Læknablaðið - 01.12.1970, Blaðsíða 39
LÆKNABLAÐIÐ
187
niðurlagsákvæði 5. gr. í skipulagsskrá fyrir Domus Medica, sem birt
var sem nr. 60 í B-deiId Stjórnartíðinda 1960.
4. gr. skipulagsskrárinnar hljóðar svo:
„Stjórn Domus Medica skipa 5 læknar, og skulu þeir vera félag-
ar í L. í. Skuli tveir kosnir af Læknafélagi íslands, tveir af
Læknafélagi Reykjavíkur og einn sameiginlega af stjórnum fé-
laganna. Stjórnin tilnefnir sjálf mann eða menn í stað þeirra,
er úr henni ganga, enda samþykki stjórnir Læknafélags íslands
og Læknafélags Reykjavíkur stjórnarkjörið. Stjórninni er heim-
ilt að kveðja sér til aðstoðar 3 varamenn."
og niðurlagsákvæði 5. gr. er svohljóðandi:
„Einn maður gengur úr stjórninni ár hvert. í fyrstu eftir hlut-
kesti, síðan eftir starfsaldri.“
I) Skilyrði þess, að maður geti tekið sæti í stjóm Domus Medica
sem aðalmaður eða varamaður samkvæmt niðurlagsáfcvæði 4.
gr. eru tvö:
1. að maðurinn sé læknir og
2. að hann sé félagi í Læknafélagi íslands. Það er þannig ekki
skilyrði, að stjórnarmaður sé félagsmaður í Læknafélagi
Reykjavíkur.
II) Samkvæmt 4. gr. fór stjórnarkjör í upphafi fram með þeim hætti,
að Læknafélag íslands kaus tvo menn, Læknafélag Rekjavík-
ur aðra tvo og stjórnir beggja félaganna sameiginlega einn mann.
Þessi skipan mála er í samræmi við upphafsákvæði greinarinnar.
III) Samkvæmt niðurlagsákvæði 5. gr. skal einn maður ganga úr
stjórninni ár hvert, í fyrstu eftir hlutkesti, síðan eftir starfs-
aldri. Ekki er í skipulagsskránni að finna nein ákvæði, sem banna
endurkjör, og verður því að telja, að stjórnarmann megi endur-
kjósa svo oft sem verkast vill.
Um kjör stjórnarmanns í stað þess, er gengur úr stjórninni
ár hvert, og um kjör stjórnarmanna, er koma í stað þess, eða
þeirra, sem hverfa úr stjórninni, gilda þær reglur, að stjórn
Domus Medica hefur rétt til að tilnefna. mann, eða menn í stjórn
stofnunarinnar í stað þess eða þeirra, er úr stjórninni ganga. Hins
vegar getur enginn orðið löglegur stjórnarmaður, nema því að-
eins, að stjórn Læknafélags íslands og Læknafélags Reykjavíkur
fallist á tilnefninguna. í þessu efni verður að telja, að samþykki
beggja Læfcnafélaganna þurfi.
Niðurstaðan yrði í sem stytztu máli þessi:
Stjórn Domus Medica hefir aðeins rétt til að tilnefna menn í
stjórn stofnunarinnar. Stjórnarkjörið er í höndum stjórna Lækna-
félags fslands og Læknafélags Reyfcjavíkur, en takmarkað á þann
hátt, að stjórnir Læknafélaganna geta aðeins kosið þann mann,
eða þá menn, sem tilnefndir eru af stjórn Domus Medica.
IV) Skipulagsskrá fyrir Domus Medica verður ekki breytt, nema
því aðeins, að 4/5 hlutar stjórnarinnar samþykki breytingarnar