Bændablaðið - 28.11.2013, Blaðsíða 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 28. nóvember 2013
ár. Eignuðust þau hjónin 12 börn,
Fátækt var mikil og frumstæður
aðbúnaður, svo sem víða var á þeim
árum. Sex af börnum þeirra dóu í
bernsku. Síðasta árið sem Jakob bjó
í Skammadal missti hann konu sína
og þrjú af börnunum úr barnaveiki
á einum og hálfum mánuði. Leystist
heimilið þá upp og fluttist Jakob á
ný að Suður-Vík. Tvö af börnunum
fluttu þangað með honum, Ólafur,
síðar bóndi i Fagradal, og Agnes,
síðar húsfreyja í Ameríku. Önnur
börn hans dreifðust í ýmsar áttir.
Árið1907 kvæntist Jakob í annað
sinn og nú Guðrúnu Jónsdóttur
í Fagradal, ekkju eftir Magnús
Bjarnason er þar bjó. Fluttist hann þá
að Fagradal og átti þar heimili síðan.
Jakob afhenti Ólafi syni sínum
þriðjung af jörðinni er hann hóf
búskap 1916 og nokkru síðar helming
hennar. Höfðu þeir félagsvinnu og
fór mjög vel á með þeim feðgum.
1940 hætti Jakob búskap og tók þá
við hans hluta Jónas sonur hans, en
hann var þá einkabarn þeirra Jakobs
og Guðrúnar, annað barn, pilt, misstu
þau á bernskuskeiði. Jakob og
Guðrún keyptu síðar Sigurðarstaði
og fluttu til Víkur.
Fengu vont veður
„Það voru allir að reyna að vara
okkur við að fara þangað því það
gæti verið svo slæmt veður í Vík
á þessum árstíma. Við gætum
hreinlega fokið út af veginum. Við
vorum samt staðráðin í að fara og
ætli þar hafi ekki spilað inn í gamla
íslenska þrjóskan,“ sagði Sylvía og
hló.
„Jóhannes er skíðamaður og
vanur því að keyra í snjó og ís á
fjallvegum síðan hann var 16 ára
gamall. Röddin hans var þó svolítið
farin að titra þegar hann ók til Víkur
á ísilögðum veginum og hvass
vindurinn skók bílinn til á veginum.“
– „Já, það var ekki mikið grip á
veginum,“ samsinnti Jóhannes.
Sylvía segir að í Vík hafi þau eytt
aðfangadagskvöldi og jóladag í húsi
sem ættingjar hennar eiga og hafa
gert upp í Vík og var upphaflega
hús sem bróðir langafa hennar átti.
„Þetta er svo fallegur staður og
loftið svo tært og það hreinasta
í heimi,“ sagði Sylvía, sem var
greinilega mjög hrifin af landinu.
Restinni af jólunum vörðu þau
svo í Reykjavík og dvöldu þar
yfir áramótin. Hún segir að þau
hafi þá upplifað „geðveikina“
við flugeldaskothríð Íslendinga
á gamlárskvöld og haft gaman
af. „Þetta var eins og að vera í
stríðsátakasvæði,“ sagði Jóhannes.
„Maður undrast hvernig fólk hefur
efni á þessu,“ sagði Sylvía, „…en
það kemur þó björgunarsveitunum
til góða.“
Í hjólaferð um Ísland
Jóhannes er duglegur að heimsækja
ömmu sína og hjálpar henni að hirða
um hestana. Hann er fæddur og
uppalinn í Bandaríkjunum en hefur
leitað upprunans á Íslandi. Fór hann
meðal annars hjólandi hringinn í
kringum landið með bróður sínum
27. júlí til 20. ágúst 2012.
„Það var gaman og við fengum
sólskin mestallan tímann. Þá tvo
daga sem við vorum að hjóla frá
Reykjavík til Víkur var meira að
segja mjög heitt. Það var líka mjög
þurrt og vindur á þeirri leið svo að
við fengum yfir okkur talsvert ryk.
Maður var því orðinn ansi þreyttur
þegar komið var í Vík, “ sagði
Jóhannes. „Það tók okkur 20 daga
að hjóla hringinn og við hjóluðum
um 60 mílur á dag.“
Jóhannes segir það bæði gott og
slæmt að hjóla á Íslandi í samanburði
við önnur lönd. Víða séu nær engar
vegaxlir svo það geti verið erfitt
þegar þung umferð er og mikið um
stóra bíla, eins og flutningabíla og
húsbíla. Þá sé of mikið um að menn
stundi glæfralegan framúrakstur
eða mæti bílum á mjóum vegi á
ofsahraða. Ökumenn taki þá ekki
alltaf tillit til hjólandi umferðar.
