Bændablaðið - 28.11.2013, Page 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 28. nóvember 2013
Á fimmtudag í síðustu viku var
kynnt í landbúnaðarráðuneytinu
útgáfa á Landbúnaðarsögu Íslands.
Þar er um að ræða stór virki í
fjórum bindum. Höfundar verksins
eru dr. Árni Daníel Júlíusson
sagnfræðingur og Jónas Jónsson,
fyrrverandi búnaðarmála stjóri.
Hann lést árið 2007 en hafði þá
lokið sínum skrifum. Dr. Helgi
Skúli Kjartansson sagnfræði-
prófessor tók að sér að búa
verk hans undir útgáfu. Það
er bókaútgáfan Skrudda sem
gefur verkið út, en landbúnaðar-
ráðuneytið, Bændasamtök Íslands
og fjölmargir aðrir hafa komið að
fjármögnun þessa verkefnis.
Frá landnámi til síðustu aldamóta
Landbúnaðarsaga Íslands er mikið
rit um stóran þátt í atvinnu- og
menningar sögu Íslendinga. Sem
dæmi um mikilvægi landbúnaðar
má geta þess að um aldamótin 1800
voru Íslendingar 47 þúsund, og
töldust 39 þúsund hafa framfæri sitt
af landbúnaði.
Í þessu mikla verki er rakin saga
landbúnaðar á Íslandi frá landnámi
til síðustu aldamóta á samtals 1.357
blaðsíðum. Verkið skiptist í fjögur
bindi. Fyrsta bindið rekur þróun
landbúnaðar frá upphafi byggðar
fram til 1800. Í öðru bindi er fjallað
um bændasamfélagið á 19. og 20. öld
og þær miklu breytingar sem orðið
hafa á þessu tímabili. Þriðja og fjórða
bindi fjalla um búgreinarnar. Í þriðja
bindi er sauðfjárrækt, nautgriparækt
og hrossarækt til umfjöllunar. Í fjórða
bindi er fjallað um aðrar greinar
landbúnaðarins, jarðrækt, garðrækt,
skógrækt, fiskeldi og veiði í ám og
vötnum, svína- og alifuglarækt, og
loks loðdýrarækt.
Níu ár í vinnslu
Vinnsla þessa fjögurra binda ritverks
hefur staðið yfir í níu ár og hafði
Níels Árni Lund, skrifstofustjóri
landbúnaðar ráðuneytisins, það
verk efni fyrir höndum að fylgja
verkinu eftir á vegum ráðuneytisins.
Sagði hann að það hafi verið á
árunum 2003 eða 2004 að Jónas
heitinn Jónsson hafi nefnt það
við Guðna Ágústsson, þáverandi
landbúnaðarráðherra, að fá stuðning
við ritun landbúnaðarsögu sem hann
var þá þegar búinn að vinna mikið
að í sínum frístundum. Skömmu
seinna hafi
Árni Daníel
J ú l í u s s o n
komið með
svipað erindi.
Var Níels þá
falið að leiða
þessa menn
saman um
að vinna eitt
heildarritverk
um land-
búnaðar sögu
Íslands. Sagði
Níels Árni
að það hefði
gengið mjög
vel upp og
þeir hefðu tekið
höndum saman um
verkefnið.
Til að fylgja málinu eftir var
stofnuð ritnefnd sem Sigur geir
Þorgeir sson, þáverandi framkvæmda-
stjóri Bændasamtaka Íslands,
var þar í forystu og með honum
sátu í nefndinni þeir Níels Árni
Lund, Benedikt
S igurða r syn i
frá Arnar vatni,
Jónas Jónsson
og Árni Daníel
Júlíusson. Þá
kom Bjarni
H a r ð a r s o n
einnig að starfi
ritnefndarinnar
um tíma.
Jónas lést
sumarið 2007 en
við verkefni hans
við rit verkið
tók Helgi Skúli
K j a r t a n s s o n
sagn fræðingur,
en Haraldur
Benedikts son,
fyrr verandi for maður
Bænda samtakanna, tók
við hlut verki Jónasar í rit nefndinni.
Hlutverk rit nefndarinnar var einkum
að tryggja fjár magn og semja á
endanum við útgáfufyrirtækið
Skruddu um útgáfu verksins.
Hér hefur verið unnið stórvirki í
íslenskri sagnfræði
Steingrímur Steinþórsson, forstjóri
Skruddu bókaforlags, sagði við
þetta tækifæri að hann vonaðist til
að verkið ætti eftir að auka skilning
á þýðingu landbúnaðarins fyrir
Íslendinga í fortíð og nútíð.
