Bændablaðið - 28.11.2013, Qupperneq 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 28. nóvember 2013
Hægt að reka hugbúnaðarfyrirtæki hvar sem er
– Það eina sem til þarf er góð nettenging og mannauður, segir framkvæmdastjóri AN Lausna á Egilsstöðum
Í skrifstofuhúsnæði á Egilsstöðum
hefur byggst upp fjöldi fyrirtækja
í skapandi atvinnugreinum. Sex
fyrirtæki eru nú starfandi á efri
hæð gamla kaupfélagshússins
á Egilsstöðum sem öll eiga það
sammerkt að starfa á einn eða
annan hátt við upplýsingatækni.
Fyrirtækin hafa myndað klasa
sem nefnist Hugvangur en upphaf
starfsemi þeirra flestra má rekja
til Austurnets, klasafyrirtækis sem
stofnað var árið 2007.
Austurnet safnar að sér
svokölluðum kúluverkefnum. Mörg
þeirra eru í upplýsingatækni en
einnig eru önnur verkefni þarna svo
sem í ferðaþjónustu eða samfélags-
verkefni. Meðal fyrirtækja sem orðið
hafa til út úr slíkum kúluverkefnum
eru Austurfrétt, sem fjallað var
um hér í blaðinu fyrir nokkrum
vikum. Önnur fyrirtæki sem eiga
rætur í Austurneti eru til að mynda
fyrirtækin AN Lausnir og AXnorth.
AN Lausnir var stofnað formlega
í apríl 2011 og sinnir fyrirtækið hug-
búnaðargerð, forritun og tengdum
verkefnum. Ári síðar var fyrirtækið
AXnorth síðan stofnað og þá í helm-
ingseigu AN Lausna og bandarísks
samstarfsaðila þess, Greenlight sem
er ráðgjafarfyrirtæki í hugbúnaðar-
lausnum.
Erlingur Þórarinsson, fram-
kvæmda stjóri AN Lausna, segir
að með því hafi Greenlight viljað
treysta samskiptin við AN Lausnir
enn frekar.
„Flest verkefni AXnorth koma
í gegnum þann aðila. AXnorth er
mjög sérhæft. Við vinnum að sér-
lausnum í kerfi sem heitir Dynamics
AX en engu að síður er opið á alla
aðra vinnu í hugbúnaðargeiranum.
Við höfum hins vegar skapað okkur
ansi mikla sérstöðu í þessu og nýtum
okkur það.“
Sinna erlendum stórfyrirtækjum
„Það sem AXnorth gerir er að þróa
og halda við hugbúnaðarkerfi sem er
umsýslukerfi fyrir stórfyrirtæki. Þá á
ég við gríðarstór fyrirtæki, hvort sem
er á sviði starfsmannahalds, vöruum-
sjónar, sölu, markaðssetningar eða
hvers annars. Þetta er utanumhald
fyrir allan rekstur stórra fyrirtækja.
Það er ekki stór markaður fyrir þessi
kerfi hér á Íslandi. Vissulega nota ein-
hver fyrirtæki þennan hugbúnað hér
heima en fyrirtækin sem við erum
að vinna fyrir erlendis hafa sjaldnast
færri en 1.000 starfsmenn og eru í
flestum tilfellum fjölþjóðleg. Þetta
geta verið fyrirtæki í matvælafram-
leiðslu eða bílaframleiðslu. Dæmi
um eitt svona fyrirtæki er fyrirtæki
sem hefur á fjórða þúsund starfs-
menn í vinnu í 240 starfsstöðvum í
140 löndum. Þetta fyrirtæki er að nota
eitt umsjónarkerfi fyrir allar þessar
starfsstöðvar og það gefur kannski
smá innsýn í umfangið sem þarf að
vinna með,“ segir Erlingur.
Starfsstöðvar dreifðar um landið
Í dag eru um fjórtán starfsmenn starf-
andi hjá AXnorth. Þeir eru dreifðir
víða um land þó höfuðstöðvarnar
séu á Egilsstöðum. Fyrirtækið er
með starfsstöðvar á Akureyri og
í Reykjavík og aðrar tvær minni á
Fáskrúðsfirði og í Flóahrepp. Vöxtur
fyrirtækisins hefur verið jafn og
þéttur.
„Þetta er ekki gamalt fyrir-
tæki en erlendu verkefnin sem við
höfum fengið í samstarfi okkar
við Greenlight hafa valdið því að
vöxturinn hefur verið mikill og
hraður“, segir Erlingur og bætir við:
„Eitt sem ég tel að hafi unnið með
okkur er að við höfum verið fljót að
aðlaga okkur að nýjum hlutum, það er
svolítið í eðli Íslendinga að gera það.
Það hefur nýst okkur mjög vel úti á
Bandaríkjamarkaði. Það er nefnilega
mín upplifun að menningin í þessum
geira sé þannig að þar noti menn það
sem virkar en við Íslendingar æðum út
í vatnið ef þörf er á. Auðvitað kemur
fyrir að maður blotnar en á endanum
þá virkar þetta vel fyrir báða aðila.“
Tímamismunurinn bæði
kostur og ókostur
Erlingur segir að vegna þess að nánast
öll vinna AXnorth sé fyrir erlenda
aðila reyni stundum á samskipta-
hæfni starfsmanna.
