er
ein þeirra fjölmörgu sem hafa nýtt
sér íslenska ull við hönnun sína
á teppum og hefur hún á ferðum
sínum um heiminn sýnt fólki
myndir af skepnunum sem gefa
af sér ullina góðu.
Sigrún var á heimleið eftir að hafa
verið að sýna í London á sýningu
fyrir lúxushótel í Evrópu þegar
Bændablaðið sló á þráðinn til hennar
á mánudag.
Hún var áður búin að vera með
sýningu í London en þaðan fór hún til
Peking. Hún sýndi einnig í Helsinki.
Annars hafa verk hennar verið á
sýningarferðalagi frá maí 2012 þar
til í mars á þessu ári og svo aftur
nú í haust.
Sigrún sendi Bændablaðinu
myndir af vopnfirsku hrútunum
sem hafa fylgt henni á sýningunum
víða um heiminn og með myndunum
fylgdi eftirfarandi frásögn:
„Þetta byrjaði allt saman fyrir
þrem árum að við Finnbogi [Finnbogi
R. Þormóðsson taugalíffræðingur]
vorum í heimsókn á Leiðarhöfn og
Gunnar frændi minn var að keyra
okkur um og sýna okkur rekaviðinn.
Rákumst við þá á þessa tvo hrúta
sem tilheyra Leiðarhöfn. Við
stoppuðum bílinn og þá var eins og
við manninn mælt að þeir stilltu sér
upp og voru teknar nokkrar myndir
af þeim. Frændi minn hafði á orði að
trúlega héldu þeir að það væri verið
að mynda þá fyrir Bændablaðið því
ekki mundi hann eftir því að þeir
væru svo pollrólegir við myndatöku.
Tveim árum síðar tók blaðamaður
Bændablaðsins viðtal við Siggu
Ólafs vöruhönnuð og mig vegna
gólfteppa sem við erum að vinna úr
íslenskri ull. Ég sendi Bændablaðinu
myndir af hrútunum góðu frá
Leiðarhöfn því myndir af þeim hafa
fylgt öllu kynningarefni okkar, hvort
sem er innlendu eða erlendu. En þeir
komust ekki í Bændablaðið því það
skall á þetta hræðilega haust í fyrra
og ekkert pláss var fyrir hrútana
góðu.
Eigi að síður hafa borist
myndir af þeim út um allan heim
og voru þeir á veggspjaldi sem
hékk uppi á hönnunarsýningunni í
Peking sem við tókum þátt í sem
fulltrúar Íslands. Einnig voru þeir á
veggspjaldi á hönnunarsýningunni
100% Design í London. Þeir hafa
vakið verðskuldaða athygli sem
fulltrúar íslensku sauðkindarinnar
og erum við afar stolt af þeim.“
Með kærri kveðju
Sigrún og Finnbogi
Vopnfirskir hrútar orðnir heimsfrægir
Hafa prýtt sýningarspjöld Sigrúnar Láru Shanko textílkonu víðar um heim
Byggðaráð Bláskógabyggðar hefur
samþykkt reglur um samskipti
skóla og trúfélaga, sem byggðar
eru á viðmiðum sem mennta- og
menningarmálaráðuneytið hefur
gefið út.
Þar kemur m.a. fram að leggja
ber áherslu á mikilvægi vandaðrar
trúarbragðafræðslu í fjölmenningar-
samfélagi, en þættir í slíkri fræðslu
geti verið vettvangs heimsóknir til
trúfélaga og að fulltrúum þeirra sé
boðið í kennslustund til að fræða um
trú sína og trúfélag. Þá sé mikilvægt
að fræðslan og heimsóknir sé gerð
á vegum skólans og í þeim tilgangi
að fræða nemendur um tiltekin
trúarbrögð, inntak þeirra, helgidóma
og siði en feli ekki í sér innrætingu
tiltekinna trúarskoðana eða tilbeiðslu.