Afleit upplifun á sumum
íslenskum ferðamannastöðum
„Við upplifðum því nokkur
ógnvekjandi augnablik á leiðinni.
Akureyri var einna verst fyrir
hjólreiðamenn þó að þar sé fallegt.
Mér líkaði hins vegar einna best við
Borgarnes og svæðið þar í kring.
Þá er líka fallegt á Mývatni en það
er orðið svo mikilferðamannastaður
að það var ekki sérlega gaman að
koma þangað. Þar fórum við inn á
veitingastað sem mér skildist að væri
sá eini þar um slóðir en þjónustan
var afleit. Við vorum staddir þar
á afmælisdeginum mínum og ég
pantaði mér salat til að halda upp
á daginn. Ég fékk haug af iceberg-
salati á diski, enga dressingu og
ekkert annað. Svo pöntuðum við
„fish and chips“ og við fengum
einhvers konar harða fiskstauta sem
brögðuðust hreint ekki vel. Samt
var þetta mjög, mjög dýrt og við
vorum því fegnastir þegar við fórum
þaðan. Á öðrum stöðum var maturinn
yfirleitt mjög góður.“
Besti maturinn á Hannes Boy
á Siglufirði
Besti maturinn sem ég fékk var á
Siglufirði. Við fórum á Hannes Boy
café og þar var hreint frábær matur.
Á Siglufirði er líka fín sundlaug. Þá
fórum við í kúrekabæinn Skagaströnd
og þar er sennilega eini staðurinn þar
sem manni eru færðar kaffiveitingar
í heita pottinn.
Á Norðurlandi var loftið líka svo
einstaklega tært, vatnið svo hreint og
sjórinn blár. Þetta var sérlega fallegt.
Þægilegra á ferðast um Ísland en
mörg önnur lönd
„Það sem Ísland hefur fram yfir
Bandaríkin og Kanada og önnur
lönd sem ég þekki til er hversu stutt
er á milli þéttbýlisstaða. Í hverju
einasta þorpi eru líka fín tjaldstæði
og sundlaugar sem ekki er sjálfsagt
að finna í öðrum löndum og alls ekki
í Bandaríkjunum. Þá eru tjaldstæðin
á Íslandi yfirleitt vel staðsett og
jafnvel í miðjum bæ, sem er mjög
hentugt.
Það er líka ánægjulegt hvað
bændur og aðrir eru viljugir að
leyfa manni að fara yfir landareign
sína. Þetta er ekki hægt að gera
í Bandaríkjunum, þar ferðu
einfaldlega ekki yfir einkaland. Á
Íslandi eru aftur á móti víða settar
tröppur yfir girðingar til að auðvelda
manni að komast áfram og það
jafnvel inn á einkaland. Þetta líkar
mér afskaplega vel.“
/HKr.
Helstu heimildir:
Sylvía D. Schonberg og
ættingjar.
Alþingi þingmannatal.
Dermott McInnes June 2001
U.S. Federal Census Collection
1910 Census Extractions
for the Community of Point
Roberts
MBL 6. maí 2000.
ÍSLENSKA LANDNÁMIÐ Á
POINT ROBERTS eftir
Jónas Þór sagnfræðing.
Tíminn desember 1960.
Trinity Community Lutheran
Church
Hrossaræktin 2013 er komin út !
Meðal efnis:
Hæst dæmdu kynbótahross Íslands 2013
Kynbótasýningar erlendis
Viðtal við Kristin Guðnason
Vatnsleysuhrossin
Viðtal við Guðmund F. Björgvinsson
Ófeigur 882 frá Flugumýri
Sveins Guðmundssonar minnst
og margt fleira.
300 blaðsíður af fróðleik og skemmtun.
Hrossaræktin 2013 fæst á eftirfarandi sölustöðum:
Öllum helstu hestavöruverslunum.
Bókabúðum Pennans/Eymundssonar um land allt.
Þjónustustöðvum N1 um land allt.
Verslunum Hagkaupa.
Landstólpa.