„Það kemur samstarfsaðilum
okkar úti í Bandaríkjunum oft á
óvart að hvað við erum óhræddir
við að reyna okkur við ný verk-
efni, eitthvað sem við ekki höfum
sérþekkingu á en öflum okkur bara.
Við finnum líka verulega fyrir því að
við erum að vinna í öðru tímabelti.
Það getur tekið á heimilishaldið
að þurfa að vinna fram undir mið-
nætti eða jafnvel lengur um ákveðið
skeið, til dæmis þegar verið er að
innleiða kerfi hjá nýjum viðskipta-
vinum. Það er nú ókosturinn við
þetta starf. Það getur hins vegar
líka verið kostur vegna þess að við
erum stundum í aðstöðu til að skapa
ánægju hjá viðskiptavinum þegar
það koma upp vandamál að degi til
í Bandaríkjunum. Okkur er þá send
beiðni um að leysa vandamálið sem
við getum gert í okkar dagvinnu. Það
þýðir að vandamálið er leyst á meðan
er nótt úti í Bandaríkjunum og við-
skiptavinurinn getur mætt í vinnuna
og það er ekki lengur til staðar. Þetta
gerir okkar vinnu mjög eftirsókna-
verða, við getum unnið á meðan ekki
er álag á kerfinu úti. Við lítum út
fyrir að hafa mikinn viðbragðsflýti
þegar við erum í raun ekki að gera
annað en leysa verkefni þegar við
mætum í vinnuna að morgni.“
Erfitt að útskýra „the second of
whitsun“
„En auðvitað geta orðið einhverjir
árekstrar, vegna menningarmunar.
Bandaríkjamönnum finnst til
dæmis mjög skrýtið, sérstaklega
á vor mánuðum, hversu margir
einkennilegir frídagar eru hér á Íslandi.
Þegar þarf að reyna að útskýra fyrir
þeim að það sé frídagur á mánudegi
vegna þess að þá sé annar í hvítasunnu
eða „second of whitsun“ fara þeir
kannski að efast um samstarfið, eða
halda að við séum að gera grín að
þeim. Þetta getur stundum skapað
pínu togstreitu því við erum kannski
í fríi þegar vandamál koma upp úti
og oft getum við ekkert frí tekið. Það
kemur alveg fyrir að við þurfum að
vinna eftir bandarísku dagatali.“
Mikilvægt að halda menntuðu
fólki í heimabyggð
Erlingur segir að í sínum huga skapi
fyrirtæki eins og AXnorth gríðarlega
mikil verðmæti, ekki síst séu þau stað-
sett í byggðarlögum á landsbyggðinni.
„Svo við tökum dæmi héðan
frá Egilsstöðum þá eru ekki mörg
fyrirtæki hér af sömu stærð og við,
sem ekki eru útibú frá fyrirtækjum í
Reykjavík. Það eru ekki mörg fyrir-
tæki sem eru með sínar höfuðstöðvar
hér, af þessari stærðargráðu. Ég held
ég geti fullyrt að ef við undanskiljum
Alcoa þá er þetta í augnablikinu
nánast eini starfsvettvangurinn fyrir
tölvunarfræðinga á Austurlandi.“
Samgöngur og fjarskipti grunnur
að því að byggð haldist um landið
„Ef við horfum bara á hæðina hérna
þá eru hér starfandi fyrirtækin
Austurnet, AN Lausnir, AXnorth,
Rational Network, Austurfrétt og
auglýsingafyrirtækið Augasteinar.
Allt þetta fólk, sem vinnur hjá
þessum fyrirtækjum, er héðan að
austan. Þetta eru einstaklingar sem
við höldum í heimabyggð sem við
værum annars að missa eitthvað
annað. Það hefur haft samband við
okkur talsvert af ungu fólki sem er
í tölvunarfræði eða tæknitengdu
námi sem eru mjög spennt fyrir því
að hafa möguleika á því að koma
til vinnu hér heima í héraði. Þetta
er stórkostlega jákvæð þróun fyrir
byggðina. Þetta er hægt vegna þess
að við vinnum yfir netið. Samgöngur
og fjarskipti eru grunnundirstaðan að
því að hægt sé að halda byggð um
landið allt. Klárt mál.“
Geta unnið alls staðar
Erlingur segir engu máli skipta hvar
fyrirtæki eins og AXnorth hafi starfs-
stöðvar sínar, eins lengi og internet-
tengingar eru góðar.
„Í dag er mjög hagstætt fyrir
hugbúnaðarfyrirtæki að vinna að
verkefnum erlendis og við erum
það heppin að vera í þannig geira
að það skiptir engu máli hvar við
vinnum, eins lengi og nettengingar
eru í lagi. Það er bara málið. Það er
því vel gerlegt að reka fyrirtæki af
þessu tagi hvar sem er á landinu. Við
höfum verið mjög heppin að ná þess-
ari góðu tengingu við viðskiptavin
okkar úti og höfum því ekki þurft
að hafa miklar áhyggjur af því að
ná í verkefni. Þá er kannski rétt að
minnast á að eins og staðan er í dag
eru allar tekjur AXnorth í erlendum
gjaldeyri, í dollurum. Það má því
segja að þessi rekstur sé gjaldeyris-
skapandi, og það er ekki lítils virði í
dag.“ /fr
Erlingur Þórarinsson, framkvæmdastjóri AN Lausna á Egilsstöðum. Mynd / fr