Læknablaðið - 01.12.1970, Blaðsíða 72
208
LÆKNABLAÐIÐ
ferð sjúklinga hvers annars. Stefna ber að því, að kvöldstofugang ann-
ist vakthafandi læknir, sé þess þörf, og ber eyktalækni þá að skýra
yfirlækni frá, ef einhverjar sérstakar breytingar hafa orðið á líðan
sjúklinga, sem læknir telur nauðsynlegt, að yfirlæknir fylgist með.
Að sjálfsögðu getur verið nauðsynlegt, að yfirlæknir (eða eyktalæknir)
líti á sjúklinga í sambandi við kvöldstofugang, (t. d. operationssjúkl-
inga frá sama morgni).
Journalaskriftir verði yfirleitt með þeim hætti, að læknar skrifi
ætíð journala um þá sjúklinga, sem þeir leggja inn „akut“ eða af bið-
skrá sjúkrahússins. Þó skrifi eyktalæknir journala um þá sjúklinga,
sem yfirlæknir hefur lagt inn, þegar slíkt er nauðsynlegt, enda ræði
yfirlæknir um það við eyktalækni hverju sinni.
Útskriftir. Sá læknir, sem aðallega hefur haft með höndum með-
ferð sjúklings, annast útskrift hans. Eyktalæknir beri útskriftir undir
yfirlækni, áður en þær eru framkvæmdar, sé þess kostur. Yfirlæknir
skýri öðrum læknum einnig frá fyrirhuguðum útskriftum.
Eyktalæknir leiti álits yfirlæknis um „akut“ tilfelli, þegar hann
telur þess þörf eða sjúklingur er í lífshættu. Eigi skulu læknar fram-
kvæma vandameiri aðgerðir án þess að leita álits yfirlæknis, sé hægt
að ná til hans; einnig ber yfirlækni eða eyktalækni að leita ráða sér-
fræðings í vandasömum tilfellum, sé þess kostur. Hver læknir annist
aðgerðalýsingu á þeim sjúklingum, sem hann hefur framkvæmt aðgerð
á.
Læknabréf séu skrifuð af þeim lækni, sem útskrifar viðkomandi
sjúkling; sama gildir um ritun spjaldskrárupplýsinga.
Eyktalæknar gegni störfum yfirlæknis í fjarveru hans, enda sé
slikt tilkynnt stjóm sjúkrahússins.
IV. Niðurlag
Ofanritaðar ábendingar um læknasamstarf ber eigi að líta á sem
fyrirskipanir, heldur aðeins leiðbeiningar um þróunarstefnu í samstarfi
og einnig til þess að leita þar úrskurðar um einstök ágreiningsefni og
tryggja, að þau verði rædd og útkljáð hverju sinni, svo fljótt sem auðið
er.
Reykjavík, 21. jan. 1969.
Stjórn Læknafélags fslands.
FYLGISKJAL 9 B
REGLUGERÐ
UM STÖRF LÆKNA VIÐ SJÚKRAHÚSIÐ Á HÚSAVÍK
1. gr.
Yfirlæknir sjúkrahússins er formaður læknaliðs þess. Hann hefur
réttindi og starfsskyldur samkvæmt sjúkrahúslögum, en auk þess skai
hann skipuleggja heilbrigðisþjónustu spítalans og hafa eftirlit með
starfsliði, er að henni starfar. Hann tekur við beiðnum um innritun
nýrra sjúklinga og stuðlar að hagræðingu í daglegum rekstri. Hann
ber ábyrgð á heilbrigðisþjónustu sjúkrahússins gagnvart sjúkrahús-
stjórn.