Læknablaðið - 01.12.1970, Blaðsíða 41
LÆKNABLAÐIÐ
189
verði öll útibúin þannig, að þau henti til að veita fyrstu læknishjálp.
M'eð tiltölulega iátilli fyrirhöfn má bæta sjúkraaðstöðu þeirra, þann-
ig að hún geti talizt viðunandi, en aðra æskilega eiginleika hafa
þau öll nú þegar til að bera. Yrðu þá alltaf einhver þeirra tiltæk til
að fara með stuttum fyrirvara til aðstoðar fiskiskipaflotanum á
fjarlægum miðum, ef ástæða þætti til.
7. Að lokum vill nefndin benda á, að læknisaðstoð við fiskiskip um-
hverfis Ísland eða á fjarlægum miðum, yrði mun auðveldari, ef til-
tæk væri hér á landi langfleyg’, tveggja hreyfla þyrla, sem annað-
hvort gæti veitt skipum sjúkrahjálp ein sér eða í samvinnu við sér-
stök aðstoðarskip.
Pétur Sigurðsson, formaður,
Hannes Finnbogason,
Pétur Sigurðsson,
Gunnar I. Hafsteinsson.
FYLGISKJAL 4
SAMNINGUR
milli Læknafélags íslands annars vegar og dóms- og kirkjumálaráðu-
neytisins og sjávarútvegsmálaráðuneytisins hins vegar um laun lækna
fyrir störf um borð í varðskipi í þágu síldveiðisjómanna á fjarlægum
miðum.
Samningur þessi miðast við lækna og læknakandídata á Landspítal-
anum.
1. grein
Föst mánaðarlaun skulu vera samkvæmt samningi milli Lækna-
félags Reykjavíkur og Stjórnarnefndar ríkisspítalanna um laun laus-
ráðinna lækna og læknakandídata miðað við 15 eyktir á viku.
2. grein
Greiðslur fyrir vaktir og vinnu á vöktum verði þær sömu og
viðkomandi læknir hefir haft að meðaltali undanfarna 3 mánuði hjá
ríkisspítölunum.
3. grein
Lækni verði séð fyrir húsnæði, fæði og flutningi sér að kostnaðar-
lausu.
4. grein
Vegna fjarvista og óbeinna útgjalda, er læknir verður fyrir vegna
starfsins, komi greiðslur til viðbótar launum skv. 1. og 2. gr. samn-
ingsins, er svara til 15 gæzluvakta á mánuði, hafi læknirinn opna
stofu, ella greiðslur, er svari til 10 gæzluvakta á mánuði.