Bændablaðið - 28.11.2013, Side 57
57Bændablaðið | Fimmtudagur 28. nóvember 2013
Markmiðið að bæta heilsu
og að koma í veg fyrir slys
Undanfarin ár hefur frístunda-
slysum fjölgað við notkun á
fjórhjólum og af hestamennsku.
Í sumum af þessum slysum má
rekja orsök meiðsla til þess að ekki
var farið eftir reglum varðandi
hjálmanotkun og með hjálm sem
ekki passaði á höfuð viðkomandi.
Í Bretlandi eru reglur um að
í búðum sem selja hjálma sé
löggiltur hjálmasali sem lokið
hefur námskeiði til að selja hjálma.
Ber viðkomandi sölumaður ábyrgð
á að viðskiptavinurinn fari út úr
versluninni með hjálm sem passar
á höfuð hans.
Aldrei á að fara á fjórhjól eða
sexhjól án hjálms
Allt of oft til sveita sjást menn á fjór-
hjólum og sexhjólum án þess að vera
með hjálm. Fjórhjól og sexhjól geta
náð miklum hraða á stuttri vegalengd
og eru frekar völt farartæki og því
ætti aldrei að fara á þessi tæki án
hjálms (og helst í brynju fyrir bak og
brjóstkassa), en það er skylda sam-
kvæmt lögum að vera með hjálm á
slíkum tækjum.
Hjálmanotkun hestamanna
hefur aukist
Einnig eru enn til knapar sem
þrjóskast við að nota hjálm á hestbaki.
Hins vegar hefur hjálmanotkun
hestamanna aukist mjög mikið
síðustu ár, en það er hægt að bæta um
betur með samstilltu átaki (fátt sker
í augu eins mikið og einn hjálmlaus
knapi í fallegum hópi hestamanna).
Slysatölur sýna færri höfuðmeiðsl
hestamanna síðustu árin, sem má
eflaust rekja beint til aukinnar
notkunar hjálma hestamanna og að
hjálmar eru alltaf að verða betri og
betri.
Hjálmar verða að passa á
höfuðið
Hjálmar verða að passa á höfuð þess
sem hjálminn notar og eru hjálmar
seldir eftir númerum rétt eins og
skór. Þegar maður mælir höfuðstærð
er tekið sentimetramálband og því
brugðið fyrir ofan augabrýr og fyrir
ofan eyru og ummál höfuðsins mælt
í sentimetrum. Sýni mælingin 56
eða 57 sentimetra á viðkomandi að
nota hjálm af stærðinni M, en ef
mælingin er 54 eða 55 sentimetrar
er hjálmastærð viðkomandi S. Sé
mælingin 58 eða 59 sentimetrar
á viðkomandi að nota hjálm af
stærðinni L. Einnig eru til bæði
stærri og minni hjálmar eins og
XL, XXL og XXXL, eða XS, XXS
og XXXS.
Sólarljós og notkun hafa
áhrif á styrk hjálma
Aldrei skal nota hjálm lengur en
10 ár miðað við meðalnotkun, en
til að hjálmur haldi styrk sínum
sem lengst er gott að geyma hann í
myrkri eða þar sem sól nær ekki að
skýna á hann.
Að mínu mati er hægt að nota létta
opna mótorhjálma sem fjölnota
hjálma við vinnu, á skíðum,
hestbaki, reiðhjóli, mótorhjóli
og fjórhjóli. Svona hjálmar fást í
mörgum mótorhjólabúðum.
Að vera með svoleiðis hjálm á
hestbaki samræmist ekki knapa-
tískunni, þá gerir hjálmurinn sama
gagn og tískuhjálmurinn ef maður
dettur af baki. /HLJ
ÖRYGGI – HEILSA– UMHVERFI
Lesendabás
Feldfjárrækt og hugsanlegur ávinningur af henni
Upphaflega var eini ávinningur
feldræktar gæran, sem hefur verið
notuð í pelsa og dýrar smávörur,
s.s. töskur og hanska. Hugmyndin
með feldræktuninni á Íslandi var
jöfnum höndum gæran og ullin,
einkum lambsullin, sem hefur
hlotið mikið lof handverksfólks
(samanber grein í Bændablaðinu
sl. vor). Íslenska feldféð sameinar
því bæði gærugæði og framleiðslu
sérstakrar ullar til handiðnar.
