Bændablaðið - 28.11.2013, Side 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 28. nóvember 2013
Hér er á ferðinni ein besta
varmadæla sem komið hefur.
Þessi verðlaunaða varmadæla hitar t.d.
ofnakerfi, gólfhita, neysluvatn o.fl.
Allt að 70°C framrásarhiti, þú getur
valið neysluvatnshitastig o.fl.
NIBE F1245 getur notað vatn, jörð
og sjó til orkuöflunar.
Allur búnaður innandyra.
NIBE frá Svíþjóð, aðeins það besta.
Stærstir í Evrópu í 60 ár.
W
NIBE™
F2040 |
Loft í vatn
Ný kynslóð af varmadælum
Nýtt
Ánægðustu varmadælu-eigendurnir eru með NIBE, engin furða!
Loft í vatn með öllu á sérstöku tilboði í desember.
Er rafmagnsreikningurinn of hár?
Er þá ekki kominn tími til að við tölum saman?
Nýtt NIBE™ F1255 4 til16kW í einni og sömu jarðvarmadælunni.
FFriorka www.friorka.is 571 4774
NIBE™ F1245 Jarðvarmadæla
NIBE F1245-10kW SCOP 5.15
friorka@friorka.is
Flestir Íslendingar sem kaupa
jarðvarmadælu velja NIBE F1245
NIBE F1255-4 til16kW SCOP 5.5
Uppsetningaraðilar óskast um land allt.
Frí NIBE námskeið með Diploma.
Til
bo
ð á
fa
ceb
ook
í d
ese
mb
er
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Hafa áhrif um land allt!
Búnaðarsamband Suður-
Þingeyinga stóð fyrir Bændagleði
sem haldin var laugardagskvöldið
23. nóvember í félagsheimilinu
Ljósvetningabúð í Þingeyjarsveit.
Þetta var í annað sinn sem
Búnaðarsamband Suður-Þingeyinga
heldur Bændagleði en hún var
haldin í fyrsta sinn í Kiðagili í
Bárðardal í janúar síðastliðnum.
Upphaflega var á dagskrá að halda
bændagleðina haustið 2012 en
vegna septemberóverðursins og
afleiðinga þess var henni frestað fram
í janúar. Þingeyskir bændur hafa því
skemmt sér tvisvar sinnum saman á
bændagleði á þessu ári.
Gestum á bændagleðinni nú var
boðið upp á léttar veitingar í boði
Norðlenska og Mjólkursamsölunnar
en drykkirnir voru í boði Jötunn véla.
Konur úr Kvenfélagi Ljósvetninga
sáu um að útbúa veitingarnar og bera
þær á hlaðborð.
Boðið var upp á mörg úrvals
skemmtiatriði og þar á meðal var
sönghópur, ásamt undirleikara,
sem kallaði sig „Fjórir tenórar og
draumadísin“ og skemmtigestum
á meðan á borðhaldinu stóð.
Nokkrir í sönghópnum eru bændur
en stunda líka söngnám við
Tónlistarskólann á Akureyri og
fengu þarna gott tækifæri til að láta
ljós sitt skína. Þórhallur Bragason frá
Landamótsseli stjórnaði fjöldasöng
og fluttar voru frumsamdar vísur og
gamansögur.
Þingeyski bóndinn 2013
Búnaðarsambandið veitti í fyrsta
sinn viðurkenninguna Þingeyski
bóndinn 2013. Viðurkenninguna fá
þeir bændur sem hafa einkunnarorðin
hógværð, snyrtimennsku og sátt við
umhverfið að leiðarljósi við bú sitt
og búskap. Viðurkenninguna fengu
hjónin Arnór Erlingsson og Elín
Eydal á Þverá í Fnjóskadal. Hlöðver
Pétur Hlöðversson, stjórnarmaður
Búnaðarsambandsins, afhenti þeim
Arnóri og Elínu viðurkenningarskjal
og olíumálverk sem sýnir þingeyskt
umhverfi, eftir Sigurborgu
Gunnlaugsdóttur bónda frá Engihlíð
í Út-Kinn. Ljósavatnsskarð og
nánasta umhverfi var viðfangsefnið á
málverki Sigurborgar. Að sögn Jónu
Bjargar Hlöðversdóttur er stefnt að
því að veita þessa viðurkenningu
árlega.
Gestir Bændagleðinnar tóku þátt í
spurningakeppninni Sveitasvarið sem
Jóna Björg stjórnaði og var keppnin
í Pub-Quiz anda. Spurningarnar
voru tólf alls og misloðnar. Svörin
voru óljós hjá mörgum og endaði
keppnin í bráðabana í anda Útsvars.
Þar keppti sameinað lið Aðaldælinga
og Reykhverfinga við lið úr
Mývatnssveit og var þeim fyrrnefndu
dæmdur sigur að lokum eftir mikinn
atgang.
Bændagleðin var vel sótt af hátt í
200 manns úr öllum sveitum Suður-
Þingeyjarsýslu.
Í spjalli við Bændablaðið sagði
Jóna Björg Hlöðversdóttir bóndi á
Björgum í Út-Kinn að stefnt væri að
því að gera bændagleðina að árlegum
haustviðburði hér eftir.
/HA.
Þingeysk bændagleði í Ljósvetningabúð
Arnór Erlingsson og Elín Eydal bændur á Þverá í Fnjóskadal fengu
viðurkenningu Búnaðarsambandsins Þingeyski bóndinn 2013. Með þeim
á myndinni er Hlöðver Pétur Hlöðversson, stjórnarmaður Búnaðarsambands
Suður-Þingeyinga. Mynd / HA