Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.09.1964, Side 35

Læknablaðið - 01.09.1964, Side 35
LÆKNABLAÐIÐ 109 Nýr Schiöts-augnspennumæl- ir var notaður, sem fenginn var frá Weiss & Son í London, kvarðaður samkvæmt töflum Friedenwalds frá 1955. Fyrir mælinguna voru augun devfð með oculoguttae corne- cain 1% eða oculoguttae tetra- cain 0.5% og spennumælirinn lireinsaður með eter eftir hverja notkun. Mæling var gerð með 5.5 gr lóðinu á spennumælinum, en þar sem um of háa augnspennu var að ræða, var 7.5 gr lóðið lika notað. Grunsamlegu spennumörkin voru sett við 3.5/5.5 (22.4 mm Hg.). Voru allir með þessa spennu eða hærri settir sér í flokk og rann- sakaðir betur með tilliti til gláku, eða það sem ég kalla annan þátt glákugreiningar. Var sérstök áherzla lögð á flokkana með 3.0/5.5 og 3.S/5.5 spennu, hvað greiningu snertir. Spennan meðal hinna siðarnefndu var mæld a.m.k. þrisvar sinnum, hæði fyrri og síðari liluta dags, nákvæm sjónsviðspróf gerð og prófað, hvort um frárennslis- hindrun væri að ræða. Þeir, sem voru með spennuna 3.5/5.S og höfðu ekki frárennslishindrun né neina skerðingu á sjón- sviði, voru ekki taldir liafa gláku, en þeim ráðlagt að gang- ast undir nánari rannsókn eigi síðar en að ári liðnu. Við þessar athuganir voru þeir ekki skráðir, sem gláka hafði verið greind hjá áður, hvort heldur var lijá mér eða öðrum augnlæknum. Normal augnspenna meðal íslendinga. Af 1700 körlum og konum, 50 ára og eldri, reyndust 1019 (samtals 3238 augu) liafa „nor- mal“ augnspennu. Eins og að framan gelur, er algengasta augnspenna meðal heilbrigðra sögð vera 15—20 mm Hg. Kemur það vel heim við mínar athuganir, er tæplega 90% mældust innan þessara marka, en meðal flestra hinna reyndist spennan aðeins lægri, og örfáir höfðu hærri spennu (2. tafla). Meðaltal augnspennu fyrir heildina reyndist mér vera 15.88 mm Hg„ mælda eins og fyrr segir með kvörðuðum augn- spennumæli af Schiöls-gerð. Sugar segir meðalspennu senni- lega um 17 mm Hg., mælda með sams konar mæli og með sömu kvörðun.7 Becker og Schaffer telja hana 16.1 mm Hg.4 Leyd- liecker og samverkamenn hans, sem mældu augnspennu meðal 10.000 heilbrigðra einstaldinga á aldrinum 6—72 ára, fengu meðalspennu 15.5 mm Ilg.10 Goedbloed og samverkamenn, sem mældu augnspennu meðal 13.354 sjúklinga í Hollandi á aldrinum 20—89 ára, fundu um 16 mm Hg. meðalspennu.11 Við athuganir mínar reyndist
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.