Bændablaðið - 28.11.2013, Síða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 28. nóvember 2013
Gunnar Aðalsteinn Thorsteinsson
er Reykvíkingur að uppruna,
fæddur 27. apríl 1944, en að
hluta alinn upp vestur á Mýrum
í Borgarfirði. Hann var í fjölda
ára bóndi á Arnarstöðum í
Eyjafjarðar sveit en eftir að hann
hætti búskap hefur hann prjónað
lopapeysur af miklum móð.
Gunnar prjónar peysur, ýmist
heilar, hnepptar eða með rennilás.
Tölur og rennilása setur hann
á sjálfur. Þá prjónar hann líka
hettupeysur, húfur og vesti. Allt er
þetta afar vandað og eru peysurnar
orðnar á annað hundraðið heldur
Gunnar, þó að hann hafi ekki yfir
það nákvæmt yfirlit.
„Mamma mín kenndi mér að
prjóna þegar ég var strákur,“ sagði
Gunnar þegar hann kom í heimsókn á
ritstjórn Bændablaðsins síðastliðinn
föstudag. „Ég er fæddur hér í bænum
en alinn upp að hálfu leyti vestur á
Mýrum. Þegar ég var um tvítugt fór
ég að myndast við að prjóna mér eina
peysu. Svo snerti ég ekkert á þessu
neitt meira í fjölmörg ár. Enda fór ég
að búa fyrir norðan, á Arnarstöðum í
Eyjafjarðarsveit.“
Gunnar bjó á Arnarstöðum í
Eyjafjarðarsveit ásamt konu sinni,
Valgerði Kristínu Eiríksdóttur, frá
árinu 1982. Samkvæmt síðara bindi
Byggðir Eyjafjarðar sem kom út
1993 voru þar þá 13 kýr og 16 aðrir
nautgripir. Þá voru 142 kindur, 35
hross, 30 hænur og 10 aðrir alifuglar.
Bærinn stendur austan Hólavegar við
rætur Hólafjalls. Túnin við bæinn ná
niður að Eyjafjarðará og beitiland er í
hlíðinni ofan við bæinn og eyðibýlið
Nýibær tilheyrði Arnarstöðum.
Byrjaði aftur að prjóna eftir að
hann hætti búskap
„Ég hætti búskap um árið 2000 og
flutti svo suður. Það var svo eftir 2004
sem mér datt í hug að fara að rifja
aftur upp prjónamennskuna, til að
hafa eitthvað á milli handanna þegar
maður væri ekki að vinna. Svo vatt
þetta bara upp á sig.“
-Ertu þá að prjóna fyrir hvern
sem er eða bara ættingja, vini og
kunningja?
„Ja, það hafa alltaf annað slagið
komið pantanir.“
Gunnars segist hafa fengið
uppskriftabók hjá Handprjóna-
sambandinu en þar fyrir utan hefur
hann hannað inn í það mynstur, texta,
rúnatákn og dýramyndir af mikilli
snilld.
Snýst aðallega um að hafa
eitthvað á milli handanna
-Það er örugglega handtak og mikill
tími sem fer í eina svona peysu?
„Þetta eru svona 30 til 35 tímar.“
-Varla er tímakaupið sérlega hátt
þegar búið er að draga kostnaðinn
frá?
„Nei, tímakaupið er ekki hátt. Ég
hef selt svona peysur eins og ég er í
á sextán þúsund krónur. Ef þær eru
með hettu, rennilás eða hnepptar hef
ég verið að selja þær á átján þúsund.
Efnið í eins svona peysu kostar hátt í
sex þúsund, svo að tímakaupið er ekki
hátt. Enda snýst þetta aðallega um
að hafa eitthvað á milli handanna.“
Miðað við þetta er tímakaupið hjá
Gunnari, eftir að búið er að draga
efniskostnaðinn frá, á bilinu 280 til
330 krónur. Það er trúlega eitthvað
lægra en sést hefur á launaseðlum
skiptastjóra í þrotabúum banka og
stórfyrirtækja á síðustu misserum.
/HKr.
Gunnar Aðalsteinn Thorsteinsson, fyrrum bóndi á Arnarstöðum í Eyjafjarðarsveit:
Lærði að prjóna sem barn og prjónar
nú lopapeysur af mikilli snilld
Myndir /HKr