Að mínu viti hefur íslenskt feldfé
í Meðallandi náð þeim gæðum að
óhætt er að mæla með því með tilliti
til þessara eiginleika.
Þegar farið var af stað með
feldræktina voru valin ákveðin
svæði, þar sem ullareiginleikar
fjárins voru minna ,,ræktaðir“, þ.e.
ekki of mikið þel eða gróft tog.
Rétt er að bæta við hér að þegar
útflutningur á gráum gærum hófst
um 1950 fékkst mjög gott verð
fyrir þær. Það lækkaði hins vegar
fljótt, þrátt fyrir að sænskar gráar
gærur hækkuðu. Þetta gerðist m.a.
vegna þess að hér var lögð áhersla á
þéttan ,,þelfót“ gærunnar. Í samráði
við ráðunauta voru valin 3 svæði,
en raunverulega var aðeins eitt þar
sem starfsemin náði árangri, þ.e.
í Meðallandí. Upphaflega voru 6
bændur með í starfinu en eru aðeins
2 eftir (4 hættir búskap). Í Álftaveri
hefur einn bóndi bæst í hópinn.
Hefur starfið borið árangur?
Já, starfið hefur borið árangur. Samt
er mikið starf eftir óunnið. Rétt er að
vekja athygli á að þó að árangur sé
mikill hvað varðar feldeiginleika,
er mikið ógert hvað varðar
byggingarlag og kjötgæði. Ástæða
þess að feldféð hefur ekki eins góða
byggingu er m.a. að féð sem valið
var í feldræktina var raunverulega
lakara hvað byggingu snertir. Höfum
við þá ekki lagt nógu mikla áherslu
á byggingu og kjötgæði feldfjárins?
Tekið skal skýrt fram að feldféð
hefur að sjálfsögðu einnig verið
valið með tilliti til frjósemi og
mjólkurlagni áa, fallþunga dilka og
kjötgæða. Hins vegar hefur verið
meiri áhersla á ullar- og gærugæði
en í ræktun hvíta fjárins á Íslandi.
Það er því engin hætta á að fá fé
sem ekki skilar afurðum og arðsemi.
Hér er nauðsynlegt að undirstrika
að þegar valið er stíft fyrir einum
eiginleika, eins og hér hefur verið
gert, er hætta á að ekki náist sami
árangur hvað aðra eiginleika snertir.
Feldféð hefur því engan veginn eins
góða byggingu og hvíta féð okkar.
Það er ekki samasem og að ekki megi
bæta það og sameina í einum stofni
feldgæði, mjólkurlagni, frjósemi og
kjötgæði. Feldstofninn í Meðallandi
er jafn verðmætur og hvíta féð, sé
tekið tillit til þess að feldféð hefur
verðmætari ull og og gæru!
Stefnur í sauðfjárrækt
Hér vil ég bæta við og minna
sauðfjárbændur á að mikil deila
var um og eftir 1960 um stefnur
í sauðfjárrækt. Þá var deilt um
það hvort hægt væri að sameina
góða byggingu (lágfættar ær) og
mjólkurlagni. Stefán Aðalsteinsson
taldi vísbendingar um að þéttvaxnar
og lágfættar ær mjólkuðu verr en
háfættar og gisbyggðar. Í grein sem
ég skrifaði í Búnaðarblaðið 1968
(4.-7. tbl., bls. 114-118) og nefndi
,,Stefnur í sauðfjárrækt“ rakti ég
tilraunir sem sýndu að sterkt úrval
fyrir einum eiginleika gæti leitt
til hnignunar annars eiginleika. Í
feldfjárræktinni hefur verið valið
stíft fyrir ullar- og gærugæðum.
