Bændablaðið - 28.11.2013, Page 56
56 Bændablaðið | Fimmtudagur 28. nóvember 2013
hlj@bondi.is
Vélabásinn
Hjörtur L. Jónsson
Dráttarvélar eru ekki allar
hefðbundnar í útliti og alltaf er
verið að hanna tæki sem geta komið
sem mest að gagni. Fyrir skemmstu
skoðaði ég dráttarvél sem er mikið
öðruvísi en flestar dráttarvélar
sem ég hef prófað og unnið á. Þessi
vél heitir Dieci og fæst hjá Búvís á
Akureyri.
Mikil lyftigeta í 7 metra hæð
Dieci Agri Tech 35,7 er algjört
fjölnotatæki. Lítur út eins og
skotbómulyftari en er með þrítengi að
aftan eins og hefðbundnar dráttavélar.
Þessi vél sem ég skoðaði er skráð
sem dráttarvél, kemst yfir fjörutíu
kílómetra hraða, er með beygjur á
öllum hjólum, með 3.500 kg lyftigetu
upp í sjö metra hæð og á að geta flest
það sem hefðbundnar dráttarvélar gera
og geta og jafnvel heldur meira og
betur.
Þegar ég settist inn í vélina og
lokaði dyrunum fann ég strax að
ökumannshúsið var vel einangrað
fyrir hávaða frá vélinni því að
varla heyrðist í vélinni þegar ég gaf
henni inn. Stjórntæki eru öll innan
seilingar og gott útsýni er til allra
átta úr ökumannssætinu. Speglar
stórir og góðir, sætið nánast eins og
hægindastóll.
Hægt að vera lóðréttur í miklum
hliðarhalla
Ökumannshúsið er fjaðrandi og
er hægt að halla húsinu með allri
yfirbyggingunni ásamt þrítenginu
og skotbómunni sé verið að vinna
í hliðarhalla. Ökumaðurinn er því
alltaf í lóðréttri stöðu, sem kemur
sér einstaklega vel þegar verið er að
plægja upp akur þegar önnur hliðin
er niðri í því sem búið er að plægja
og hin uppi á því sem óplægt er. Þá er
gott að geta hallað vélinni til að maður
sitji réttur.
Hægt er að beygja á öllum hjólum
til að taka þröngan hring og einnig til
að keyra út á hlið, sem gerir vélina
einstaklega fjölhæfa í mokstur að öllu
tagi.
Styrkur gálgans (skotbómunnar) er
mjög mikill og sem dæmi er hægt að
fá tennta tveggja og hálfs rúmmetra
skóflu með vélinni sé meiningin að
vinna við mokstur á grjótrudda (stóru
grjóti og fastri möl).
Þrítengið að aftan lyftir upp í rétt
tæpan metra og virkar við skoðun
mjög sterkt miðað við sverleika. Þá
er sverleikinn sambærilegur á Dieci-
vélinni sem ég skoðaði og öðrum
dráttarvélum, sem eru á bilinu 140 til
180 hestöfl.
Dráttargeta Dieci Agri Tech 35,7
er yfir tuttugu tonn og er úrtak fyrir
bremsur á vagn aftan á vélinni þannig
að vagninn bremsar líka ef stigið er á
bremsurnar á vélinni.
Skiptingin er vario-skipting með
skriðgír og er ekkert mál að keyra
vélina á 40 km hraða á góðum vegi.
Aflúrtakið aftan á vélinni er með
sérstakan tveggja þrepa gírkassa og
býður upp á 540 til 1.000 snúninga.
Glussakerfið í vélinni er öflugt, en
hægt er að stýra magni af glussa innan
úr vélinni. Ef snjóblásari erframan
á vélinni er þá settur aukakraftur
fram í gálgann til að vinnslugeta
snjóblásarans verði sem mest.
Tiltölulega gott aðgengi er að
vélinni til að vinna við hana, en
vélarhúsið er mjög vel hljóðeinangrað.
Mikið úrval aukahluta
Dieci framleiðir ótrúlegan fjölda
af aukatækjum til að setja framan
á skotbómuna og taldist mér til
við hraðflettingu á bæklingi með
aukahlutum að hægt væri að fá vel
yfir 30 mismunandi aukahluti framan
á vélina s.s. skóflur, krabba, mannbúr,
krana, kvíslar og klemmur. Sjálfur hef
ég unnið töluvert við snjómokstur á
bæði dráttarvél og traktorsgröfu, en að
moka snjó á svona skotbómulyftara er
ótrúlega þægilegt. Þarna tel ég komið
tæki sem slær öllum öðrum við sem
ég hef mokað snjó á.
Páll Hjaltalín, sölustjóri véla-
deildar hjá Búvís, sagði mér frá
því þegar hann fór á þessi vél á
torfærukeppni á Akureyri síðasta
sumar sem bjargvættur að sækja bilaða
og fasta torfærubíla og Dieci skilaði
sínu hlutverki vel. Nánar er hægt að
fræðast um Dieci-vélarnar á heimasíðu
Búvís á vefsíðunni www.buvis.is.
Dieci Agri Tech 35,7 frá Búvís á Akureyri:
Dieci öflug fjölnota dráttarvél
Lengd: 5.500 mm
Hæð 2.500 mm
Breidd: 3.400 mm
Þyngd: 7.600 kg
Vél: IVECO 130 hestöfl
Verð: 13.780.000 án vsk. /17.293.900 m/vsk.
Í efstu stöðu er lyftigetan 3.500 kg.
Dieci Agri Tech 35,7.
Allir glussatjakkar eru af sverustu
gerð.
Hægt er að beygja bæði með fram- og afturhjólum, sem er stór kostur.
Fyrir hliðarhalla og ýmsa aðra vinnu er það mikill kostur að geta hallað allri
Hægt er að keyra út á hlið.