Litlu kaffistofunni
Jóhannes Schonberg
Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri www.jotunn.is
Jötunn Vélar ehf. - Kt. 600404 2610
1. tbl. 10. árg. apríl 2013
Ný verslun á Lónsbakka á Akureyri
Verslun Jötunn Véla á Lónsbakka á Akureyri
Jötunn Vélar ehf. hafa opnað verslun og
þjónustudeild á Lónsbakka á Akureyri. Hús-
næði fyrirtækisins er við hlið verslunar
Húsasmiðjunnar og er samtals um 700
fermetrar að stærð. Auk þess er útisvæði
þar sem verður tækjalager og möguleiki til
sýninga á vélum og tækjum. Innandyra verður
verslun á um 400 fermetra gólfrými en auk
þess varahlutalager og skrifstofurými. Þrír
starfsmenn hafa verið ráðnir til starfa á
Akureyri en starfstöðin norðan heiða mun
í öllum aðalatriðum endurspegla starfsemina
á Selfossi hvað varðar sölu landbúnaðartækja,
verslunarrekstur og varahlutaþjónustu.
Undirbúningur opnunar á Akureyri hefur
staðið um nokkurt skeið en um síðustu
áramót tók Hrafn Hrafnsson til starfa hjá
fyrirtækinu á Akureyri og hefur síðan unnið að
undirbúningi. Hann segir markmiðið hafa verið
að vanda valið hvað húsnæði og staðsetningu
varðar.
„Staðsetningin við hlið verslunar Húsa-
smiðjunnar á Lónsbakka er mjög góð. Við
verðum mjög sýnilegir hér fast við inn-
keyrsluna í bæinn og aðgengið er gott. Ég
er þess fullviss að verslunin mun vekja áhuga
bæjarbúa ekkert síður en viðskiptavina okkar
í sveitunum. Í því sambandi má nefna t.d.
úrval af garðvörum og gróðurhúsum, verkfæri,
leikföng, fatnað, skó, reiðhjól og margt fleira.
Verslunin á Lónsbakka á sér ekki hliðstæðu
hér í bæ,“ segir Hrafn.
Nýtt merkiNýtt merki Jötunn Véla ehf. kemur fyrst fyrir
sjónir viðskiptavina með þessu fréttabréfi.
Undanfari þess er vinna innan fyrirtækisins
að undanförnu sem hefur haft að leiðarljósi
að skerpa ímynd og ásýnd. Í vinnunni hafa
bæði stjórnendur og starfsmenn tekið þátt,
auk utanaðkomandi fagaðila.
„Líkt og fram kemur í fréttabréfinu hefur
fyrirtækið Jötunn Vélar aldrei verið öflugra,
hvort heldur varðar veltu, starfsmannafjölda
eða fjárhagslega stöðu,“ segir Guðmundur Þór
Guðjónsson, fjármálastjóri Jötunn Véla.
Engar breytingar eru gerðar á rekstrarformi
né þjónustuþáttum, að öðru leyti en því sem
lýtur að stækkun með tilkomu verslunar Jötunn
Véla á Akureyri. „Sala og varahlutaþjónusta
landbúnaðarvéla eru grunnstoðir Jötunn Véla
en verslunarrekstur hefur vaxið mikið að
undanförnu, auk annarra þjónustuþátta,“ segir
Guðmundur Þór. Nýtt merki Jötunn Véla ehf. er hannað af
Þórhalli Kristjánssyni, grafískum hönnuði hjá
Effekt auglýsingastofu á Akureyri. Í mynd
merkisins er gróflega skapaður jötunn, sem
táknmynd afls og hreyfingar. Segja má að
merkið og heiti fyrirtækisins samtvinnist
með þessum hætti og undirstriki þann styrk
og framsækni sem Jötunn Vélar ehf. byggi á
hér eftir sem hingað til.
Jötunn Vélar ehf. - Kt. 600404-2610 / Selfossi og Akureyri
Tíunda rekstrarár Jötunn Véla ehf.
er hafið og verður ýmislegt gert í
tilefni af tímamótunum. Segja má
að það hefjist af krafti með opnun
á Akureyri, eins og fjallað er um
hér að ofan. Fyrirtækið hefur jafnt
og þétt eflst frá stofnun sem best
má sjá á því að starfsmenn hafa
aldrei verið fleiri en nú. Velta Jötunn
Véla var tæplega 1,7 milljarðar
króna í fyrra og skilaði fyrirtækið
72 milljóna króna rekstrarhagnaði
en áætlað er að velta ársins 2013
verði um tveir milljarðar króna.
