Bændablaðið - 28.11.2013, Page 52
52 Bændablaðið | Fimmtudagur 28. nóvember 2013
Um 96,5% íbúa landsins með 10-50 Mbit/s
gagnaflutningshraða
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS)
hefur gefið út tölfræðiúttekt fyrir
fjarskiptamarkaðinn á Íslandi
fyrir fyrri hluta ársins 2013 og er
í skýrslunni borið saman tímabilið
frá fyrri hluta ársins 2011, eða
þriggja ára tímabil. Í skýrslu PFS
eru upplýsingar um helstu stærðir
og fyrirtæki á fjarskiptamarkaði.
PFS tekur út stöðuna á
fjarskiptamarkaði tvisvar á ári.
Markmiðið með skýrslunni er
að bæta upplýsingagjöf og auka
gagnsæi á þessum markaði.
Á síðustu árum hafa orðið miklar
breytingar á fjarskiptamarkaðnum.
Helstu fyrirtæki á fjarskipta-
markaðnum eru Síminn hf.,
Fjarskipti ehf. (Vodafone), Nova
ehf. og IP-fjarskipti ehf. (Tal).
Síminn er ennþá stærsta fjarskipta-
fyrirtækið á Íslandi með um
60% markaðshlutdeild símtala
í fastaneti, sem hefur verið nær
óbreytt síðustu þrjú ár. Næst stærsta
fjarskiptafyrirtækið, Vodafone, er
hálfdrættingur á við Símann með
um 29% markaðshlutdeild. Þegar
litið er til símtala til farsímaneta er
markaðshlutdeild Símans í dag um
55%, Vodafone um 37% og Tals um
4%. Lítil breyting hefur verið á þessu
síðustu þrjú árin. Í skýrslunni kemur
einnig fram að fjöldi aðgangslína í
fastanetinu heldur áfram að fækka
og eru um 129.000 í dag, en voru
159.000 árið 2000. Fjárfestingar
í fjarskiptastarfsemi hafa aukist á
undanförnum þremur árum um 1,2
milljarð frá fyrri hluta ársins 2011,
en þær voru um 3,6 milljarðar á fyrri
hluta þessa árs, mest í farsímarekstri.
Heildartekjur fjarskiptafyrirtækja
hafa hækkað um 2 milljarða á þessu
tímabili, voru á fyrri hluta ársins
rúmlega 24 milljarðar, og koma
mestar tekjur af farsímarekstri, eða um
7,8 milljarðar. Mesta tekjuaukningin
hefur þó orðið í öðrum tekjum
fjarskiptafyrirtækjanna, en þær hafa
hækkað um milljarð á þremur árum.
Ekki kemur fram í skýrslunni hvaða
tekjur þetta eru.
Þegar litið er til internetsins
hefur ljósleiðaratengingum fjölgað
á tímabilinu um 5 þúsund á öllu
landinu, og eru orðnar um 24.000.
Aðrar tengingar eru xDSL um 89.000
tengingar, örbylgja/þráðlausar um
1.600 og loks internettengingar
í gegnum gervihnött 70 talsins.
Áhugavert er að skoða fjölgun
ljósleiðaratenginga frá árinu 2003
en þá voru þær 60 á öllu landinu. Öll
árin þar á eftir til og með árinu 2010
fjölgaði þeim ört, eða um og yfir 100%
á milli ára, en frá og með árinu 2011
hefur dregið úr þessari hlutfallslegri
fjölgun, og fjölgaði þeim aðeins
um 30% á síðasta ári. Þegar litið
er til xDSL tenginga á öllu landinu
kemur fram í skýrslunni að 96,5%
viðskiptavina fjarskiptafyrirtækjanna
er með gagnaflutningshraða 10-50
Mbit/s, en 3,5 með minna en 10
Mbit/s, eða 3.090 viðskiptavinir. Sjá
mynd 1.
Gera má ráð fyrir að þessir
viðskiptavinir séu búsettir út á landi,
og ekki kæmi á óvart að stærsti hópur
þeirra væru bændur. Tölfræðiskýrslu
PFS má finna á heimasíðu
stofnunarinnar (www.pfs.is).
WorldFengur býður upp á
stóðhestaval
Nýjasta viðbótin í WorldFeng,
upprunaættbók íslenska hestsins, er
svokallað stóðhestaval. Verkefnið
varð til á fundi okkar dr. Þorvalds
Árnasonar, kynbótafræðings, og
Göran Haggberg, ræktunarleiðtoga
Svíþjóðar, í Svíþjóð í fyrrasumar.
Þá hafði skeiðgenið verið ný
uppgötvað en dr. Þorvaldur var einn
þeirra vísindamanna sem komu að
þeirri uppgötvun. Viðfangsefnið
var að tengja þessa uppgötvun með
einhverjum hætti inn í WorldFeng
(WF) þannig að hún nýttist
hrossaræktendum. Ákveðið var að
gera endurbætur á valpörunarforritinu
þar sem upplýsingum um skeiðgenið
væri bætt við niðurstöðuna úr
valpörun stóðhests og hryssu, en
einnig að bæta við stóðhestavali fyrir
ræktunar hryssur í heimarétt WF.
Öldungurinn Göran Haggberg,
sem hefur verið dyggur stuðnings-
maður WF frá upphafi og er einn
af þeim sem unnu með Gunnari
Bjarnasyni heitnum, bauðst síðan til
að fá Íslandshestafélagið í Svíþjóð,
SIF, til að kosta þróunarvinnu dr.