„Eftir að hafa lesið mestan hluta
verksins fæ ég ekki betur séð en
að hér hafi verið unnið stórvirki í
íslenskir sagnfræði, sem höfundarnir
og aðstandendur þeirra megi vera
stoltir af.“
Tileinkað Ingólfi Júlíussyni
Annar höfunda, Árni Daníel
Júlíusson, tileinkar verkið bróður
sínum, Ingólfi heitnum Júlíussyni,
grafískum hönnuði og ljósmyndara,
en hann lést úr hvítblæði á
síðastliðnu vori rúmlega fertugur að
aldri. Ingólfur lagði hönd á plóg við
verkefnið meðan honum entist aldur
til og tók m.a. fjölda mynda, lagði
til hugmyndir og vann að umbroti.
Við umbrotinu og skráargerð
tók þá Hörður Sigurðarson. Um
prófarkalestur sáu Bragi Halldórsson
íslenskufræðingur, Hallgrímur Helgi
Helgason og Sonja B. Jónsdóttir.
Frú Sigurveig Erlingsdóttir,
ekkja Jónasar, kom til boðsins í
landbúnaðar ráðuneytinu ásamt
dætrum sínum og fagnaði útgáfunni.
Á könnu fimm
landbúnaðarráðherra
Auk Guðna Ágústssonar hafa
fjórir landbúnaðarráðherrar komið
að fjármögnun verkefnisins, þeir
Einar K. Guðfinnsson, Steingrímur
J. Sigfússon, Jón Bjarnason og
Sigurður Ingi Jóhannsson. Þakkaði
Níels Árni þeim sérstaklega fyrir
þeirra hlut og áhuga á framgöngu
málsins. Taldi hann að um tímamóta-
verk væri að ræða.
Ekki rituð án þátttöku
þjóðarinnar allrar
Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra,
sagði m.a.við þetta tækifæri:
„Það er ekkert launungarmál að
ritun og útgáfa Landbúnaðarsögunnar
sem hér er að líta dagsljósið hefur
verið studd af ýmsum aðilum og þá
fyrst og fremst hinu opinbera og þá á
einn eða annan máta í gegnum land-
búnaðarráðuneytið fyrir forgöngu
þeirra ráðherra sem þar hafa farið
með völd á ritunartíma sögunnar,
þeim Guðna Ágústssyni, Einari K.
Guðfinnssyni, Jóni Bjarnasyni og
Steingrími J. Sigfússyni.
Sú leið hefur áður verið farin og
má nefna þar Iðnsögu Íslendinga og
Sögu íslensks sjávarútvegs en hvoru
tveggja voru einnig meginstoðir
íslensks athafnalífs og efnahags.
Einnig má nefna Kristnisögu
Íslands og Sögu stjórnarráðsins svo
eitthvað sé nefnt. Með öðrum orðum,
ráðherrar og Alþingi hafa gert sér
ljóst að saga sem þessi er ekki rituð
án þátttöku þjóðarinnar allrar og
talið einsýnt að það fjármagn sem
í hana er lögð skili sér með aukinni
þekkingu nemenda og annarra
lesenda – um Ísland og sögu þess
viðfangsefnis sem um ræðir. Megi
Landbúnaðarsaga Íslands vera sá
þekkingarbrunnur sem að var stefnt
og verða enn einn steinninn í þeim
grunni sem heldur uppi Íslandi sem
sagnaþjóð.“ /HKr.
Bókaútgáfan Skrudda gefur út Landbúnaðarsögu Íslands í fjórum bindum:
Stórvirki sem notið hefur liðsinnis
fimm landbúnaðarráðherra
– Höfundar eru Árni Daníel Júlíusson sagnfræðingur og Jónas Jónsson, fyrrverandi búnaðarmálastjóri
Við útgáfukynningu á Landbúnaðarsögu Íslands og afhendingu fyrstu eintaka verksins. Talið frá vinstri; Haraldur Benediktsson, alþingismaður og formaður ritnefndar, Sindri Sigurgeirsson,
formaður Bændasamtaka Íslands, Óskar Á. Gunnarsson, Níels Árni Lund, skrifstofustjóri landbúnaðarráðuneytisins,Steingrímur J. Sigfússon, alþingismaður og fyrrverandi landbúnaðarráðherra,
og Steingrímur Steinþórsson, forstjóri Skruddu bókaforlags. Á myndirna vantar tvo landbúnaðarráðhera sem tengdust þessu verkefni, þá Guðna Ágústsson og Jón Bjarnason. Myndir / HKr.