Heimsóknir í kirkjur í tengslum
við stórhátíðir kristninnar teljast
hluti af fræðslu um trúarhátíðir og
menningarlega arfleifð þjóðarinnar.
Gæta þarf þess að foreldrar og
skólaráð séu upplýstir tímanlega
um námstilhögun, námsefni og
vettvangsferðir. Sama gildir um leik-
og framhaldsskóla þar sem það á við.
Loks segir í reglunum að eftir fremsta
megni skuli forðast að nemendur og
foreldrar séu settir í þá aðstöðu að
þurfa að gera grein fyrir lífsskoðunum
sínum. /MHH
Bláskógabyggð:
Reglur um samskipti trúfélaga
og skóla samþykktar
Þeim sem bóka gistingu á
farfuglaheimilum gegnum
bókunarvél alþjóðasamtaka
farfugla – Hostelling International
– gefst tækifæri til þess að gefa
heimilunum sem þeir hafa dvalið
á einkunn. Alls eru tæplega 3.000
heimili um allan heim bókanleg á
bókunarvélinni, þar af 28 íslensk.
Árangur íslensku heimilanna í
þessari einkunnagjöf hefur verið
frábær og sem dæmi um það er að
eftir fyrstu 10 mánuði ársins voru
íslensk heimili í fyrsta, fimmta og
sjötta sæti listans og 11 heimili
voru meðal 50 efstu.
Á árlegum fundi rekstraraðila
Farfuglaheimilanna sem haldinn
var á dögunum fengu þrjú heimili
viðurkenningu fyrir frábæran
árangur. Voru þetta Farfuglaheimilið
á Dalvík sem er í efsta sæti
listans, Farfuglaheimilið Loft í
Reykjavík sem er í fimmta sæti og
Farfuglaheimilið á Kópaskeri sem
er í því sjötta. /MÞÞ
Íslensk farfuglaheimili:
Í hópi þeirra bestu
Rekstraraðilar heimilanna sem fengu viðurkenningu, talið frá vinstri: Anna
Jóna Dungal, móttökustjóri Farfuglaheimilisins Lofts, Aðalheiður Símonar-
dóttir, eigandi Farfuglaheimilisins á Dalvík, og Benedikt Björgvinsson, eigandi
Farfuglaheimilisins á Kópaskeri.
Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri www.jotunn.is
Jötunn Vélar ehf. - Kt. 600404 2610
1. tbl. 10. árg. apríl 2013
Ný verslun á Lónsbakka á Akureyri
Verslun Jötunn Véla á Lónsbakka á Akureyri
Jötunn Vélar ehf. hafa opnað verslun og
þjónustudeild á Lónsbakka á Akureyri. Hús-
næði fyrirtækisins er við hlið verslunar
Húsasmiðjunnar og er samtals um 700
fermetrar að stærð. Auk þess er útisvæði
þar sem verður tækjalager og möguleiki til
sýninga á vélum og tækjum. Innandyra verður
verslun á um 400 fermetra gólfrými en auk
þess varahlutalager og skrifstofurými. Þrír
starfsmenn hafa verið ráðnir til starfa á
Akureyri en starfstöðin norðan heiða mun
í öllum aðalatriðum endurspegla starfsemina
á Selfossi hvað varðar sölu landbúnaðartækja,
verslunarrekstur og varahlutaþjónustu.
Undirbúningur opnunar á Akureyri hefur
staðið um nokkurt skeið en um síðustu
áramót tók Hrafn Hrafnsson til starfa hjá
fyrirtækinu á Akureyri og hefur síðan unnið að
undirbúningi. Hann segir markmiðið hafa verið
að vanda valið hvað húsnæði og staðsetningu
varðar.
„Staðsetningin við hlið verslunar Húsa-
smiðjunnar á Lónsbakka er mjög góð. Við
verðum mjög sýnilegir hér fast við inn-
keyrsluna í bæinn og aðgengið er gott. Ég
er þess fullviss að verslunin mun vekja áhuga
bæjarbúa ekkert síður en viðskiptavina okkar
í sveitunum. Í því sambandi má nefna t.d.
