Bændablaðið - 28.11.2013, Blaðsíða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 28. nóvember 2013
Magnús Geirsson, annar eigenda Stjörnublikks, er með búmennskuna í blóðinu:
Sinnir búskap Stjörnublikksbræðra
á Fornusöndum undir Eyjafjöllum
Bræðurnir Magnús og Finnbogi
Geirssynir í Stjörnublikki í
Kópavogi keyptu Fornusanda árið
1995, en það var þá um 100 hektara
jörð. Síðan bættu þeir við sig um
80 hektara beitarlandi vestan við
Fornusanda. Þarna hefur verið
töluverð uppbygging; bræðurnir
hafa byggt sér þar tvö íveruhús og
eru líka að endurbyggja íbúðarhús
sem þar var fyrir. Þá eru á staðnum
skemmur sem hýsa allan vélakost
þeirra.
Þegar tíðindamaður Bænda-
blaðsins heimsótti Magnús að
Förnusöndum fyrir skömmu var
hann að vinna við að koma vélum í
hús fyrir veturinn. Sagðist hann alltaf
furða sig á því hversu margir bændur
trössuðu að hugsa um rándýran
vélbúnað sinn og létu dráttarvélar
oft standa úti í öllum veðrum yfir
vetrartímann.
Byggðu nýtt hesthús
Magnús segir að á Fornusöndum hafi
verið fjós sem þeir hafi verið að spá í
að nýta fyrir hross og endurnýja þakið
á þegar gosið varð í Eyjafjallajökli.
Ekki varð þó af því fyrir gos og fengu
þeir að hýsa hestana í ónýttum húsum
á Nýjabæ. Þegar fjósið var skoðað
betur kom í ljós að timburverkið var
ónýtt og vart um annað a ræða en að
byggja nýtt hesthús, sem þeir bræður
gerðu árið 2011.
Hann segir að nauðsynlegt sé að
hafa gott hús fyrir hestana því alltaf
geti komið upp þær aðstæður að
nauðsynlegt sé að taka hrossin í hús.
Þá komi nýja hesthúsið að góðum
notum við sauðburðinn á vorin.
– Hvernig var í gosinu, var ekki
mökkurinn hér yfir bænum?
„Nei, hann var bara hér yfir í einn
dag. Annars lá hann yfir hér rétt fyrir
austan við Lambhúshól og Nýjabæ.“
Með 100 hross og 90 kindur
Magnús segir að á jörðinni séu um
100 hross en ekki öll í eigu þeirra
bræðra.
„Þá erum við með um 90 rollur.
Bóndinn á Nýjabæ kemur hér á
hverjum degi og gefur kindunum
fyrir okkur og annar maður gefur
hrossunum tvisvar í viku ef við
komumst ekki. Maður gefur svo
bara sjálfur þegar maður kemur um
helgar.“
Reynslan úr sveitinni nýttist vel
„Við erum fæddir og uppaldir á
Steinum undir Eyjafjöllum. Við
vorum tólf systkinin og eru níu lifandi
í dag. Við erum nú búnir að vera
með fyrirtækið í 23 ár. Ég held því
fram að mesta gæfa okkar í lífinu sé
hversu heppnir við höfum verið með
að vinna með góðu fólki. Hjá okkur
starfa líka margir sem eiga rætur sínar
í sveitinni,“ segir Magnús.
/HKr.
Myndir / HKr.