Þorvaldar vegna verkefnisins. Allt
gekk þetta eftir og á ráðstefnu WF
í Malmö í síðasta mánuði kynnti
dr. Þorvaldur stóðhestavalið og
endurbætt valpörunarforrit á fundi
með öllum nefndum og stjórn FEIF.
Hann átti síðan vinnufund með
Þorbergi Þ. Þorbergssyni, forritara
WF, til að færa þessa vinnu inn í
upprunaættbókina.
Með nýjustu útgáfu WF geta
áskrifendur fengið upp tillögur um
rétta stóðhestinn í gegnum heimarétt
sína og valið þá ræktunarhryssu sem
velja á stóðhest fyrir, en einnig er hægt
að fara beint í stóðhestaval úr valmynd.
Forsendur fyrir stóðhestavali fyrir
hryssu er skyldleikaræktarstuðull
(F%), öryggi kynbótamatsútreikings,
land sem stóðhestur er staðsettur í og
úrvalsmörk, þ.e. hvaða eiginleika á
velja stóðhest fyrir. Sjá mynd 2.
Síðan er hægt að skoða valpörun
fyrir hvern stóðhest sem WF gerir
tillögu um, og skoða t.d. líkurnar
á hvort folald verði klárgengt eða
alhliða. Jafnframt koma líkurnar á
hvaða lit folaldið fær – sjá mynd 3.
Upplýsingatækni & fjarskipti
sviðsstjóri tölvudeildar
Bændasamtaka Íslands
jbl@bondi.is
Jón Baldur Lorange– Grein 49
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Mynd 3. Sá hluti valpörunar í WorldFeng sem byggir á skeiðgeninu.
Mynd 1. Hlutfall xDSL-tenginga eftir
hraða tengingar.
Mynd 2. Dæmi um stóðhestaval, 5 efstu stóðhestar miðað við úrvalsmörk.
Guðmundur Jóhannesson
Ábyrgðarmaður
í nautgriparækt
S: 480-1808
mundi@rml.isAukum verðmæti mjólkur með kynbótum
Það hefur lengi legið fyrir að hægt
er að hækka hlutfall verðefna í
mjólk með því að nota naut sem
gefa dætur sem mjólka efnaríkri
mjólk. Í kynbótastarfinu hefur í
næstum þrjá áratugi verið valið
fyrir afurðum í magni próteins
og ákveðið vægi haft á prótein-
hlutfalli mjólk til þess að halda
því uppi.
Miðað við verðlagningu mjólkur
í dag getur það aukið hagkvæmni
búrekstrarins verulega að velja fyrir
hærri efnahlutföllum en í dag fá
bændur greitt 0,05 kr./l fyrir hvert
0,01% sem fituhlutfallið hækkar
og 0,19 kr./l fyrir hvert 0,01%
sem próteinhlutfallið hækkar.
Verðið lækkar svo að sama skapi ef
verðefnahlutföllin lækka.
Við skulum líta á raunverulegt
dæmi á búi þar sem annars vegar eru
bornar saman dætur sæðinganauta
og dætur heimanauta á búinu. Rétt er
að taka fram að hóparnir eru nánast
jafnstórir, þ.e. helmingur kúnna
er undan sæðinganautum og hinn
helmingurinn undan heimanautum.
Eins og tölurnar sýna glöggt
munar töluverðu á verði mjólkur
eftir því sem efnainnihaldið hækkar.
Það eru ekki ný sannindi. Í þessu til-
viki er munurinn í auknum tekjum
4,42 kr. á lítra eða 884.000 kr. á ári
á 200 þús. lítra búi. Munur á nettó-
tekjum milli hópa er ekki endilega
jafnmikill og dæmið hér að ofan
sýnir því væntanlega er fóðrun eitt-
hvað dýrari hjá þeim gripum sem
mjólka efnaríkari mjólk.
Meðalkynbótagildi dætra
sæðinga nautanna í dæminu er
103 hvað afurðir snertir en 97 hjá
dætrum heimanautanna. Dætur
sæðinganautanna sýna þetta
glögglega í meiri afurðum, bæði hvað
snertir magn og efnainnihald. Þetta
er glöggt dæmi um hve kynbætur
geta aukið verðmæti afurðanna og
þar með arðsemi búrekstrarins.
Afurðaeiginleikar, eins og
mjólkur magn og fitu- og prótein-
hlutfall í mjólk, hafa hátt arfgengi
og val fyrir þessum eiginleikum
skilar því sjáanlegum árangri
strax á fyrstu kynslóð. Sá árangur
glatast ekki heldur flyst áfram
kynslóð eftir kynslóð. Fljótvirkasta
leiðin til þess að hækka hlutfall
verðefna í mjólk er eftir sem áður
markvissari og betri fóðrun. Hins
vegar er mikilvægt að hafa í huga að
sameigin legt ræktunarstarf sem og
á búsgrunni skilar sínu. Hafi kýrnar
ekki erfðafræðilega getu til þess að
mjólka mikilli og efnaríkri mjólk
mun fóðrun litlu breyta þar um.
Eftir sem áður verðum við að
varast að velja eingöngu fyrir
einum eða tveimur eiginleikum.
Horfa þarf á heildarmyndina og
markmiðið hlýtur ávallt að vera að
rækta þægilegar, endingargóðar,
heilsuhraustar og góðar mjólkurkýr.
K.mat
afurðir
K.mat
heild
Ársnyt, kg Fitu% Prót%
Meðalverð
kr. á lítra
Tekjur/ár
kr. á kú
Feður
Kýr á beit við bæinn Fit undir Eyjafjöllum. Mynd / HKr.