úrval af garðvörum og gróðurhúsum, verkfæri,
leikföng, fatnað, skó, reiðhjól og margt fleira.
Verslunin á Lónsbakka á sér ekki hliðstæðu
hér í bæ,“ segir Hrafn.
Nýtt merkiNýtt merki Jötunn Véla ehf. kemur fyrst fyrir
sjónir viðskiptavina með þessu fréttabréfi.
Undanfari þess er vinna innan fyrirtækisins
að undanförnu sem hefur haft að leiðarljósi
að skerpa ímynd og ásýnd. Í vinnunni hafa
bæði stjórnendur og starfsmenn tekið þátt,
auk utanaðkomandi fagaðila.
„Líkt og fram kemur í fréttabréfinu hefur
fyrirtækið Jötunn Vélar aldrei verið öflugra,
hvort heldur varðar veltu, starfsmannafjölda
eða fjárhagslega stöðu,“ segir Guðmundur Þór
Guðjónsson, fjármálastjóri Jötunn Véla.
Engar breytingar eru gerðar á rekstrarformi
né þjónustuþáttum, að öðru leyti en því sem
lýtur að stækkun með tilkomu verslunar Jötunn
Véla á Akureyri. „Sala og varahlutaþjónusta
landbúnaðarvéla eru grunnstoðir Jötunn Véla
en verslunarrekstur hefur vaxið mikið að
undanförnu, auk annarra þjónustuþátta,“ segir
Guðmundur Þór. Nýtt merki Jötunn Véla ehf. er hannað af
Þórhalli Kristjánssyni, grafískum hönnuði hjá
Effekt auglýsingastofu á Akureyri. Í mynd
merkisins er gróflega skapaður jötunn, sem
táknmynd afls og hreyfingar. Segja má að
merkið og heiti fyrirtækisins samtvinnist
með þessum hætti og undirstriki þann styrk
og framsækni sem Jötunn Vélar ehf. byggi á
hér eftir sem hingað til.
Jötunn Vélar ehf. - Kt. 600404-2610 / Selfossi og Akureyri
Tíunda rekstrarár Jötunn Véla ehf.
er hafið og verður ýmislegt gert í
tilefni af tímamótunum. Segja má
að það hefjist af krafti með opnun
á Akureyri, eins og fjallað er um
hér að ofan. Fyrirtækið hefur jafnt
og þétt eflst frá stofnun sem best
má sjá á því að starfsmenn hafa
aldrei verið fleiri en nú. Velta Jötunn
Véla var tæplega 1,7 milljarðar
króna í fyrra og skilaði fyrirtækið
72 milljóna króna rekstrarhagnaði
en áætlað er að velta ársins 2013
verði um tveir milljarðar króna.
Tíunda rekstrarár Jötunn Vélaer nýhafið
jot_frettabr.april2013.indd 1
1. tbl. 10. árg. apríl 2013
Ný verslun á Lónsbakka á Akureyri
Verslun Jötunn Véla á Lónsbakka á Akureyri
Jötunn Vélar ehf. hafa opnað verslun og
þjónustudeild á Lónsbakka á Akureyri. Hús-
næði fyrirtækisins er við hlið verslun r
Húsasmiðjunnar og er samtals um 700
fermetrar að stærð. Auk þess er útisvæði
þar sem verður tækjalager og möguleiki til
sýninga á vélum og tækjum. Innandyra verð r
verslun á um 400 fermetra gólfrými en auk
þess varahlutalager og skrifstofurými. Þrír
starfsmenn hafa verið ráðnir til sta fa á
Akureyri en starfstöðin norðan heiða mun
í öllum aðalatriðum endurspegla st rfsemina
á Selfossi hvað varðar sölu landbúnaðartækja,
verslunarrekstur og varahlutaþjónustu.
