Bændablaðið - 28.11.2013, Page 25
25Bændablaðið | Fimmtudagur 28. nóvember 2013
verið látin gilda og ógjaldfær
fyrirtæki sett í gjaldþrotameðferð.
Í mikilli uppbyggingu í og eftir
hrun
Uppbygging Stjörnublikks hefur ekki
verið framkvæmd með gríðarlegum
lántökum eins og algengt var fyrir
hrun, heldur að mestu fyrir eigið
fé úr rekstri. Finnbogi segir því
að efnahagshrunið hafi í raun ekki
valdið þeim neinum skakkaföllum,
heldur þvert á móti. Það vakti því
verulega athygli að á sama tíma
og allt íslenska bankakerfið var
að hrynja haustið 2008 stóðu þeir
bræður í fyrirtækjakaupum. Keyptu
þeir hið gamalgróna fyrirtæki Timbur
og stál í Kópavogi sem fyrirtækið
Mest hafði keypt árið 2007 en það
dæmi endaði í gjaldþroti í júlí 2008.
„Við gátum sameinað Timbur og
stál hér undir okkar þaki og náðum
þar fram miklum samlegðaráhrifum
og hagræðingu.
Frá því við hófum starfsemi
í Stjörnublikki var fyrirtækið í
stöðugum vexti fram að hruni. Þegar
mest var 2007 störfuðu hér um 120
manns en við fórum að draga saman
fyrir hrun og í dag starfa hér um 60
manns. Við töpuðum litlu sem engu
í útistandandi kröfum við hrunið og
fyrirtækið stóð þá mjög vel. Þá hafa
gjaldeyrishöft heldur ekki verið að
plaga okkur neitt.“
Mjög góð verkefnastaða
„Nú er verkefnastaða okkar mjög
góð og við höfum mikið af góðum
viðskiptavinum. Þá höfum við verið
að vinna mikið fyrir stór fyrirtæki
eins og Alcoa og orkufyrirtækin á
Hellisheiði, Reykjanesi og víðar. Þá
eru bændur líka góðir viðskiptavinir
hjá okkur. Við höfum t.d. mikið
verið að vinna fyrir hestamenn
og sjálfur er maður talsvert í
hestamennskunni. Ég hafði alltaf
verið í hestamannafélaginu Sindra
í sveitinni og Andvara og nú erum
við komnir í Sprett, þetta nýja
félag á Heimsenda í Kópavogi. Það
félag varð til 2012 við sameiningu
á hestamannafélögunum Gusti og
Andvara. Ég er einmitt núna að hanna
loftræstingu sem setja á upp í nýju
reiðhöllinni á Heimsenda sem á að
verða tilbúin 1. febrúar 2014. Þessi
reiðhöll er að mig minnir 70 metra
löng og um 40 metrar að breidd.
Ég held að þetta verði stærsta og
flottasta reiðhöllin á landinu. Þarna
uppfrá er mikil uppbygging en þó
heldur hægari en maður vonaðist til.“
Verðlaunahafi í hestamennskunni
Finnbogi er samt ekki bara að smíða
fyrir félaga sína í hestamennskunni,
því hann tekur einnig virkan þátt í
ræktun og reiðmennsku.
„Ég hef verið að leika mér að taka
þátt í mótum á innanfélagsmótum.
Það hefur gengið vel og ég er kominn
með nokkur verðlaun í hús.“
Þörf á að grisja hrossastofninn
– Ertu með mörg hross?
„Nei, ég held ég sé með fæst hross
af okkur bræðrum, um 18. Það er
samt eiginlega allt of mörg hross þó
að við höfum verið duglegir við að
grisja. Það er sama að gerast hjá mér
og öðrum hestaræktendum, hestarnir
hlaðast upp. Þeir eru ekki að seljast
og menn verða bara að fara í að
grisja stofninn. Þetta er dýrt sport og
of margir hestar safna bara auknum
kostnaði. Hrossaútflutningurinn er
líka alveg hruninn og meðan kreppan
ríkir í Evrópu verðum við að finna
nýja markaði. Það eina sem selst eru
allra bestu hestarnir.
Annars sýnist mér líka að það sé
að gerast það sama hér og erlendis að
hestamennskan er að verða æ meira
kvennasport. Það eru til dæmis að
koma upp hörku konur sem knapar í
greininni,“ segir Finnbogi.
Fjölþætt fyrirtæki
Tíðindamaður Bændablaðsins fór
og skoðaði starfsemi Stjörnublikks
fyrir skömmu og komst að því að
fyrirtækið er miklu meira en bara
blikksmiðja eins og það var í upphafi.
Ásgeir Ólafsson, sölustjóri þak- og
veggklæðinga, tók á móti blaðamanni.
