Læknablaðið - 01.12.1970, Blaðsíða 18
170
LÆKNABLAÐIÐ
15. mál. Lyfjaafgreiðsla sjúkrasamlaga
Brynleifur Steingrímsson vakti máls á því, að misræmis gætti í
greiðslu Sjúkrasamlagsins, þannig að það greiddi nokkur efni ein sér,
en oft ekki, ef þau væru blandin öðrum efnum.
16. mál. Reglugerð um veitingu sérfrœðileyfa
Árni Björnsson gerði grein fyrir nefndarstörfum. Nefndin hélt
20 fundi. Hann kvað gömlu reglugerðina hafa gilt of lengi. Nú væri
búið að ganga frá drögum að reglugerð, þar sem undirbúningur sér-
náms væri lengdur. Kandídatsárið lengist í 15 mánuði. Þetta kvað
hann vera að gerast í nágrannalöndunum. Lagði hann áherzlu á, að
ekki væri á því stætt fyrir okkur að draga úr kröfunum til fram-
haldsnáms, samtímis því sem hert væri á þeim annars staðar, einkum
í nágrannalöndum okkar. Las hann síðan og kynnti drögin að nýrri
reglugerð, þar sem m. a. er kveðið á um framhaldsmenntun almennra
lækna, sem er nýmæli. Fulltrúar ijétu allir í ljós álit sitt á reglugerð-
inni og voru samþykkir reglugerðinni um heimilislækningar. Dagskrá
fundarins var þá tæmd.
En nokkru áður en formaður sleit fundi ræddu menn óformlega
nokkur mál. M. a. vakti Árni Björnsson máls á því, að sjúkrasamlög
greiddu ekki læknishjálp veitta af tannlæknum. Nú væri á það að
líta, að í sambandi við ýmsa sjúkdóma í munni væri bráðnauðsynlegt
að hafa tannlækna með í ráðum og oft þörf samstarfs við þá. Þetta
væri oft mikill kostnaður fyrir sjúklinga, en sjúkrasamlög greiða
hann ekki. Þá væri rétt, að sjúkrasamlög greiddu slíkt að sínum hluta
ekki síður en margt annað, sem þeim er gert að greiða.
Formannaráðstefnu slitið.
Framlög L.í. til Á aðalfundi L.í. í Bifröst 22.—23. júní 1968 var sam-
Domus Medica þykkt, að framlög L.í. til Domus Medica yrðu fram-
vegis í formi lána, en ekki sem óafturkræfar greiðsl-
ur. Samið hefur verið um þetta atriði við stjórn Domus Mediea, og
á síðustu reikningum þeirrar stofnunar eru framlög L.í. færð sem
skuld og reikningum L.f. sem inneign hjá Domus Medica. Lán þessi
eru ekki verðtryggð, en skuldaviðurkenning liggur hjá stjórn L.í. Um
það hefur verið rætt, að Domus Medica greiði L.í. vexti af lánum þess-
um, og verða vextir þá greiddir árlega, en samið verði um afborganir
síðar.
Tillaga um breytingu Stjórn Domus Medica var ritað bréf, dags.
á skipulagsskrá 30.1.1969 (fskj. 1), þar sem þess var óskað, að
Domus Medica Læknafélag fslands fengi nánari aðild að
stjórn Domus Medica. Stjórn Domus Medica
hefur skýrt frá því, að lögfræðingur stofnunarinnar, Einar B. Guð-
mundsson, telji allmikil vandkvæði á því að breyta skipulagsskrá
Domus Medica. Er það álit hans, að stjórn L.í. hafi ákveðið neitunar-
vald um kjörgengi í stjórn Domus Medica og með þessu neitunar-