Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.12.1965, Page 39

Læknablaðið - 01.12.1965, Page 39
LÆKNABLAÐIÐ 65 Forseti setti fundinn, en gaf síðan formanni orðið. Formaður bauð velkomna og kynnti gesti þingsins: fyrirlesarann, Richard Scott, prófessor frá Edinborgarhá- skóla; fulltrúa danska lækna- félagsins, dr. K. Christensen; fulltrúa finnska læknafélagsins, doc. Pekka Vourinen; fulltrúa sænska læknafélagsins, dr. Arne Ekengren. Kvað formaður það sérstakt ánægjuefni að geta boðið í fyrsta sinni velkomna fulltrúa frá Norðurlöndunum; harmaði jafnframt, að enginn fulltrúi hefði getað komið frá Noregi, en ástæðan fyrir því væri sú, að ársþing norska læknafélagsins stæði einmitt vfir. Forseti gaf nú Richard Scott prófessor orðið, en Scott er fyrsti starfandi prófessor með sérdeild til kennslu i almenn- um lækningum. Erindi Scolts mun væntan- lega birtast í Læknablaðinu. Verður það því ekki rakið hér, en fyrirlesarinn lagði ríka á- lierzlu á eftirfarandi atriði: „General practice should not he defined as a strict specialitv, hut rather as a definite and integrated field practised hy physicians who are not spe- cialists in any demarcated hranch of medicme, whatever their previous training may he.“ Fyrirlesarinn lagði enn frem- ur áherzlu á mikilvægi þess, að stúdentar væru húnir að fá þó nokkra klíniska þekkingu og spítalareynslu, áður en þeir kæmu í þennan „kúrsus“, sem í Edinhorg er haldinn á 5. náms- ári eða þar um hil. Enn fremur lagði hann mikla áherzlu á nána og persónulega samvinnu praktíserandi lækn- isins við sérfræðinga innan og utan sjúkrahúsa. Skýrði síðan ýtarlega frá námstilhögun, en kennsludeildin eru tveir sam- starfshópar ásamt lækninga- miðstöð til sérhæfðari rann- sókna. Sýndi fjölda mynda til skýringar fyrirlestrinum. Umræður og fyrirspurnir: Tómas Helgason þakkaði ræðumanni, skýrði nokkuð frá vandkvæðum hérlendis á þvi að fá lækna í almenn læknisstörf og héruð; spurði síðan um ráðn- ingartilhögun lækna í þessar kennslustöðvar, enn fremur um tilhögun framhaldsnáms, en fyrirlesari hafði skýrt frá því, að auk lækna stöðvarinnar og stú- denta væri þar að jafnaði einn læknir við nám („apprentice- ship“). Scott: “Staff is appointed hy University, hut otherwise sub- ject to N.H.S. regulations. “Ap- prenticeships” usually mean ])ostgraduate training for one or two years”. Dr. Christensen frá Kaup- mannahöfn skýrði frá atliug- un, sem gerð hafði verið í Dan- mörku um stöðuval og áfonn

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.