Læknablaðið - 01.12.1970, Blaðsíða 61
LÆKNABL AÐIÐ
197
Svo sem upptalning þessi ber með sér og skattskýrslur bera ef-
laust vitni um, afla læknar tekna sinna í flestum tilfellum á fleiri en
einum stað. Það hlýtur hverjum að vera ljóst, sem horfir raun'hæft á
málin, að tekna, svo sem læknar hafa, verður ekki aflað nema með því
að nýta tímann vel og eyða sem minnstum tíma í flutninga. Með því að
nota bíl er hægt að komast af með minni tíma til flutninga en ella.
Færu læknar á milli staða á nokkurn annan veg, gangandi, á reiðhjóli
eða í strætisvögnum, færi dýrmætur tími óhjákvæmilega til spillis og
Iæknar hefðu minni tíma til að afla tekna sinna, sem því myndu
minnka að sama skapi. Að þessu leyti er bifreið því einnig nauðsyn-
legur liður við tekjuö'flun lækna.
Sérstaklega viljum við mótmæla þeirri meðferð að leggja fyrningu
læknabifreiðar inn í heildarreksturskostnað, sem síðan er ekki viður-
kenndur til frádráttar, nema að mjög litlu leyti, allt niður í 25%,
eins og ákvörðun ríkisskattanefndar segir til um. í sumum tilvikum
hefur þetta leitt til þess, að heildarfrádrátturinn hefur ekki náð fyrn-
ingunni einni, en í lögum er gert ráð fyrir því, að læknar megi fyrna
bifreiðir sínar allt að 15%. Með ákvörðun þessari er fyrning sumra
læknabifreiða ekki viðurkennd, nema sem samsvarar um 25% af 15%,
eða nánast aðeins 3y2%. Nú er það vitað mál, að enginn læknir getur
stundað starf sitt, nema hann hafi yfir að ráða bifreið. Sié svo, verð-
ur hann alltaf að leggja í þann stofnkostnað, sem bifreiðakaupum fylgir,
og skiptir þá engu máli, hvort hann notar bílinn oft eða sjaldan. Fyrn-
ing er þá sameignleg og eins hjá öllum læknum, hversu mikið, sem
þeir nota bifreiðina í þágu starfsins. Einnig eru skyldutrygging og
skattar misdýrar í þessu tilliti.
Stjórn Læknafélags Reykjavíkur fer því fram á, að fyrning,
skyldutrygging og skattar verði frádráttarbær að fullu, en annar rekstr-
arkostnaður sem verið hefur, eða 85%.
Með því að heimila 15% fyrningu á læknabifreiðum er í lands-
lögum viðurkennd sú meginregla, að læknar þurfi á bíl að halda í
starfi. Sýnist því ástæðulaust að skera svo mikið niður frádráttarbæran
bifreiðakostnað lækna, á meðan fjöldi stétta nýtur bifreiða, þar sem
allur kostnaður er frádráttarbær, ýmist í formi frírrar bifreiðar frá
opinberri stofnun eða að bifreiðin er skráð á nafn fyrirtækisins.
Stjórn L. R. og skattamálanefnd óska eindregið eftir því að ræða
þetta mál við yður frekar, sem fyrst.
B. Ferðakostnaður lækna.
Stjórnir félaganna geta að öllu leyti fellt sig við afgreðslu ríkis-
skattanefndar á ferðakostnaði lækna.
C. Námssjóðir lækna.
Við getum fellt okkur við ákvörðun um námssjóði lækna, svo fremi
sem það er rétt skilið hjá okkur, að tillögin séu ekki talin til tekna fyrr
en á því ári, sem þau eru fengin til námsferða.