Tíunda rekstrarár Jötunn Vélaer nýhafið
jot_frettabr.april2013.indd 1
1. tbl. 10. árg. apríl 2013
Ný verslun á Lónsbakka á Akureyri
Verslun Jötunn Véla á Lónsbakka á Akureyri
Jötunn Vélar ehf. hafa opnað verslun og
þjónustudeild á Lónsbakka á Akureyri. Hús-
næði fyrirtækisins er við hlið verslun r
Húsasmiðjunnar og er samtals um 700
fermetrar að stærð. Auk þess er útisvæði
þar sem verður tækjalager og möguleiki til
sýninga á vélum og tækjum. Innandyra verð r
verslun á um 400 fermetra gólfrými en auk
þess varahlutalager og skrifstofurými. Þrír
starfsmenn hafa verið ráðnir til sta fa á
Akureyri en starfstöðin norðan heiða mun
í öllum aðalatriðum endurspegla st rfsemina
á Selfossi hvað varðar sölu landbúnaðartækja,
verslunarrekstur og varahlutaþjónustu.
Undirbúningur opnunar á Akureyri hefur
staðið um nokkurt skeið en um síðu tu
áramót tók Hrafn Hrafnsson til starfa hjá
fyrirtækinu á Akureyri og hefur síðan u nið að
undirbúningi. Hann segir markmiðið hafa verið
að vanda valið hvað húsnæði og staðsetningu
varðar.
„Staðsetningin við hlið verslunar Húsa-
smiðjunnar á Lónsbakka er mjög góð. Við
verðum mjög sýnilegir hér fast við inn-
keyrsluna í bæinn og aðgengið er gott. Ég
er þess fullviss að verslunin mun vekja áhuga
bæjarbúa ekkert síður en viðskiptavina okkar
í sveitunum. Í því sambandi má nefna t.d.
úrval af garðvörum og gróðurhúsum, verkfæri,
leikföng, fatnað, skó, reiðhjól og margt fleira.
Verslunin á Lónsbakka á sér ekki hli stæðu
hér í bæ,“ segir Hrafn. Nýtt merkiNýtt merki Jötunn Véla ehf. kemur fyrst fyrir sjónir viðskiptavina með þessu fréttabréfi. Undanfari þess er vinna innan fyrirtækisins að undanförnu sem hefur haft að leiðarljósi að skerpa ímynd og ásýnd. Í vinnun i hafa bæði stjórnendur og starfsmenn tekið þátt, auk utanaðkomandi fagaðila. „Líkt og fram kemur í fréttab éfinu hefur fyrirtækið Jötunn Vélar aldrei ver ð öflugra, hvort heldur varðar veltu, starfsmannafjölda eða fjárhagslega stöðu,“ segir Guðmundur Þór Guðjónsson, fjármálastjóri Jötunn Véla. Engar breytingar eru gerðar á rekstrarformi né þjónustuþáttum, að öðru leyti en því sem lýtur að stækkun með tilkomu verslunar Jötunn Véla á Akureyri. „Sala og varahlutaþjónusta landbúnaðarvéla eru grunnstoðir Jö unn Véla en verslunarrekstur hefur vaxið mikið ð undanförnu, auk annarra þjónustuþátta,“ egir Guðmundur Þór. Nýtt merki Jötunn Véla ehf. er hannað af Þórhalli Kristjánssyni, grafískum hönnuði hjá Effekt auglýsingastofu á Akureyri. Í mynd
merkisins er gróflega skapaður jötunn, sem
táknmynd afls og hreyfingar. Segja má að
merkið og heiti fyrirtækisins samtvinnist
með þessum hætti og undirstriki þann styrk
og framsækni sem Jötunn Vélar ehf. byggi á
hér eftir sem hingað til.
Jötunn Vélar ehf. - Kt. 600404-2610 / Selfossi og Akureyri
Tíunda rekstrarár Jötunn Véla ehf.
er hafið og verður ýmislegt gert í
tilefni af tímamótunum. Segja má
að það hefjist af krafti með opnun
á Akureyri, eins og fjallað er um
hér að ofan. Fyrirtækið hefur jafnt
og þétt eflst frá stofnun sem best
má sjá á því að starfsmenn hafa
aldrei verið fleiri en nú. Velta Jötunn
Véla var tæplega 1,7 milljarðar
króna í fyrra og skilaði fyrirtækið
72 milljóna króna rekstrarhagnaði
en áætlað er að velta ársins 2013
verði um tveir milljarðar króna.
Tíunda rekstrarár Jötunn Vélaer nýhafið
jot_frettabr.april2013.indd 1
Nýtt fréttabréf í næstu viku
Glæsileg afmælistilboð á vélum og tækjum