Undirbúningur opnunar á Akureyri hefur
staðið um nokkurt skeið en um síðu tu
áramót tók Hrafn Hrafnsson til starfa hjá
fyrirtækinu á Akureyri og hefur síðan u nið að
undirbúningi. Hann segir markmiðið hafa verið
að vanda valið hvað húsnæði og staðsetningu
varðar.
„Staðsetningin við hlið verslunar Húsa-
smiðjunnar á Lónsbakka er mjög góð. Við
verðum mjög sýnilegir hér fast við inn-
keyrsluna í bæinn og aðgengið er gott. Ég
er þess fullviss að verslunin mun vekja áhuga
bæjarbúa ekkert síður en viðskiptavina okkar
í sveitunum. Í því sambandi má nefna t.d.
úrval af garðvörum og gróðurhúsum, verkfæri,
leikföng, fatnað, skó, reiðhjól og margt fleira.
Verslunin á Lónsbakka á sér ekki hliðstæðu
hér í bæ,“ segir Hrafn. Nýtt merkiNýtt merki Jötunn Véla ehf. kemur fyrst fyrir sjónir viðskiptavina með þessu fréttabréfi. Undanfari þess er vinna innan fyrirtækisins að undanförnu sem hefur haft að leiðarljósi að skerpa ímynd og ásýnd. Í vinnun i hafa bæði stjórnendur og starfsmenn tekið þátt, auk utanaðkomandi fagaðila. „Líkt og fram kemur í fréttab éfinu hefur fyrirtækið Jötunn Vélar aldrei ver ð öflugra, hvort heldur varðar veltu, starfsmannafjölda eða fjárhagslega stöðu,“ segir Guðmundur Þór Guðjónsson, fjármálastjóri Jötunn Véla. Engar breytingar eru gerðar á rekstrarformi né þjónustuþáttum, að öðru leyti en því sem lýtur að stækkun með tilkomu verslunar Jötunn Véla á Akureyri. „Sala og varahlutaþjónusta landbúnaðarvéla eru grunnstoðir Jö unn Véla en verslunarrekstur hefur vaxið mikið ð undanförnu, auk annarra þjónustuþátta,“ egir Guðmundur Þór. Nýtt merki Jötunn Véla ehf. er hannað af Þórhalli Kristjánssyni, grafískum hönnuði hjá Effekt auglýsingastofu á Akureyri. Í mynd
merkisins er gróflega skapaður jötunn, sem
táknmynd afls og hreyfingar. Segja má að
merkið og heiti fyrirtækisins samtvinnist
með þessum hætti og undirstriki þann styrk
og framsækni sem Jötunn Vélar ehf. byggi á
hér eftir sem hingað til.
Jötunn Vélar ehf. - Kt. 600404-2610 / Selfossi og Akureyri
Tíunda rekstrarár Jötunn Véla ehf.
er hafið og verður ýmislegt gert í
tilefni af tímamótunum. Segja má
að það hefjist af krafti með opnun
á Akureyri, eins og fjallað er um
hér að ofan. Fyrirtækið hefur jafnt
og þétt eflst frá stofnun sem best
má sjá á því að starfsmenn hafa
aldrei verið fleiri en nú. Velta Jötunn
Véla var tæplega 1,7 milljarðar
króna í fyrra og skilaði fyrirtækið
72 milljóna króna rekstrarhagnaði
en áætlað er að velta ársins 2013
verði um tveir milljarðar króna.
Tíunda rekstrarár Jötunn Vélaer nýhafið
jot_frettabr.april2013.indd 1
Nýtt fréttabréf í næstu viku
Glæsileg afmælistilboð á vélum og tækjum
Ekkert erlent kjúklingakjöt
lengur hjá Ísfugli
Vegna umræðu í fjölmiðlum
síðustu daga um sölu á
erlendu kjúklingakjöti
hérlendis vill Ísfugl
árétta þá stefnu fyrir-
tækisins að bjóða við-
skiptavinum sínum
eingöngu íslenskt ali-
fuglakjöt. Þetta á bæði
við um unnar afurðir
fyrirtækisins og óunnið kjöt af
kjúklingum og kalkúnum.