Hann segir bræðurna halda mjög vel
utan um reksturinn.
Hafa staðgreitt öll tæki og búnað
„Fyrirtækið hefur alltaf átt fyrir
kaupum á öllum vélum, staðgreitt allt
og ekki þurft að taka lán. Það hefur
gert gæfumuninn,“ segir Ásgeir.
„Fyrirtækið flytur inn mörg
hundruð tonna af áli, stáli og öðrum
málmtegundum á ári. Í raun veitir
okkur þó ekkert af þessu húsnæði
sem við erum í núna því starfsemin
hefur verið að vaxa það mikið að hún
er búin að sprengja utan af sér. Við
kaupin á Timbri og stáli árið 2008
tókum við hér inn fleiri þætti sem
tengdust byggingariðnaðinum eins
og bárujárnsframleiðslu, þjónustu við
inni- og útiklæðingar og framleiðslu
á lykkjum og beygjum og fleiru úr
steypustáli.
Eina tölvustýrða vélin fyrir slíka
framleiðslu er hér hjá okkur. Þessi vél
hefur gengið stanslaust þó að ástandið
í byggingariðnaðinum hafi verið eins
og það er. Við erum búnir að festa
kaup á annarri vél í þá framleiðslu
til að anna aukinni eftirspurn. Ef
iðnaðarmenn fara að koma til baka
frá Noregi er ljóst að þeir munu ekki
líta við öðruvísi framleiðslu en unnin
er af nákvæmni í svona vél, þar sem
allar lykkjur og annað er fyrir fram
merkt.“
Ásgeir segir að steypustyrktar-
stálið sem notað er í Stjörnublikki sé
í hæsta gæðaflokki og allt keypt frá
Hollandi. Gæði stálsins séu lykillinn
að því að hægt sé að búa til stállykkjur
og annað sem standi út úr veggjum
eftir að steypt er. Þær þurfi að rétta
upp þegar næstu veggeiningar séu
steyptar og þá sé mikilvægt að stálið
brotni ekki.
„Svo erum við í framleiðslu á
margs konar klæðningum eins og úr
kopar og sinkhúðuðu stáli sem við
tókum hér inn 2008.“
Einn viðskiptamannahópurinn er
bændur
Megnið af starfsemi Stjörnublikks
er í Kópavogi en fyrirtækið er
einnig með mannskap úti um allar
sveitir í uppsetningum á kerfum
og klæðningum. Bændur eru góðir
viðskiptavinir enda hefur talsverð
uppbygging verið í sveitum landsins
við gripahús og í sambandi við
ferðaþjónustuna.
„Við erum mikið að smíða inn-
réttingar í hesthús, fjárhús, klæðningar
á fjós og eitthvað lítils háttar af
burðarvirki í byggingar hjá bændum.
Þá erum við mikið að smíða úr ryðfríu
efni og galvaníseruðu í inn réttingar og
nóg að gera,“ segir Ásgeir.
Hönnuðu einu vél sinnar tegundar
í heiminum
Hann segir að einnig séu mikil
verkefni fyrir stór fyrirtæki eins og
álver, verslanir og orkufyrirtæki.
Sem dæmi hönnuðu Stjörnublikks-
menn sérstaka vél til að framleiða
klæðningar utan um hitaveitu lagnir
eins og sjá má leiðinni til Nesjavalla
og í Svartsengi. Þessa vél létu þeir
síðan sérsmíða fyrir sig í Svíþjóð og er
hún sú eina sinar tegundar í heiminum.
„Hún hefur sannarlega staðið
fyrir sínu þessi. Sjálfsagt eru búnir
að fara í gegnum hana mörg þúsund
kílómetrar af efni en í henni hafa
verið framleiddar allar kápur utan um
hitaveiturör Orkuveitu Reykjavíkur.“
-frh.
Ásgeir Ólafsson sölustjóri við sannkallaða gullgæs sem er eina vél sinnar tegundar í heiminum. „Hún hefur sannar-
lega staðið fyrir sínu þessi. Sjálfsagt eru búnir að fara í gegnum hana mörg þúsund kílómetrar af efni en í henni
hafa verið framleiddar allar kápur utan um hitaveiturör Orkuveitu Reykjavíkur.“
Kristján Guðmundsson var að vinna við tölvustýrðu kambstálvélina. Þar er hægt að beygja stál af mikilli nákvæmni
xxxx
Örn Óskarsson sem var að logsjóða kæli element. Hann þykir mikill listasmiður og er með mikla reynslu að baki.
Hann hefur líka víða starfað í gegnum tíðina, meðal annars sem sprengjusérfræðingur hjá sænska hernum. Örn vílar