Læknablaðið - 01.12.1970, Blaðsíða 12
168
LÆKNABLAÐIÐ
5. mál. Breytingar á skrifstofurekstrinum
Mættur var á fundi Guðjón Eyjólfsson, löggiltur endurskoðandi, en
formaður reifaði málið. Hann gat þess, að Sigfúsi Gunnlaugssyni fram-
kvæmdastjóra hefði verið sagt upp störfum, en nú störfuðu á skrif-
stofunni þrjár vel færar skrifstofustúlkur. Þá hefði farið fram gagngerð
breyting á innréttingu skrifstofunnar, sem gerir vinnuaðstöðu alla
betri.
í framtíðinni er ætlazt til, að skrifstofan sjái um alla sjóði í vörzlu
félaganna, tímarit, hóptryggingu o. fl.
Þá tók til máls Guðjón Eyjólfsson löggiltur endurskoðandi; hann
gat þess, að hann hefði tekið við stjórn og skipulagningu bókhalds og
sjóða félagsins og einnig fjárskilum, þegar Sigfús Gunnlaugsson hætti
störfum. Var þetta gert samkvæmt ósk stjórna L.í. og L.R. Fjárskilum
væri nú lokið; þó ætti fráfarandi framkvæmdastjóri enn eftir að skila
einum sjóðanna, en líklegt væri, að hann gerði það eftir helgina.
Gerði hann nokkra grein fyrir rekstri skrifstofu og ræddi loks um
framtíðarfyrirkomulag bókhaldsins, þegar allir sjóðir hafa verið af-
stemmdir. Þá verður nánari skýrsla gefin um málið.
6. mál
Stefán Bogason gerði grein fyrir fjárhag félaganna, sbr. reiknings-
yfirlit. Hann kvað talsvert útistandandi af árgjöldum fyrra árs frá
læknum úti á landi, en allir félagar L.R. höfðu gert skil.
7. mál
Guðmundur Jóhannesson, formaður gjaldski'árnefndar, kom á
fundinn og gerði grein fyrir störfum nefndarinnar. Hann kvað gjald-
skrána frá 196& hvorki viðurkennda af læknum né Tryggingarstofnun.
Hlutverk nefndarinnar væri það að semja nýja gjaldskrá, sem gilti
fyrir allt landið, bæði fyrir almenna lækna og sérfræðinga, sem yrði
samningsgrundvöllur í væntanlegum samningum. Almennt voru menn
ánægðir með vinnubrögð nefndarinnar. Endanlega hafði þó ekki verið
frá gjaldskránni gengið, en vantaði aðeins herzlumuninn, Greinargerð
mun fylgja, er nefndin skilar af sér. Var gerður góður rómur að máli
Guðmundar.
8. mál
Örn Bjarnason gerði grein fyrir könnun á aðstöðu héraðslækna og
vandamálum dreifbýlisins vegna læknaskorts. Hann gat um fund, sem
forráðamenn á Neskaupstað munu að líkindum boða til vegna lækna-
skortsins nú í vor. Hann gat um nauðsyn áróðurs fyrir stofnun lækn-
ingamiðstöðva og möguleika á samvinnu við sveitarfélögin um það.
Hann kvaðst myndu ásamt formanni L.f. sækja fundinn á Norðfirði,
þegar til hans yrði boðað. Formaður L.í. gat og um för sína og tveggja
stjómarmanna L.í. til Húsavíkur í jan. sl. vegna deilu læknanna þar.