Læknablaðið - 01.12.1970, Blaðsíða 82
214
LÆKNABLAÐIÐ
Launakjör yfirlækna ríkisspítalanna eru ekki viðurkennd af
læknasamtökunum. Stjórnir félaganna fara því fram á það við þá, sem
sækja um stöðurnar, að þeir setji þann fyrirvara með umsókninni, að
launakjör skuli fara eftir samningum, er L.R. gerir.
Þeir, sem þegar hafa sent inn umsókn, eru beðnir um að senda
nefndan fyrirvara í ábyrgðarbréfi til auglýsenda staðanna. Ennfremur
er þess óskað, að umsækjendur sendi afrit af umsókn sinni og fyrir-
vara til stjórnar L.R., Domus Medica, Egilsgötu 3, Reykjavík.
Til glöggvunar þeim, sem ekki eru kunnugir lögum félaganna og
Codex Ethicus, birtum við þær greinar laganna og Codex Ethicus, sem
fjalla um málefni sem þessi.
í lögum L.í. 17. grein segir: „Stjórn L.í. skal vara opinberlega
við stöðum eða embættum, er hún telur vera varhugaverð eða óað-
gengileg fyrir lækna.“
í Codex Ethicus segir:
22. grein.
„Lækni, sem ræður sig til læknisstarfa, ber að gæta þess, að ráðn-
ing hans sé samkvæmt samningi eða samþykktum, sem L.í. viður-
kennir.“
23. grein.
„Læknir má ekki gefa kost á sér til stöðu, ef stjórn L.í. hefur
ráðið félagsmönnum frá að sækja um hana.“
24. grein.
„Læknum ber að kynna sér og virða lög, reglur og samninga, sem
læknastéttin hefur viðurkennt.11
Ennfremur segir í 19. gr. laga L.R.:
„Félagsmenn mega ekki sækja um eða taka við embætti eða stöð-
um, nema stjórn L.R. hafi viðurkennt launakjör, starfsskilyrði og
starfssvið, enda hafi staðan verið auglýst með minnst fjögurra vikna
fyrirvara í Læknablaðinu eða á annan fullnægjandi hátt.“
Stjórnir félaganna vænta þess, að allir félagar í L.í. eða svæða-
félögum þess, svo og aðrir læknar, sem enn hafa ekki gerzt meðlimir
læknasamtakanna, en hafa hug á nefndum stöðum, sjái sér fært að
fara eftir þessum fyrirmælum, þar sem hér er um mjög mikilvægt
principmál að ræða fyrir alla íslenzka lækna.
Með kollegial kveðju,
Sigmundur Magnússon,
formaður Læknafélags
Reykjavíkur.
Hannes Finnbogason,
ritari L.R.
Arinbjörn Kolbeinsson,
fcrmaður Læknafélags íslands.
Stefán Bogason,
gjaldkeri L.Í.-L.R,
Friðrik Sveinsson,
ritari L.í.