Það hefur eðlilega leitt af sér að
ekki hefur verið valið jafn strangt
fyrir frjósemi, mjólkurlagni og
kjötgæðum. Þessir eiginleikar eru
því ekki jafn góðir og æskilegt væri
en eru þó vel viðunandi. Strangt
úrval fyrir ullar- og feldgæðum
hefur leitt til mikilla framfara á
því sviði. Ef þú, lesandi góður, vilt
nota Gráfeld og taka þátt í að bæta
ullar- og feldgæði vil ég benda þér
á eftirfarandi:
Æskilegt er að tog sé fínt og
hrokkið, þel ekki of mikið.
Notaðu Gráfeld gjarna á
krúnótta, sokkótta eða blesótta
á, gráa eða svarta. Þurfa
að vera einlitar á bol. Ekki
flekkóttar ær. Best er að ullin
sé með fínt og hrokkið tog.
Sé Gráfeldur notaður á gráar
(eða svartar) ær skulu þær hafa
hreinan lit. Oft er grátt fé of
ljóst aftan við bóga og aftan á
lærum. Það er ókostur. Gráa
íslenska féð hefur gjarna of
mikið þel.
Grundvallaratriði í feldræktinni
er fínt, hrokkið tog, jafn litur um
allan bol og hárgæði. Togið hefur
þann eiginleika að þófna ekki og
heldur því áferðinni, en þelið þófnar.
Markmið er því líka að hækka
hlutfalls fíns togs í ullinni, einkum
fyrir feldgæði gærunnar.
Hér að framan hefur verið drepið
á helstu atriði í feldrækt. Val feldfjár
fer fram að hausti, í sláturtíð eins
og annarra kynbótagripa. Tekið skal
fram að þelið vex fram á haustin,
þegar fer að kólna. Það er því ekki
sama hvenær valið fer fram til að
fá sem mest gærugæði. Fyrir næsta
haust mun ég reyna að koma á
framfæri leiðbeiningum um val
líflamba með tilliti til feldgæða.
Hverjir ættu helst að koma sér
upp feldfé?
Ullarvinnslufólk. Lambsullin
er einstök, fín, mjúk og
gljándi.
Handverksfólk sem vill
nota gæruna til listsköpunar,
hanna fallega hluti eða hefur
handverk sem iðn.
Bæta ullar- og feldgæði mislita
fjárins.
Kíkið inn á Gotlandsfår eða
norsk pelsfår á netinu og sjáið
hvað Svíar og Norðmenn eru
að gera.
Gæra íslenska fjárins er
mun léttari en gærur annrra
fjárkynja, það bætir því
gærugæði almennt.
Eftirmáli
Ég var að fá hrútaskrána. Fletti
þar upp á Gráfeldi 08-894, eins og
hann heitir núna. Hét áður Gráni
08-075. Hann fær sömu meðhöndlun
í hrútaskránni og ferhyrndi hrúturinn
Höfði og forystuhrúturinn Golsi!
Tölur sem gefnar eru á netinu um
sæðingarhrúta, kynbótamat, eru ekki
í samræmi við þær tölur sem finna
má á netinu um sæðingarhrúta. Það
liggur fyrir að byggingareiginleikar
hjá afkvæmum Gráfelds eru ekki
eins og best verður á kosið. Aðrir
eiginleikar, eins og frjósemi og
mjólkurlagni dætra og vænleiki
lamba, virðist í góðu lagi. Einkunnir
yfir meðallagi. Ullar- og feldgæði
eru nokkuð vel yfir meðallagi.
Vatnshömrum 22. nóv. 2013,
Sveinn Hallgrímsson
Sveinn Hallgrímsson
Íslenska feldféð sameinar gærugæði og framleiðslu sérstakrar ullar til handiðnar.
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300