Eigendur Reykjabúsins, sem í
áratugi hefur ræktað alifugla fyrir
íslenskan markað, eignuðust Ísfugl
fyrir um ári. Nýir eigendur tóku þá
ákvörðun að hverfa algerlega frá sölu
á erlendu kjúklingakjöti. Fyrirtækið
náði þessu markmiði sínu í
sumarlok.
Eigendur Ísfugls
hvetja stjórnvöld til
þess að flýta gildistöku
nýrra reglna um
upprunamerkingar á
kjöti sem áætlað er að taka
upp hérlendis í desember
á næsta ári. Merkingarnar
eru sjálfsögð og eðlileg þjónusta við
neytendur sem eiga skýlausan rétt á
að vita hvort kjötið sem þeim stendur
til boða er íslenskt eða erlent.
Fyrir hönd Ísfugls,
Kristín Sverrisdóttir
Jón Magnús Jónsson
um allan heim.
Sigrúnar Láru í Peking þar sem
hrútarnir eru í aðalhlutverki.
Njarðvíkingurinn Kristján
Sveinsson er smiður og umsjónar-
maður fasteigna hjá Samtökum
líknarfélaga í Reykjavík. Fyrir
sjö árum fékk hann bráðsnjalla
hugmynd að nýju eldhúsáhaldi,
kjötgálganum svokallaða. Kristján
hefur smíðað kjötgálga síðan þá
og selt í allnokkru upplagi og án
efa létt mörgum lífið við að skera
lambalæri í eldhúsinu.
,,Kristján var að dytta að íbúð
þegar hugmyndin kviknaði. ,,Ég
var að spjalla við eigandann þegar
tal okkar barst að jólunum. Ég
spurði manninn, sem misst hafði
hægri höndina í umferðarslysi,
hvað honum þætti best að borða á
aðfangadagskvöldi. Viðmælandinn
kvað lambalærið ávallt hafa verið
hátíðarmálsverð á jólunum, svo
ómótstæðilegt og gómsætt sem það
nú væri. Hins vegar ætti hann ekki
gott með að bjóða upp á ofnbakað
lambalæri að hætti mömmu um jólin
þar það væri nánast ógerningur að
skera lambalæri á sleipu fati með
annarri hendinni. Þetta svar mannsins
sótti á huga minn næstu daga og mig
langaði til að létta líf hans. Það er
auðvitað erfitt að ímynda sér hversu
mikið veruleikinn breytist við það
að missa hönd. Ýmsar daglegar
athafnir sem áður voru sjálfsagðar
verða allt í einu flóknar og erfiðar,”
segir Kristján.
Þá brá fyrir hugskotssjónir
Kristjáns mynd sem kunningi hans
hafði einhverju sinni sýnt honum
mynd sem hann hafði tekið á
ferðalagi í Evrópu af kjötlæri sem
skorðað var upp við einhvers konar
statíf.
,,Ég tók til við smíðina inni í
skúr heima hjá mér í Njarðvík, þar
sem ég hef komið upp vel útbúinni
smíðaaðstöðu. Eftir nokkrar
pælingar um hönnun og útfærslu
stóð ég aðeins tveimur dögum
seinna með fullbúinn kjötgálga í
höndunum. Þetta var þó eingöngu
frumgerðin en ég hef smíðað þá
allmarga í viðbót um leið og ég
hef fundið betri lausnir á smíðinni
og fullkomnari útfærslur,“ segir
Kristján, en hann færði einhenta
manninum fyrsta gálgann að gjöf.
Hægt er að fá nafn brennt í kjöt-
gálgann og er það mjög vinsælt að
sögn Kristjáns. Verð á kjötgálgan-
um er 15.000 kr. og er þá merking
innifalin. Kristján selur kjötgálgana
sjálfur en nánari upplýsingar má
finna á skogarholl.com.
Kristján Sveinsson er sannkallaður þúsundþjalasmiður:
Smíðar kjötgálga sem ætlað er
að létta fólki eldhússtörfin