Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.12.1965, Page 25

Læknablaðið - 01.12.1965, Page 25
LÆKNABLAÐIÐ 51 anna lægi fremur lijá sér en nemandanum. En þó aÖ Dungal legði slíka rækt við kennslu sina, að hann varð þegar í stað meðal fremstu kennara deildarinnar, voru hugðarefni hans og fram- kvæmdir eigi minni á öðrum sviðum. Aðstaða hans í Rann- sóknarstofunni, í fjórum smá- herbergjum í Kirkjustræti 12 (á árunum 1926 til 1931), var mjög bághorin. Ýmsir smit- sjúkdómar voru þá tíðir i land- inu, svo sem herklaveiki, tauga- veiki og barnaveiki, en sulla- veikin og holdsveikin þá mjög á undanhaldi. Aðalafrek hans á þessum fyrstu árum var að koma upp mvndarlegri sjúk- dómagreiningastofnun í sýkla- og meinafræðum, sem sjúkra- liús landsins og starfandi lækn- ar liöfðu aðgang að, og hötn- uðu við það öll skilyrði til ör- uggari sjúkdómsgreininga til mikilla muna. A sviði búfjársjúkdóma var bráðapest í sauðfé mikill skað- valdur um þessar mundir. Þó að Dungal hefði þá aðeins eina stúlku til aðstoðar og hyggi við mjög þröngan húsakost, tók hann einnig þetta viðfangsefni þegar í stað til meðferðar. Rannsóknir hans á hessu sviði, sem leiddu til framleiðslu bráðapestarbóluefnis þess, sem ælíð síðan er kennt við Dungal, voru mikils virði fvrir íslenzka hændastétt. Tók bóluefni Dungals langtfram hinu danska hóluefni, sem áður var notað hér, og hefur mjög dregið úr sjúkdómi þessum í landinu, síðan regluleg notkun bóluefn- isins hófst. En ekki lét hann þar við sitja. Á sviði húfjársjúk- dómanna voru fleiri og stærri verkefni. Hann hóf rannsóknir á ormaveiki í sauðfé, og að ráð- um hans var tekið að nota tetra- chloraethylenum, sem nefnt var eftir lionuin „Dungalslyf“, við sjúkdómi þessum með þeim árangri, að flcst hinna sjúku dýra náðu sér til fulls. Þá eru rannsóknir Dungals á mæði- veiki og garnaveiki í sauðfé ekki síður kunnar. Vann hann að þeim af miklu kappi á fjórða tugi aldarinnar og birti um þær margar ritgerðir. Er Tilrauna- stöðinni á Keldum var komið á fót, fluttust þessar rannsóknir eðlilega þangað. Eftir sem áður voru rannsóknir þessar þó eitt af aðaláhugamálum prófessors- ins. Á árunum 1933—1934 fékk Dungal þvi áorkað, að reist var myndarlegt hús á lóð Landspít- alans, Rannsóknarstofa Háskól- ans, sem stendur þar enn, ó- breytt að mestu. Kom sér nú vel, að á þessum kreppuárum hafði safnazt nokkurt fé af bóluefnisframleiðslunni, og varði hann því að mestu til hyggingarinnar ásamt erlendu lánsfé, sem hann útvegaði sjálf- ur. Var nú starfsemi stofnunar-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.